Athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB

157. löggjafarþing Mál nr. 551 9. mars 2026 Sjá á Alþingi.is ↗
40 ræður
25 þingmenn
5.755 orð
5 flokkar
Framsóknarflokkur Miðflokkurinn Samfylkingin Sjálfstæðisflokkur Viðreisn

Ríkisstjórn

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Viðreisn
2 ræður 304 orð
Pawel Bartoszek
Viðreisn
2 ræður 286 orð
Ingvar Þóroddsson
Viðreisn
2 ræður 233 orð
Guðmundur Ari Sigurjónsson
Samfylkingin
1 ræða 187 orð
María Rut Kristinsdóttir
Viðreisn
1 ræða 134 orð
Logi Einarsson
Samfylkingin
1 ræða 117 orð

Stjórnarandstaða

Bergþór Ólason
Miðflokkurinn
2 ræður 358 orð
Sigríður Á. Andersen
Miðflokkurinn
2 ræður 358 orð
Guðrún Hafsteinsdóttir
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 349 orð
Jens Garðar Helgason
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 337 orð
Ingibjörg Davíðsdóttir
Miðflokkurinn
2 ræður 332 orð
Rósa Guðbjartsdóttir
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 329 orð
Diljá Mist Einarsdóttir
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 312 orð
Guðlaugur Þór Þórðarson
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 257 orð
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Miðflokkurinn
2 ræður 251 orð
Jóhann Friðrik Friðriksson
Framsóknarflokkur
2 ræður 241 orð
Jón Gunnarsson
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 240 orð
Karl Gauti Hjaltason
Miðflokkurinn
2 ræður 235 orð
Bryndís Haraldsdóttir
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 221 orð
Þorgrímur Sigmundsson
Miðflokkurinn
2 ræður 203 orð
Eiríkur S. Svavarsson
Miðflokkurinn
1 ræða 157 orð
Njáll Trausti Friðbertsson
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 142 orð
Jón Pétur Zimsen
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 90 orð
Sigurður Örn Hilmarsson
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 82 orð

Tímalína umræðunnar

9. mars 2026
Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
140 orð
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að upplýsa hæstv. forseta um alvarlega athugasemd stjórnarandstöðunnar á fundi hv. utanríkismálanefndar í morgun um að hæstv. ráðherra hafi ekki viðhaft lögbundið samráð við nefndina í tengslum við þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég sé að hæstv. ráðherra er mætt í dag. Sömuleiðis gerði stjórnarandstaðan alvarlegar athugasemdir við það að hæstv. ráðherra hafi ekki mætt á fund nefndarinnar í morgun þrátt fyrir…

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að upplýsa hæstv. forseta um alvarlega athugasemd stjórnarandstöðunnar á fundi hv. utanríkismálanefndar í morgun um að hæstv. ráðherra hafi ekki viðhaft lögbundið samráð við nefndina í tengslum við þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég sé að hæstv. ráðherra er mætt í dag. Sömuleiðis gerði stjórnarandstaðan alvarlegar athugasemdir við það að hæstv. ráðherra hafi ekki mætt á fund nefndarinnar í morgun þrátt fyrir eindregnar óskir þar um, sömuleiðis athugasemdir við að ekki hafi verið viðhaft opið samráð við almenning áður en þingsályktunartillagan var lögð fram eins og þó er skylt samkvæmt gildandi ríkisstjórnarsamþykkt. Það er með ólíkindum að lesa um fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu á erlendum ESB-miðlum á meðan farið er á svig við lög og reglur hér í þinginu um samráð við þingið og um samráð við almenning. Þetta er nú öll virðingin fyrir þjóð og þingi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokkurinn ræða
116 orð
Frú forseti. Ég hvet yður til að taka athugasemdir hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur alvarlega. Það er ekki nóg með að ríkisstjórnin skuli hafa falið Evrópusambandsbrölt sitt fyrir þjóðinni heldur hefur hún líka leitast við að fela það fyrir Alþingi og þar með brotið lög. Í 24. gr. þingskapa segir, með leyfi forseta: „Utanríkismálanefnd skal, auk verkefna sem hún hefur skv. 13. gr., vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál enda skal …

