Um síðuna
ESB Vaktin er óháð, gagnadrifið upplýsingaverkefni sem fylgist með umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður Íslands við Evrópusambandið þann 29. ágúst 2026.
Markmið
- Óhæði — ekki tengt neinum stjórnmálaflokki eða herferð
- Gagnsæi — allar forsendur og aðferðir birtar opinberlega
- Jafnvægi — fullyrðingar beggja megin metnar á sama mælikvarða
- Uppsöfnuð þekking — upplýsingar safnast upp yfir tíma í stað þess að byrja upp á nýtt í hverri fréttahrinu
Hvernig ESB Vaktin vinnur
Fullyrðingar úr opinberri umræðu eru skráðar í gagnagrunn. Spjallmennið Claude skannar fullyrðingarnar og ber þær saman við staðreyndagögn — lagaákvæði, efnahagstölur, alþjóðleg fordæmi og opinberar afstöður samtaka. Út frá þeirri greiningu er fullyrðingum skipt eftir trúverðugleikaflokkun. Staðreyndagögnin eru svo uppfærð reglulega samhliða fjölgun fullyrðinga.
Umsjón með verkefninu hefur Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson.
Sjá nánar á Aðferðafræði síðunni.
Hafa samband
Viltu senda okkur ábendingu, leiðréttingu eða athugasemd? Hafa samband →