Afstaða innviðaráðherra í þjóðaratkvæðagreiðslu

157. löggjafarþing Mál nr. 743 26. maí 2026 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
957 orð
2 flokkar
Flokkur fólksins Framsóknarflokkur

Ríkisstjórn

Eyjólfur Ármannsson
Flokkur fólksins
2 ræður 520 orð

Stjórnarandstaða

Þórarinn Ingi Pétursson
Framsóknarflokkur
2 ræður 437 orð

Tímalína umræðunnar

26. maí 2026
Þórarinn Ingi Pétursson Framsóknarflokkur ræða
272 orð
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir sín ágætu svör og sömuleiðis fyrir hversu hreinskilinn hann er hér í svörum við okkur hv. þingmenn þegar við erum að spyrja um ákveðin viðkvæm málefni, eins og kom fram í fyrirspurn hv. þm. Ólafs Adolfssonar hér rétt áðan. Ég ætla að vera á svipuðum slóðum og hv. þm. Ólafur Adolfsson varðandi það sem snýr að algerlega skýrum vilja Flokks fólksins þegar kemur að því hvort við viljum aðild að…

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir sín ágætu svör og sömuleiðis fyrir hversu hreinskilinn hann er hér í svörum við okkur hv. þingmenn þegar við erum að spyrja um ákveðin viðkvæm málefni, eins og kom fram í fyrirspurn hv. þm. Ólafs Adolfssonar hér rétt áðan. Ég ætla að vera á svipuðum slóðum og hv. þm. Ólafur Adolfsson varðandi það sem snýr að algerlega skýrum vilja Flokks fólksins þegar kemur að því hvort við viljum aðild að Evrópusambandinu eða ekki. Sá sem hér stendur hefur svo sem verið alveg skýr sömuleiðis og er skoðanabróðir Flokks fólksins hvað það varðar að aðild að Evrópusambandinu er ekki það sem er á dagskrá hjá mér. Sömuleiðis er ég hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er réttur okkar að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er líka réttur sérhvers manns að segja nei, ekki bara já, það er stórt og mikið atriði. Þar sem hæstv. innviðaráðherra hefur verið mjög skýr í sínum svörum, og það hefur svo sem líka komið fram hjá öðrum hæstv. ráðherrum hvað menn vilja og þeir koma sinni skoðun á framfæri þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi, ef af verður, þá vil ég spyrja: Hvað ætlar hæstv. innviðaráðherra að gera? Skoðun hæstv. ráðherra á hinum ýmsu gjörðum Evrópusambandsins hefur alveg legið fyrir í gegnum tíðina. Ég get vitnað í greinar í minni seinni fyrirspurn til ráðherra. En það er ekki nóg að segja að menn segi nei við aðild að Evrópusambandinu heldur spyr ég: Hvað ætlar hæstv. innviðaráðherra að gera þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslunni sem við ætlum jú að taka þátt í? Ætlar hæstv. innviðaráðherra að segja já eða nei?

Eyjólfur Ármannsson Flokkur fólksins ræða
258 orð
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst næstkomandi er leynileg atkvæðagreiðsla, höldum okkur við það. Ég ætla ekki að fara að birta atkvæðaseðilinn minn eða taka mynd af honum eða neitt svoleiðis og ég vona að enginn geri það. Ég hef verið þeirrar skoðunar að Íslandi hafi gengið vel í EES-samstarfinu, það er gríðarlega mikilvægt samstarf, einn mikilvægasti sáttmáli sem Ísland hefur gert síðan Gamli sáttmáli var…

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst næstkomandi er leynileg atkvæðagreiðsla, höldum okkur við það. Ég ætla ekki að fara að birta atkvæðaseðilinn minn eða taka mynd af honum eða neitt svoleiðis og ég vona að enginn geri það. Ég hef verið þeirrar skoðunar að Íslandi hafi gengið vel í EES-samstarfinu, það er gríðarlega mikilvægt samstarf, einn mikilvægasti sáttmáli sem Ísland hefur gert síðan Gamli sáttmáli var gerður 1262. Ég hef skrifað um það meira að segja út frá þeirri söguskoðun. Afstaða mín gagnvart ESB er líka skýr. Það má nálgast ræður mínar á vef Alþingis og mér skilst að ákveðnir þingmenn hafi verið að lesa þær ræður sér til fróðleiks í þessum umræðum sem hafa átt sér stað hér um þessa atkvæðagreiðslu og ég læt þar við sitja. Ég ítreka afstöðu flokksins sem kom fram í grein formannsins fyrir helgi um að Flokkur fólksins er ekki hlynntur aðild að ESB. Þetta er svona svipuð spurning og sú að ef þú ert á móti því að fara í gegnum ákveðnar dyr þá þarf ekki að spyrja: Þarf að opna dyrnar eða ekki? Þetta er augljóst mál. Ef þú ert andsnúinn ESB-aðild þá ætti að liggja ljóst fyrir hvort það ætti að sækja um aðild eða ekki. Það liggur alveg í hlutarins eðli. Ég vona að þetta svari spurningunni.