Frú forseti. Ég hvet yður til að taka athugasemdir hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur alvarlega. Það er ekki nóg með að ríkisstjórnin skuli hafa falið Evrópusambandsbrölt sitt fyrir þjóðinni heldur hefur hún líka leitast við að fela það fyrir Alþingi og þar með brotið lög. Í 24. gr. þingskapa segir, með leyfi forseta:

„Utanríkismálanefnd skal, auk verkefna sem hún hefur skv. 13. gr., vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál enda skal ríkisstjórnin ávallt bera fyrir fram undir hana slík mál jafnt á þingtíma sem í þinghléum, nema brýn nauðsyn banni.“

Ég ætlast til þess að hæstv. forseti, sem segist vera forseti okkar allra hér á Alþingi, bregðist við þessum brotum hæstv. utanríkisráðherra og ríkisstjórnarinnar.

Jóhann Friðrik Friðriksson Framsóknarflokkur ræða
128 orð
Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til að taka undir með kollegum mínum, þingmönnum, og lýsa vonbrigðum mínum hvað þetta varðar. Nú sat ég með hæstv. utanríkisráðherra í utanríkismálanefnd á síðasta þingi og ég held og er nánast fullviss um að hún væri sammála okkur, hún væri örugglega sammála okkur. Þetta er mjög stórt mál. Það hefur legið fyrir að þetta kæmi inn í þingið. Samráð við utanríkismálanefnd er algerlega hafið yfir vafa. Þetta hryggir mig og mér finnast…

Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til að taka undir með kollegum mínum, þingmönnum, og lýsa vonbrigðum mínum hvað þetta varðar. Nú sat ég með hæstv. utanríkisráðherra í utanríkismálanefnd á síðasta þingi og ég held og er nánast fullviss um að hún væri sammála okkur, hún væri örugglega sammála okkur. Þetta er mjög stórt mál. Það hefur legið fyrir að þetta kæmi inn í þingið. Samráð við utanríkismálanefnd er algerlega hafið yfir vafa. Þetta hryggir mig og mér finnast þetta ekki vera góð vinnubrögð. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál og ég vonast til þess að við munum lagfæra þetta hið snarasta. Við erum að fara að taka hér, eins og allir vita, eitt stærsta mál samtímans á Íslandi til umræðu og við hljótum að geta sýnt betri vinnubrögð.

Þorgrímur Sigmundsson Miðflokkurinn ræða
90 orð
Frú forseti. Ég kem hér til að taka undir með kollegum mínum, hv. þingmönnum, um að hér berist okkur til eyrna frá nefndarmönnum utanríkismálanefndar að hæstv. utanríkisráðherra hafi neitað að koma fyrir nefndina í morgun. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson las hér upp 24. gr. þingskapalaga áðan og það er ekkert hægt að skilja þetta öðruvísi en svo að þarna sé hæstv. ráðherra að brjóta þingskapalög, í það minnsta, til að hafa vaðið fyrir neðan mig, í það minnsta að…

Frú forseti. Ég kem hér til að taka undir með kollegum mínum, hv. þingmönnum, um að hér berist okkur til eyrna frá nefndarmönnum utanríkismálanefndar að hæstv. utanríkisráðherra hafi neitað að koma fyrir nefndina í morgun. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson las hér upp 24. gr. þingskapalaga áðan og það er ekkert hægt að skilja þetta öðruvísi en svo að þarna sé hæstv. ráðherra að brjóta þingskapalög, í það minnsta, til að hafa vaðið fyrir neðan mig, í það minnsta að sýna hv. nefnd og þinginu þar með öllu algera vanvirðingu.

