Atvinnuleysi innan ESB

157. löggjafarþing Mál nr. 807 8. júní 2026 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
1.100 orð
2 flokkar
Sjálfstæðisflokkur Viðreisn

Ríkisstjórn

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Viðreisn
2 ræður 626 orð

Stjórnarandstaða

Guðlaugur Þór Þórðarson
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 474 orð

Tímalína umræðunnar

8. júní 2026
Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur ræða
266 orð
Virðulegur forseti. Við erum að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu en menn eru ekki alveg sammála um í hvað felst í henni. Aðalatriðið er þó þetta: Við þurfum að taka upplýsta umræðu byggða á staðreyndum um hvað felst í að vera í Evrópusambandinu ef við viljum sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það hefur vakið athygli að ríkisstjórnin hefur í rauninni hagað málum þannig að umræðan sé eins lítil og mögulegt er, eins og náttúrlega kemur t.d. fram í því hvenær við munum kjósa.…

Virðulegur forseti. Við erum að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu en menn eru ekki alveg sammála um í hvað felst í henni. Aðalatriðið er þó þetta: Við þurfum að taka upplýsta umræðu byggða á staðreyndum um hvað felst í að vera í Evrópusambandinu ef við viljum sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það hefur vakið athygli að ríkisstjórnin hefur í rauninni hagað málum þannig að umræðan sé eins lítil og mögulegt er, eins og náttúrlega kemur t.d. fram í því hvenær við munum kjósa. Ásetningurinn er augljós. Og skýrsla um evruna, sem ríkisstjórnin stóð fyrir kemur ekki fram fyrr en við erum búin að greiða atkvæði og taka umræðu um aðildina. En það breytir því ekki að það hafi verið umræða um skýrsluna enda mikilvægt að gera það. Það er augljóst að fullyrðingar stjórnarliða um að hér muni allt verða betra við að taka upp evru og hér muni lækka verðlag og vextir og verðbólga standast ekki. En það sem er alveg skýrt er að hagsveiflan, ef við tökum upp annan gjaldmiðil, mun fara í gegnum vinnumarkaðinn, mun annaðhvort fara í gegnum lækkun launa eða aukið atvinnuleysi.

Það hefur vakið athygli mína hvernig stjórnarliðar og forystumenn í Viðreisn hafa talað um þetta, talað eins og það sé bara allt að því eftirsóknarvert að fá ESB-atvinnuleysið, að það sé bara gott að þurfa að fara til útlanda eftir vinnu. Ég tók t.d. eftir ummælum Gylfa Zoëga sem situr í stjórn Seðlabankans fyrir Viðreisn, hann taldi að fólk hefði bara gott af þessu. Ég spyr hæstv. ráðherra: Er hún sammála þessu? Er ESB-atvinnuleysi eitthvað sem er eftirsóknarvert fyrir fólkið í landinu?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn ræða
352 orð
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður var að ýja að því að það væri ekki alveg skýrt um hvað væri verið að kjósa en mér finnst einmitt að þingið og hv. utanríkismálanefnd hafi lagt sig fram um það sérstaklega að fara að tilmælum Feneyjanefndarinnar sem m.a. Sjálfstæðisflokkurinn lagði til að yrði leitað til og það er alveg skýrt að Feneyjanefndin leggur mikla áherslu á að það sé ekki verið að kjósa um aðild heldur að það sé skýrt að það sé verið að kjósa um samning, að það…

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður var að ýja að því að það væri ekki alveg skýrt um hvað væri verið að kjósa en mér finnst einmitt að þingið og hv. utanríkismálanefnd hafi lagt sig fram um það sérstaklega að fara að tilmælum Feneyjanefndarinnar sem m.a. Sjálfstæðisflokkurinn lagði til að yrði leitað til og það er alveg skýrt að Feneyjanefndin leggur mikla áherslu á að það sé ekki verið að kjósa um aðild heldur að það sé skýrt að það sé verið að kjósa um samning, að það sé verið að hefja samningaviðræður að nýju. Eftir því vann nefndin. Þess vegna breytti hún m.a. orðalaginu, til þess að það væri alveg skýrt að landsmenn fá tækifæri 29. ágúst til að kjósa um það hvort við eigum að hefja samningaviðræður að nýju. Ef fólk segir já þá er það búið að tryggja sér aðra þjóðaratkvæðagreiðslu af því að við ætlum að klára samninga og gera það vel. Þessi framsetning, og ég ætla bara að leyfa mér að segja það, er enn eitt dæmið um að reyna að gára vatnið og reyna að gera þetta óljóst.

Ég myndi gjarnan vilja að hv. þingmaður myndi segja mér skýrlega hvað ESB-atvinnuleysi er, af því að Evrópusambandið er samband 27 ríkja og atvinnuleysið er mjög mismunandi eftir ríkjum. Það er bara mjög mismunandi hvernig hlutirnir virka hjá þeim sem eru með evru eða gjaldmiðla sína tengda við evruna. Ég tek eftir því að það er ekki verið að benda mikið á til að mynda Danmörku eða Færeyjar. Færeyjar eru ekkert ósvipað atvinnusvæði og við, byggja á ferðaþjónustu, fiskeldi og sjávarútvegi, mjög svipað. Þar er atvinnuleysi um 2%. Þar eru stýrivextir 2,5%, minnir mig, eða innan við 3%. Af hverju eru aldrei þau lönd sem eru svona sambærileg og við, með svipuð og líkt þenkjandi viðhorf og við, tekin inn í þessa breytu? Enn og aftur, þetta er bara með mjög mismunandi hætti og ég vil undirstrika að við höfum aldrei sagt að evran væri töfralausn. Það þarf aga í íslenskt samfélag, hvort sem það er innan ríkisfjármálanna eða á vinnumarkaði og því held ég að við hefðum gott af.

Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur ræða
208 orð
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég held að hún hafi sett ESB-met í mótsögnum. Fyrst kemur hæstv. ráðherra og segir að það sé alveg skýrt um hvað er kosið. Það segir í meiri hluta nefndarálitsins að það eigi að hefja aðildarviðræður. Svo segir hæstv. ráðherra að ljúka þeim. Hvort er það? Sömuleiðis eru hér stjórnarliðar sem hvað eftir annað — þeir eru með myndbönd þar sem þeir auglýsa afslátt á pítsum ef við göngum í Evrópusambandið, hvorki…

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég held að hún hafi sett ESB-met í mótsögnum. Fyrst kemur hæstv. ráðherra og segir að það sé alveg skýrt um hvað er kosið. Það segir í meiri hluta nefndarálitsins að það eigi að hefja aðildarviðræður. Svo segir hæstv. ráðherra að ljúka þeim. Hvort er það? Sömuleiðis eru hér stjórnarliðar sem hvað eftir annað — þeir eru með myndbönd þar sem þeir auglýsa afslátt á pítsum ef við göngum í Evrópusambandið, hvorki meira né minna.

Virðulegur forseti. Svo kemur hæstv. ráðherra og segir: Heyrðu, þetta er allt mjög mismunandi, það er allur gangur á öllu eftir því hvaða land er. En það er búið að lofa okkur hérna 25% lækkun á matvælaverði ef við göngum inn. Það liggur hins vegar alveg fyrir og er alveg skýrt að ef við tökum annan gjaldmiðil verður hagsveiflan, virðulegi forseti, tekin á vinnumarkaðnum. Það er óumdeilt. Það er ESB-atvinnuleysið. Ég get gjarnan talað um Danmörku. Það er ekki auðvelt fyrir ungt fólk að kaupa sér húsnæði í Danmörku. En aðalatriðið er þetta: Er hæstv. ráðherra sammála Gylfa Zoëga, fulltrúa Viðreisnar í Seðlabankanum, þar sem hann talar um að það sé bara eftirsóknarvert að fólk þurfi að flytja frá landinu til að sækja sér vinnu?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn ræða
274 orð
Virðulegi forseti. Ég tel ástæðu til að hnykkja á því og útskýra og ítreka fyrir þingmanninum að þingið breytti spurningunni yfir í að hefja samningaviðræður á ný. Eitthvað sem maður byrjar á — þá er mitt markmið að klára það. Það er verið að hefja samningaviðræður á ný með það að markmiði að klára samningaviðræður með það í huga að tryggja hagsmuni Íslands. Ég skil ekki hvað er svona flókið við það. Ef fólk segir já þá er það að öllum líkindum búið að tryggja aðra …

Virðulegi forseti. Ég tel ástæðu til að hnykkja á því og útskýra og ítreka fyrir þingmanninum að þingið breytti spurningunni yfir í að hefja samningaviðræður á ný. Eitthvað sem maður byrjar á — þá er mitt markmið að klára það. Það er verið að hefja samningaviðræður á ný með það að markmiði að klára samningaviðræður með það í huga að tryggja hagsmuni Íslands. Ég skil ekki hvað er svona flókið við það. Ef fólk segir já þá er það að öllum líkindum búið að tryggja aðra þjóðaratkvæðagreiðslu með það að markmiði að Íslendingar allir fái staðreyndir á borðið, ekki getgátur eins og er endalaust verið að setja fram hér af hv. þingmanni. Við skulum bara hafa það í huga að Ísland er dýrasta land í heimi, nýbúið er að koma með kannanir um það. Mér finnst erfitt að heyra að hv. þingmaður vilji ekki m.a. gefa ungu fólki kost á, þegar það er búið að taka ákvörðun um, að kaupa íbúð öðruvísi en að þurfa að borga hana þrisvar sinnum. Það er veruleikinn sem hv. þingmaður vill bjóða … svara. íslensku fólki.

Gefa ræðumanni hljóð.

Svara spurningunum. Ég er að svara spurningum. Ég svaraði því m.a. í fyrra svari. Mér finnst það miður en mín svör eru ekki alltaf eftir hentugleika hv. þingmanna. Þannig er það. Við skulum hafa það alveg skýrt: Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um að hefja samningaviðræður á ný. Þetta snýst um að ná samningum við Evrópusambandið en ekki einhverjar getgátur um aðild eða eitthvað annað eins og hv. þingmaður vill alltaf vera látaForseti. Fæ ég svona ræðutíma?.

Ég vil biðja hv. þingmenn um að halda ró sinni hér í þingsal.