Erlend áhrif í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu

157. löggjafarþing Mál nr. 827 11. júní 2026 Sjá á Alþingi.is ↗
2 ræður
1 þingmenn
382 orð
1 flokkar
Samfylkingin

Ríkisstjórn

Kristrún Frostadóttir
Samfylkingin
2 ræður 382 orð

Stjórnarandstaða

Tímalína umræðunnar

11. júní 2026
Kristrún Frostadóttir Samfylkingin ræða
274 orð
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég man eftir að hafa fengið þessa fyrirspurn áður. Þar spurði ég sérstaklega um hvort það væri eitthvað sérstakt sem hann væri að vitna til af því að hér er talað með mjög almennum hætti, þannig að það væri gott fyrir mig að vita ef það er einhver sérstök frétt sem hann er að vitna í, einhver sérstök umræða sem hann er að tala um. Ég stend við það sem ég sagði hér áðan að þetta er innanlandsmál, þetta er…

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég man eftir að hafa fengið þessa fyrirspurn áður. Þar spurði ég sérstaklega um hvort það væri eitthvað sérstakt sem hann væri að vitna til af því að hér er talað með mjög almennum hætti, þannig að það væri gott fyrir mig að vita ef það er einhver sérstök frétt sem hann er að vitna í, einhver sérstök umræða sem hann er að tala um. Ég stend við það sem ég sagði hér áðan að þetta er innanlandsmál, þetta er innanlandspólitík og það er innanlandsákvörðun Íslendinga að hefja þessar viðræður eða ekki og auðvitað viljum við ekki óeðlileg afskipti. Það er hins vegar munur á óeðlilegum afskiptum og málefnalegri umræðu, ég tala nú ekki um ef fólk er að óska svara frá Evrópusambandinu um einhverjar staðreyndir sem snúa að málinu, þá er ekkert óeðlilegt að svör við því komi frá sambandinu enda er það væntur aðili máls. Nú verð ég bara að viðurkenna að ég veit ekki sérstaklega í hvað hv. þingmaður er að vitna. Svarið mitt er skýrt. Við líðum auðvitað ekki óeðlileg afskipti en ef fólk vill forvitnast um hvernig Evrópusambandið er, hvernig það er rekið, hvaða stefnu það fylgir, hvað gæti verið undir í slíkum viðræðum finnst mér fullkomlega eðlilegt að Evrópusambandið fái svigrúm til að svara því með málefnalegum hætti, en í lok dags þá ítreka ég að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst er í höndum þjóðarinnar. Þetta er innanlandsmál. Þetta snýst ekki um aðild, eins mikið og er talað um að þetta sé atkvæðagreiðsla um aðild, talandi um ómálefnalega umræðu. Þetta er atkvæðagreiðsla um hvort eigi að hefja viðræður og skoða aðild.

Kristrún Frostadóttir Samfylkingin ræða
108 orð
Frú forseti. Ég ítreka það sem ég hef sagt hér bæði fyrr í dag og fyrri daga, að auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum. Það liggur alveg fyrir. Það liggur alveg fyrir í þessu máli. Þetta er innanlandsmál. Ef fólk er hins vegar að leita svara við spurningum hjá Evrópusambandinu finnst mér ekki óeðlilegt að Evrópusambandið svari þeim spurningum. En í lok dags þá veit þjóðin sínu viti. Hún gerir sér alveg grein fyrir því um hvað þessi þjóðaratkvæðagreiðsla er. Þetta…

Frú forseti. Ég ítreka það sem ég hef sagt hér bæði fyrr í dag og fyrri daga, að auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum. Það liggur alveg fyrir. Það liggur alveg fyrir í þessu máli. Þetta er innanlandsmál. Ef fólk er hins vegar að leita svara við spurningum hjá Evrópusambandinu finnst mér ekki óeðlilegt að Evrópusambandið svari þeim spurningum. En í lok dags þá veit þjóðin sínu viti. Hún gerir sér alveg grein fyrir því um hvað þessi þjóðaratkvæðagreiðsla er. Þetta snýst um valkosti í þessu máli. Þetta snýst um hvort við eigum að hefja aðildarviðræður eða ekki. Þannig að ég hef ekkert meira um þetta mál að segja.