Ingibjörg Davíðsdóttir Miðflokkurinn ræða
163 orð
Virðulegur forseti. Mig langar að taka undir orð kollega minna í stjórnarandstöðunni. Það er náttúrlega með ólíkindum að það sé þannig að hæstv. utanríkisráðherra hafi neitað að koma á fund utanríkismálanefndar í morgun og ræða þetta mikilvæga mál. Brot á 24. gr. þingskapalaga, segir hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Það er náttúrlega bara hryggilegt ef ráðamenn þjóðarinnar brjóta þingskapalög með þessum hætti. Þetta er risastórt mál og ég skil ekki hvers vegna…

Virðulegur forseti. Mig langar að taka undir orð kollega minna í stjórnarandstöðunni. Það er náttúrlega með ólíkindum að það sé þannig að hæstv. utanríkisráðherra hafi neitað að koma á fund utanríkismálanefndar í morgun og ræða þetta mikilvæga mál. Brot á 24. gr. þingskapalaga, segir hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Það er náttúrlega bara hryggilegt ef ráðamenn þjóðarinnar brjóta þingskapalög með þessum hætti. Þetta er risastórt mál og ég skil ekki hvers vegna hæstv. utanríkisráðherra sér ekki sóma sinn í því að mæta fyrir nefndina. Og af hverju var málið ekki sett í samráðsgátt? Af hverju var málið ekki sett í samráðsgátt? Það er stórundarlegt og mér hefur líka borist það til eyrna að hæstv. utanríkisráðherra muni mögulega koma seinna fyrir nefndina, væntanlega þá þegar þessi umræða er búin. Það er líka stórundarlegt. Það væri nú bara við hæfi að það yrði gerð frestun á þessum þingfundi hér í dag og utanríkismálanefnd kölluð saman þannig að hæstv. ráðherra gæti farið yfir málið með nefndinni.

Þórunn Sveinbjarnardóttir ræða
Ingvar Þóroddsson Viðreisn ræða
94 orð
Virðulegi forseti. Þessar ásakanir um brot á þingskapalögum eru náttúrlega bara hlægilegar. Þessi ákvæði í þingskapalögunum eru augljóslega þarna inni til þess að koma í veg fyrir að ríkisstjórnir taki einhliða ákvarðanir um breytingar á utanríkisstefnu landsins án aðkomu Alþingis eða samráðs við Alþingi. Hér erum við að tala um þingmál sem felur í sér samráð við þjóðina um næstu skref sem eigi að taka sem er á leiðinni inn til þingsins í þinglega meðferð hjá…

Virðulegi forseti. Þessar ásakanir um brot á þingskapalögum eru náttúrlega bara hlægilegar. Þessi ákvæði í þingskapalögunum eru augljóslega þarna inni til þess að koma í veg fyrir að ríkisstjórnir taki einhliða ákvarðanir um breytingar á utanríkisstefnu landsins án aðkomu Alþingis eða samráðs við Alþingi. Hér erum við að tala um þingmál sem felur í sér samráð við þjóðina um næstu skref sem eigi að taka sem er á leiðinni inn til þingsins í þinglega meðferð hjá utanríkismálanefnd, þannig að ég vísa þessum fáránlega málflutningi um að hér sé verið að brjóta þingskapalög til föðurhúsanna.

Sigríður Á. Andersen Miðflokkurinn ræða
165 orð
Virðulegur forseti. Það er ljótt að heyra lýsingar hv. þingmanna sem sitja í hv. utanríkismálanefnd vegna gestakomu vegna þessa máls. Það hefði verið full ástæða til þess fyrir hæstv. utanríkisráðherra að mæta á fund utanríkismálanefndar til að ræða málið áður en það fer í umræðu en ekki eftir að fyrri umræðu er mögulega lokið. Ég vildi hins vegar koma hingað upp til að gera athugasemdir við málið á fyrri stigum. Enn og aftur boðar þessi ríkisstjórn til blaðamannafundar…