Ég tel að við eigum að gæta hagsmuna okkar innan EES-samningsins, sem er gríðarlega mikilvægt, t.d. í ETS-málunum og öðrum málum. Það þarf að gera það miklu meira í framtíðinni, bæði af embættismönnum og í pólitíkinni.

Þórarinn Ingi Pétursson Framsóknarflokkur ræða
165 orð
Frú forseti. Ég held að ég dragi allt til baka sem ég sagði áðan í minni fyrri fyrirspurn til hæstv. innviðaráðherra varðandi hreinskilin svör sem snúa að þessu. Ég skil svo sem ekki hvert menn eru að koma eða fara því ef menn eru algerlega yfirlýstir hvað það varðar að segja nei við aðild að Evrópusambandinu, til hvers þá að fara í viðræður? Það er akkúrat málið og það sem þetta snýst um. Það er lýðræðislegur réttur þjóðarinnar að taka afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu í…

Frú forseti. Ég held að ég dragi allt til baka sem ég sagði áðan í minni fyrri fyrirspurn til hæstv. innviðaráðherra varðandi hreinskilin svör sem snúa að þessu. Ég skil svo sem ekki hvert menn eru að koma eða fara því ef menn eru algerlega yfirlýstir hvað það varðar að segja nei við aðild að Evrópusambandinu, til hvers þá að fara í viðræður? Það er akkúrat málið og það sem þetta snýst um. Það er lýðræðislegur réttur þjóðarinnar að taka afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu í haust. Það er lýðræðislegur réttur hvers og eins hvað hann segir. Það er mjög mikilvægt. En þegar menn eru yfirlýstir andstæðingar þess að ganga í Evrópusambandið, til hvers eru menn þá að segja já við þjóðaratkvæðagreiðslu? Ég tek fram að hæstv. ráðherra sagði það ekki áðan heldur sagði að það væri sitt einkamál. Ég virði það við hann en aftur á móti liggur það alveg fyrir þegar menn eru á móti aðild að þá er þetta nú að verða ansi snúið.

Eyjólfur Ármannsson Flokkur fólksins ræða
262 orð
Virðulegur forseti. Ég vona að ég hafi verið mjög skýr með það að ég er ekki hlynntur aðild Íslands að ESB. Það er spurning ef þú hefur ekki áhuga á að ganga í eitthvert félag þá ferðu væntanlega ekki að sækja um að ganga í félagið. Svo einfalt er það. Atkvæðagreiðslan í ágúst er leynileg og ég held mig við það. Ég held að það liggi ljóst fyrir hvernig ég mun greiða atkvæði. Þá má líka lesa á milli línanna sem ég vona að hv. þingmaður geri. Hins vegar er það…

Virðulegur forseti. Ég vona að ég hafi verið mjög skýr með það að ég er ekki hlynntur aðild Íslands að ESB. Það er spurning ef þú hefur ekki áhuga á að ganga í eitthvert félag þá ferðu væntanlega ekki að sækja um að ganga í félagið. Svo einfalt er það. Atkvæðagreiðslan í ágúst er leynileg og ég held mig við það. Ég held að það liggi ljóst fyrir hvernig ég mun greiða atkvæði. Þá má líka lesa á milli línanna sem ég vona að hv. þingmaður geri. Hins vegar er það grundvallaratriði að þjóðin fái að segja álit sitt á þessu máli. Þetta hefur vofað yfir okkur í svolítinn tíma núna. Það var send umsókn á sínum tíma í ríkisstjórninni sem var 2009–2013 og núna mun þjóðin svara þeirri spurningu hvort það eigi að halda áfram með þessa umsókn eða ekki. Við erum öll hér inni ráðin af íslensku þjóðinni. Við megum aldrei gleyma því. Það eru okkar vinnuveitendur og ég tel að við eigum að gera meira af því að halda þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál og það á ekki að hafa áhrif á stjórnarsamstarfið eða stjórnarmeirihlutann á þingi. Það er ekki verið að kjósa um ríkisstjórn Íslands í þessum kosningum. Það er grundvallaratriði. Þjóðin er spurð þessarar einföldu spurningar: Á að halda áfram með þessa aðildarumsókn eða ekki? Afstaða Flokks fólksins er alveg skýr hvað það varðar og ég hvet hv. þingmann til að lesa grein okkar ágæta formanns í Flokki fólksins sem birtist í Morgunblaðinu um helgina sem heitir „Í dóm þjóðarinnar“. Við erum að leggja málið í dóm þjóðarinnar.