Upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB

157. löggjafarþing Mál nr. 707 29. apríl 2026 Sjá á Alþingi.is ↗
7 ræður
5 þingmenn
1.143 orð
3 flokkar
Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkur Viðreisn

Ríkisstjórn

Pawel Bartoszek
Viðreisn
1 ræða 186 orð

Stjórnarandstaða

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Miðflokkurinn
2 ræður 343 orð
Guðlaugur Þór Þórðarson
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 329 orð
Þorgrímur Sigmundsson
Miðflokkurinn
1 ræða 150 orð
Jón Gunnarsson
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 135 orð

Tímalína umræðunnar

29. apríl 2026
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokkurinn ræða
205 orð
Frú forseti. Á sameiginlegum fundi utanríkismálanefndar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis með fulltrúum Feneyjanefndarinnar í morgun var af hálfu gestanna lögð mikil áhersla á að spurning í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu eða viðræður við Evrópusambandið væri skiljanleg öllum og allir skildu hana á sama hátt. En það var ekki síður lögð áhersla á að það væri á hreinu hvað tæki við ef atkvæði yrðu greidd með tillögunni eða…

Frú forseti. Á sameiginlegum fundi utanríkismálanefndar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis með fulltrúum Feneyjanefndarinnar í morgun var af hálfu gestanna lögð mikil áhersla á að spurning í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu eða viðræður við Evrópusambandið væri skiljanleg öllum og allir skildu hana á sama hátt. En það var ekki síður lögð áhersla á að það væri á hreinu hvað tæki við ef atkvæði yrðu greidd með tillögunni eða meiri hluti fengist til að fallast á tillöguna. Þar vantar töluvert upp á. Fulltrúar Feneyjanefndarinnar bentu á að það gæti verið ráð að leita til Evrópusambandsins og fá svör frá því um það hvaða ferli taki við, hvernig verði brugðist við og hvað þurfi að gerast til að viðræður haldi áfram og með hvaða hætti þær viðræður verði. Ég nefni þetta hér, frú forseti, því að í mánuð hafa fulltrúar minni hlutans í utanríkismálanefnd beðið um að leitað yrði svara hjá Evrópusambandinu við nokkrum spurningum. Við því hefur enn ekki orðið. Við gerum enga kröfu um að þetta verði gert í krafti þingskapa, við gerum einfaldlega þá kröfu að utanríkismálanefnd Alþingis afli þeirra gagna sem nauðsynleg eru í þessu máli eins og utanríkismálanefnd hefur gert í stórum utanríkismálum í meira en öld eða þingið ella.

Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur ræða
178 orð
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Þekki ég málið nokkuð af því að ég hef setið nokkuð lengi í hv. utanríkismálanefnd. Það hefur verið farið mjög mjúklega að meiri hlutanum þegar menn hafa einfaldlega verið að biðja um það að fá þessar upplýsingar. Ástæðan fyrir því að það er farið mjúklega er einfaldlega vegna þess að það er miklu betra ef við erum að ræða hér um efni máls en ekki sífellt um vinnubrögð í hv. þingnefndum. Hv.…

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Þekki ég málið nokkuð af því að ég hef setið nokkuð lengi í hv. utanríkismálanefnd. Það hefur verið farið mjög mjúklega að meiri hlutanum þegar menn hafa einfaldlega verið að biðja um það að fá þessar upplýsingar. Ástæðan fyrir því að það er farið mjúklega er einfaldlega vegna þess að það er miklu betra ef við erum að ræða hér um efni máls en ekki sífellt um vinnubrögð í hv. þingnefndum. Hv. þingmaður nefndi hér mjög mikilvæga beiðni sem er búið að vera að sitja á en þar eru líka fleiri beiðnir um minnisblöð sem fóru fyrir ríkisstjórn þegar menn voru síðast í aðildarviðræðum, sem fóru fyrir utanríkismálanefnd, rýniskýrslurnar og fleiri gögn sem eru nauðsynleg til að taka áður en menn fara í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu.

Virðulegur forseti. Það er ekki endalaust hægt að vera ljúfur og góður. Það verður að koma sá tími að þingið, meiri hlutinn í þinginu og virðulegur forseti geri það sem á að gera og það er að koma fram með gögn.

Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokkur ræða
135 orð
Virðulegi forseti. Það er auðvitað mikið áhyggjuefni að hér þurfi menn stöðugt að vera að koma upp hér í þingsal og ítrekað á nefndafundum og kalla eftir því að ákveðnar upplýsingar verði lagðar fram í þessu stóra máli. Við erum að tala um þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er eitt stærsta mál sem hefur verið lagt fyrir þjóðina í áratugi. Það er einhver tregða hjá ríkisstjórnarflokkunum, bæði í nefndum og hér í þingsal, að leggja fram ítarlegar upplýsingar og leita eftir…

Virðulegi forseti. Það er auðvitað mikið áhyggjuefni að hér þurfi menn stöðugt að vera að koma upp hér í þingsal og ítrekað á nefndafundum og kalla eftir því að ákveðnar upplýsingar verði lagðar fram í þessu stóra máli. Við erum að tala um þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er eitt stærsta mál sem hefur verið lagt fyrir þjóðina í áratugi. Það er einhver tregða hjá ríkisstjórnarflokkunum, bæði í nefndum og hér í þingsal, að leggja fram ítarlegar upplýsingar og leita eftir ítarlegum upplýsingum. Þetta eru auðvitað ekki boðleg vinnubrögð, virðulegur forseti. Ríkisstjórnin og ríkisstjórnarflokkarnir hljóta að vera farin að gera sér grein fyrir því að þetta verður ekki meðhöndlað sem eitthvert grín eins og kynning á einhverjum húsnæðispökkum. Það er ekki hægt að bera þetta saman við slík mál. Hér er miklu stærra og alvarlegra mál á ferðinni.

Pawel Bartoszek Viðreisn ræða
186 orð
Virðulegur forseti. Til þess að reyna aðeins að skýra þetta mál fyrir þeim sem á hlýða þá kom fram fyrir nokkru beiðni af hálfu minni hlutans um upplýsingar til Evrópusambandsins. Nú er það þannig að 51. gr. þingskapa kveður á um upplýsingabeiðni til stjórnvalda og þar sem Ísland er ekki aðili að Evrópusambandinu þá hefur það verið túlkað þannig að þessi upplýsingabeiðni eigi fyrst og fremst við þegar um er að ræða spurningar til íslenskra stjórnvalda. Nú hefur þessi…

Virðulegur forseti. Til þess að reyna aðeins að skýra þetta mál fyrir þeim sem á hlýða þá kom fram fyrir nokkru beiðni af hálfu minni hlutans um upplýsingar til Evrópusambandsins. Nú er það þannig að 51. gr. þingskapa kveður á um upplýsingabeiðni til stjórnvalda og þar sem Ísland er ekki aðili að Evrópusambandinu þá hefur það verið túlkað þannig að þessi upplýsingabeiðni eigi fyrst og fremst við þegar um er að ræða spurningar til íslenskra stjórnvalda. Nú hefur þessi beiðni komið fram og er nokkuð óhefðbundið að biðja Evrópusambandið um upplýsingar með þessum hætti. Engu að síður kemur þessi umræða mér aðeins á óvart vegna þess að tillagan kom fram á fundinum áðan og formaður lagði fram skriflega breytingartillögu til þess að reyna að koma til móts við þetta sjónarmið. Það náðist ekki sátt um hana á fundinum þannig að málinu var frestað í von um að hægt væri að koma sér saman um texta sem við gætum öll staðið að baki. Þannig að það kemur mér dálítið á óvart að málið sé komið í fundarstjórn forseta þar sem ég taldi að málið væri í farvegi.

Þorgrímur Sigmundsson Miðflokkurinn ræða
150 orð
Frú forseti. Bara til að hnykkja á því í ljósi þess sem hér hefur komið fram: Á sameiginlegum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og utanríkismálanefndar í morgun með fulltrúum Feneyjanefndarinnar nóteraði ég hjá mér þessi ummæli sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er að vitna til. Í svari við spurningu kom fram að það væri kannski ráð að sækja einmitt þessar upplýsingar því það vissi enginn hvað tæki við. Það væri kannski eðlilegt í ljósi þess að óska eftir…