Virðulegur forseti. Það er ljótt að heyra lýsingar hv. þingmanna sem sitja í hv. utanríkismálanefnd vegna gestakomu vegna þessa máls. Það hefði verið full ástæða til þess fyrir hæstv. utanríkisráðherra að mæta á fund utanríkismálanefndar til að ræða málið áður en það fer í umræðu en ekki eftir að fyrri umræðu er mögulega lokið. Ég vildi hins vegar koma hingað upp til að gera athugasemdir við málið á fyrri stigum. Enn og aftur boðar þessi ríkisstjórn til blaðamannafundar til að kynna mál sem þingmönnum og þinginu hefur ekki verið kynnt áður. Á föstudaginn í hádeginu var boðað til blaðamannafundar til að kynna þingsályktunartillögu um þetta mikla mál sem menn vita að þjóðin skiptist í tvö horn um. Það var boðað til blaðamannafundar og það liðu margar klukkustundir þar til almennum þingmönnum gafst tækifæri til þess að kynna sér efni þingsályktunartillögunnar, það liðu margar klukkustundir þar sem þingmenn þurftu að lesa umfjöllun og jafnvel vangaveltur stjórnmálaskýrenda um málið. Þetta, virðulegur forseti, er óásættanleg framkoma gagnvart þingmönnum.

Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur ræða
122 orð
Virðulegur forseti. Því miður er það orðin regla, ekki undantekning, að það þarf að gera athugasemdir við framgang hæstv. ríkisstjórnar þegar kemur að Alþingi Íslendinga. Ég vil vekja athygli ykkar á því að hér kom hv. stjórnarþingmaður og túlkaði þingskapalögin með þeim hætti að allt það sem hefur verið gert frá því að þetta fór inn í þingskapalögin varðandi samráð við utanríkismálanefnd er orðinn dauður bókstafur. Ég held, virðulegi forseti, að ef hér er forysta…

Virðulegur forseti. Því miður er það orðin regla, ekki undantekning, að það þarf að gera athugasemdir við framgang hæstv. ríkisstjórnar þegar kemur að Alþingi Íslendinga. Ég vil vekja athygli ykkar á því að hér kom hv. stjórnarþingmaður og túlkaði þingskapalögin með þeim hætti að allt það sem hefur verið gert frá því að þetta fór inn í þingskapalögin varðandi samráð við utanríkismálanefnd er orðinn dauður bókstafur. Ég held, virðulegi forseti, að ef hér er forysta þingsins sem er umhugað um þingið þá tel ég einsýnt að virðulegur þingforseti setjist nú niður með hæstv. ríkisstjórn og útskýri fyrir henni hvernig vinnubrögðin hafa verið hér á þessum vinnustað svo lengi sem elstu menn muna vegna þess að þetta er að fara í fullkomnar ógöngur.

Pawel Bartoszek Viðreisn ræða
146 orð
Virðulegi forseti. Nú er það þannig að á þessu þingi sem öðrum hafa verið lagðar fram þó nokkrar þingsályktunartillögur. Það er ekki þannig að ráðherrar tilkynni utanríkismálanefnd alltaf deginum áður að hann eða hún hyggist leggja umrædda þingsályktunartillögu fram. Ég deili auðvitað þeirri túlkun að hér sé um að ræða ákvæði ef það á að taka einhverja ákvörðun þar sem er verið að tala við einhverja útlendinga í útlöndum um eitthvað en ekki að leggja fram…

Virðulegi forseti. Nú er það þannig að á þessu þingi sem öðrum hafa verið lagðar fram þó nokkrar þingsályktunartillögur. Það er ekki þannig að ráðherrar tilkynni utanríkismálanefnd alltaf deginum áður að hann eða hún hyggist leggja umrædda þingsályktunartillögu fram. Ég deili auðvitað þeirri túlkun að hér sé um að ræða ákvæði ef það á að taka einhverja ákvörðun þar sem er verið að tala við einhverja útlendinga í útlöndum um eitthvað en ekki að leggja fram þingsályktunartillögu sem á eftir að fara í þinglega meðferð. Ég skil því ekki alveg hvert stjórnarandstaðan er að fara. En ef menn eru svona duglegir við að koma upp geta þeir kannski lýst þeirri skoðun hvort það að draga til baka eða segjast draga til baka umsókn að Evrópusambandinu feli í sér meiri háttar ákvörðun í utanríkismálum og hvort slíka ákvörðun eigi að bera undir utanríkismálanefnd þegar þar að kemur.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn ræða
140 orð
Virðulegi forseti. Eitt fallegasta samráð sem ríkisstjórn hvers tíma getur haft er samráð við þjóðina, að leita til þjóðarinnar um að fá niðurstöðu í ákveðið mál sem hafa verið skiptar skoðanir á í áraraðir. Fallegra samráð að mínu mati getur ríkisstjórn hvers tíma ekki boðað heldur en einmitt að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um slíkt mál. Hitt er síðan, og tala ég líka af reynslu eins og sumir ættu að gera hér í þingsal, að mér finnst miður hvað sumir þingmenn gera…

