Afstaða ráðherra í þjóðaratkvæðagreiðslu

157. löggjafarþing Mál nr. 559 16. mars 2026 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
1.030 orð
2 flokkar
Flokkur fólksins Sjálfstæðisflokkur

Ríkisstjórn

Inga Sæland
Flokkur fólksins
2 ræður 436 orð

Stjórnarandstaða

Bryndís Haraldsdóttir
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 594 orð

Tímalína umræðunnar

16. mars 2026
Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
340 orð
Virðulegur forseti. Já, ég er á svipuðum slóðum og hv. þingmaður sem var hér á undan mér. Ríkisstjórnin er svo sannarlega búin að setja ESB-aðild á dagskrá. Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt fram þingsályktunartillögu og talað fyrir því hér á þinginu allt frá árinu 2019 að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði dregin til baka. Hæstv. barna- og menntamálaráðherra og formaður Flokks fólksins hefur raunar sagt að engin ástæða sé til þess að Ísland kasti sér…

Virðulegur forseti. Já, ég er á svipuðum slóðum og hv. þingmaður sem var hér á undan mér. Ríkisstjórnin er svo sannarlega búin að setja ESB-aðild á dagskrá. Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt fram þingsályktunartillögu og talað fyrir því hér á þinginu allt frá árinu 2019 að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði dregin til baka. Hæstv. barna- og menntamálaráðherra og formaður Flokks fólksins hefur raunar sagt að engin ástæða sé til þess að Ísland kasti sér lengra í fangið á Evrópusambandinu en hún situr nú í ríkisstjórn sem hyggst hefja aðildarviðræður við ESB á ný. Kannski hefur Flokkur fólksins samþykkt þennan könnunarleiðangur til að halda ríkisstjórnarsamstarfinu saman en afstaða flokksins hefur lengi legið fyrir. Flokkurinn er ekki hallur undir aðild að ESB og ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að vera skýr hér áðan í því að það virðist enn vera afstaðan. Hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson orðaði það svo í ræðustól eitt sinn, með leyfi forseta:

„Því miður verður bara að segjast eins og er að Evrópusambandið tekur smáþjóðir og gleypir þær í einum bita í morgunmat. Þær eiga engan séns þarna inni, það er ekki möguleiki að eiga við þetta bákn.“

Því spyr ég hæstv. ráðherra í ljósi þessara ummæla og þeirra mála sem Flokkur fólksins hefur lagt fram hér á þingi: Hvernig hyggst hæstv. ráðherra greiða atkvæði í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu og hvernig hyggst flokkur hennar tala í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar? Nú hafa forsætisráðherra og utanríkisráðherra líka tjáð sig um nauðsynlegan stuðning þjóðarinnar í þessari atkvæðagreiðslu. Forsætisráðherra sagði hér fyrir kosningar að það væri eðlilegt að það væri aukinn meiri hluti, 70% á móti 30% var nefnt í því tilliti, en utanríkisráðherra hefur svarað því skýrt til að það sé bara einfaldur meiri hluti sem dugi. Hver er afstaða hæstv. ráðherra til þess? Dugar einfaldur meiri hluti, þ.e. 51% þeirra sem greiða atkvæði? Það er ekkert víst að það verði 100% kosningaþátttaka þannig að það kann vel að vera að minni hluti kosningarbærra aðila tjái sig með þeim hætti. Dugar það hæstv. ráðherra til að þessi vegferð verði hafin?

Inga Sæland Flokkur fólksins ræða
219 orð
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ágætisfyrirspurn. Var ég að ganga til liðs við ríkisstjórnina og líma hana saman með því að ganga þvert á stefnu mína og Flokks fólksins og einhvern veginn: já, já, þið megið gera þetta og hitt af því bara, við skulum reyna að líma okkur saman? Nei, hv. þingmaður, þetta var einfaldlega við stjórnarmyndunarborðið þegar við vorum ekki enn þá orðin ríkisstjórn. Það lá algerlega fyrir hjá mér frá degi eitt að ég…

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ágætisfyrirspurn. Var ég að ganga til liðs við ríkisstjórnina og líma hana saman með því að ganga þvert á stefnu mína og Flokks fólksins og einhvern veginn: já, já, þið megið gera þetta og hitt af því bara, við skulum reyna að líma okkur saman? Nei, hv. þingmaður, þetta var einfaldlega við stjórnarmyndunarborðið þegar við vorum ekki enn þá orðin ríkisstjórn. Það lá algerlega fyrir hjá mér frá degi eitt að ég virði þjóðina mína og þjóðarviljann og það er alltaf þjóðin og meiri hluti hennar sem á að eiga síðasta orðið. Ég er ekki alveg að átta mig á því hvers vegna hv. þingmaður og meiri hlutinn hér í stjórnarandstöðunni er skelfingu lostinn við þjóðina sína en samt getum við látið þau fara á þriggja ára fresti og velja sér valdhafa. Hvaða mistök eru það eiginlega? Hvað með lýðræðið, ég bara spyr? Og annað sem mér þótti alveg stórmerkilegt er: Hvernig ætlar hæstv. ráðherra Inga Sæland að greiða atkvæði? Á ég ekki bara að fara með seðilinn hérna niður á Austurvöll í beinni útsendingu til að sýna öllum hvernig ég ætla að greiða atkvæði? Er ekki allt í lagi? Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni. Það bara kemur akkúrat engum við hvernig ég greiði atkvæði. Áhugavert.

Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
254 orð
Virðulegur forseti. Þetta var mjög áhugavert. Þjóðin sem gekk að kjörborðinu fyrir rétt rúmu ári síðan og kaus á ekki einu sinni að fá að vita hvernig fulltrúar í einum stjórnarflokknum hyggjast tala í aðdraganda stærstu og mikilvægustu þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer. Það kemur engum við hvernig formaður Flokks fólksins hyggst greiða atkvæði í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu eða hvernig þingmenn hans tala í aðdragandanum. Fyrirgefið, virðulegur forseti, ég er bara…

Virðulegur forseti. Þetta var mjög áhugavert. Þjóðin sem gekk að kjörborðinu fyrir rétt rúmu ári síðan og kaus á ekki einu sinni að fá að vita hvernig fulltrúar í einum stjórnarflokknum hyggjast tala í aðdraganda stærstu og mikilvægustu þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer. Það kemur engum við hvernig formaður Flokks fólksins hyggst greiða atkvæði í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu eða hvernig þingmenn hans tala í aðdragandanum. Fyrirgefið, virðulegur forseti, ég er bara eiginlega orðlaus. Hæstv. ráðherra hefur lýst því eindregið yfir að hann sé á móti aðild að Evrópusambandinu. Hér í þessum ræðustól hefur ítrekað heyrst að þau vilji ekki ganga lengra. Þau vildu taka þær höfnu samningaviðræður fyrir einhverjum árum síðan til baka. Nú á að greiða atkvæði um að halda áfram með þessar viðræður og þau vilja ekki einu sinni segja okkur hvernig þau ætla að kjósa.

Virðulegur forseti. Ég er algjörlega bit en verð þá ég að bæta við einni spurningu í viðbót: Telur hæstv. ráðherra ásættanlegt að Ísland verði aðili að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni? Og vegna þess að það kom eitt skýrt fram á blaðamannafundinum þegar þessi þingsályktunartillaga var tilkynnt, þegar blaðamaður spurði hæstv. ríkisstjórn um það hvort samningsmarkmiðin yrðu þau sömu og síðast og þá sagði hæstv. ráðherra: Nei, nei, nei, en í þingsályktunartillögunni sem hér liggur fyrir er bara fjallað um þau samningsmarkmið sem þá lágu fyrir. Hver eru samningsmarkmiðin? Hvaða umboð gefur hæstv. ráðherra samstarfsráðherra sínum í ríkisstjórn til að fara til Brussel og setjast við borðið? Hver eru rauðu strikin hjá hæstv. ráðherra?

Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutímann.

Inga Sæland Flokkur fólksins ræða
217 orð
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Ég er farin að halda að ég tali eitthvað annað tungumál en íslensku. Ég bara botna ekkert orðið í þessu. Skilur enginn hvað ég er að segja? Er ég eitthvað óskýr? Í fyrsta lagi langar mig til að nefna það hvers vegna Flokkur fólksins kom ítrekað með það mál inn í þingið að draga til baka — eða í rauninni ekkert draga til baka heldur vildum við fá úr því skorið, því þarna var mikið japl, jaml og fuður um það…

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Ég er farin að halda að ég tali eitthvað annað tungumál en íslensku. Ég bara botna ekkert orðið í þessu. Skilur enginn hvað ég er að segja? Er ég eitthvað óskýr? Í fyrsta lagi langar mig til að nefna það hvers vegna Flokkur fólksins kom ítrekað með það mál inn í þingið að draga til baka — eða í rauninni ekkert draga til baka heldur vildum við fá úr því skorið, því þarna var mikið japl, jaml og fuður um það hvort þessi aðildarumsókn, sem var á tímum vinstri stjórnarinnar svokallaðrar eftir hrun, væri raunverulega dregin til baka eða ekki. Við vildum bara fá út úr því skorið. Var þessi umsókn gild eða var hún það ekki? Var nóg fyrir hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson og vini hans að senda bréf til Brussel, án þess að setja það fyrir þingið, um að hér væri bara búið að setja aðildarviðræðurnar ofan í skúffu? Það er einfaldasti hlutur í heimi að fá að vita það. Svo get ég upplýst hv. þingmann um það að þrátt fyrir hennar góða og einbeitta vilja til að ráða því hvernig ég tjái mig og kem fram þá er það mesti misskilningur. Hér eftir sem hingað til mun ég algerlega geta séð um það sjálf.