Frú forseti. Bara til að hnykkja á því í ljósi þess sem hér hefur komið fram: Á sameiginlegum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og utanríkismálanefndar í morgun með fulltrúum Feneyjanefndarinnar nóteraði ég hjá mér þessi ummæli sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er að vitna til. Í svari við spurningu kom fram að það væri kannski ráð að sækja einmitt þessar upplýsingar því það vissi enginn hvað tæki við. Það væri kannski eðlilegt í ljósi þess að óska eftir einhverju samtali eða frekari upplýsingum um málið. Hér er eingöngu verið að vitna í það sem sannarlega kom fram á fundinum. Fyrir mitt leyti þykir mér eðlilegt, frú forseti, að það verði tekið við þessum leiðbeiningum því þetta eru ekki einhverjir aðilar úti í bæ, þetta er bara stofnun á vegum Evrópusambandsins og fulltrúar hennar sem þarna eru að tjá sig. Ég held að þessar ráðleggingar hljóti að hafa talsvert mikið vægi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokkurinn ræða
138 orð
Frú forseti. Það sem hv. þm. Pawel Bartoszek nefnir hér og ég hefði kannski átt að nefna er að við höfum einnig gert athugasemdir við það, gerðum það á fundi í dag, að eftir þessa mánaðarbið skuli hv. formaður nefndarinnar koma með tillögu sem hann kallar breytingartillögu en er bara tillaga um eitthvað allt annað. Við erum að biðja um upplýsingar frá Evrópusambandinu og það er í krafti þingskapalaga. Utanríkismálanefnd Alþingis getur einfaldlega sent beiðni á …

Frú forseti. Það sem hv. þm. Pawel Bartoszek nefnir hér og ég hefði kannski átt að nefna er að við höfum einnig gert athugasemdir við það, gerðum það á fundi í dag, að eftir þessa mánaðarbið skuli hv. formaður nefndarinnar koma með tillögu sem hann kallar breytingartillögu en er bara tillaga um eitthvað allt annað. Við erum að biðja um upplýsingar frá Evrópusambandinu og það er í krafti þingskapalaga. Utanríkismálanefnd Alþingis getur einfaldlega sent beiðni á Evrópusambandið og spurt: Hafið þið kannski heyrt af því að hér er verið að ræða hugsanlegt aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu? Gætuð þið upplýst okkur um hvað taki við fari fram svona þjóðaratkvæðagreiðsla? Hvers vegna skyldum við ekki gera það? Utanríkismálanefnd Alþingis hefur frá upphafi leitað eftir upplýsingum þar sem þær er að fá og frá þeim aðilum sem við á hverju sinni.

Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur ræða
151 orð
Virðulegi forseti. Ég vil bara vekja athygli forseta á alvarleika þessa máls. Hér er verið að biðja um upplýsingar sem eiga erindi til þings og þjóðar. Reyndar er það þannig að hæstv. ríkisstjórn hefði átt að hafa frumkvæði að því að koma með þessar upplýsingar. Svo er ekki. Núna í margar vikur eru menn búnir að vera að biðja um upplýsingar. Það er alltaf grafalvarlegt mál, en sérstaklega í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu, að framkvæmdarvaldið haldi frá upplýsingum og…

Virðulegi forseti. Ég vil bara vekja athygli forseta á alvarleika þessa máls. Hér er verið að biðja um upplýsingar sem eiga erindi til þings og þjóðar. Reyndar er það þannig að hæstv. ríkisstjórn hefði átt að hafa frumkvæði að því að koma með þessar upplýsingar. Svo er ekki. Núna í margar vikur eru menn búnir að vera að biðja um upplýsingar. Það er alltaf grafalvarlegt mál, en sérstaklega í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu, að framkvæmdarvaldið haldi frá upplýsingum og þingnefndir noti meirihlutavald sitt til að halda aftur af upplýsingaöflun. Hæstv. utanríkisráðherra flutti sína skýrslu hér þar sem hún ræddi nákvæmlega þessi mál, hvað það væri alvarlegt þegar menn gengju svona fram í öðrum löndum. Menn verða að ganga hér á undan með góðu fordæmi. Þetta ætti ekki að vera eitthvert sérstaklega vont fordæmi. Þetta er eðlilegasti hlutur í heimi og það er grafalvarlegt mál að upplýsingum sé haldið frá þingi og frá þjóðinni.