Virðulegi forseti. Eitt fallegasta samráð sem ríkisstjórn hvers tíma getur haft er samráð við þjóðina, að leita til þjóðarinnar um að fá niðurstöðu í ákveðið mál sem hafa verið skiptar skoðanir á í áraraðir. Fallegra samráð að mínu mati getur ríkisstjórn hvers tíma ekki boðað heldur en einmitt að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um slíkt mál. Hitt er síðan, og tala ég líka af reynslu eins og sumir ættu að gera hér í þingsal, að mér finnst miður hvað sumir þingmenn gera lítið úr störfum þingsins. Þingið er að fá núna þingsályktunartillöguna. Þá fer hún til hv. utanríkismálanefndar þar sem boðaðir verða gestir, sérfræðingar boðaðir, þar sem þetta mikilvæga mál, sem er fyrst og síðast innanríkismál, mun verða rætt í þaula. Þannig að ég bið ykkur í hv. stjórnarandstöðu: Ekki gera lítið úr þinginu og ekki gera lítið úr okkur sjálfum.

Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
172 orð
Virðulegi forseti. Mig langar til að þakka hv. þingmönnum Ingvari Þórhallssyni og Pawel Bartoszek fyrir lögspekina. Lagatextinn er skýr: Samráð er skylt þegar um meiri háttar utanríkismál er að ræða og þegar meiri háttar utanríkismál er skal ávallt leita samráðs fyrir fram. Þetta er ekki flókið. En hins vegar voru athugasemdir stjórnarandstöðunnar á fundi nefndarinnar í morgun þríþættar og ég heyrði það að hv. þingmenn vildu síður minnast á hinar athugasemdirnar.…

Virðulegi forseti. Mig langar til að þakka hv. þingmönnum Ingvari Þórhallssyni og Pawel Bartoszek fyrir lögspekina. Lagatextinn er skýr: Samráð er skylt þegar um meiri háttar utanríkismál er að ræða og þegar meiri háttar utanríkismál er skal ávallt leita samráðs fyrir fram. Þetta er ekki flókið. En hins vegar voru athugasemdir stjórnarandstöðunnar á fundi nefndarinnar í morgun þríþættar og ég heyrði það að hv. þingmenn vildu síður minnast á hinar athugasemdirnar. Annars vegar er það samráðsleysið við almenning. Þó að hv. þm. Ingvar Þóroddsson og hæstv. ráðherra komi hér upp og tali um samráð við þjóðina þá er þegar búið að brjóta gegn reglum um samráð við þjóðina sem eru reglur um að mál skuli vera sett í samráðsgáttina. Hins vegar varðandi gestakomu hæstv. ráðherra sem talar um það hér í pontu að verið sé að gera lítið úr þingstörfum. Við hæstv. ráðherra langar mig að segja að hæstv. ráðherra, sem neitar að koma á fund utanríkismálanefndar til að ræða meiri háttar utanríkismál, hún er að gera lítið úr þingstörfum. Heyr, heyr.

Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
221 orð
Virðulegi forseti. Já, ég ætla að fá að taka undir þá gagnrýni sem fram hefur komið hér frá stjórnarandstöðu. Mig langar að nefna sérstaklega þetta varðandi samráðsleysið. Það er æpandi hvað þessi ríkisstjórn hefur ákveðið að virða að vettugi reglur um samráð áður en mál koma hingað inn í þingið. Ég er reyndar með fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra um einmitt þetta mál — það eru reyndar þrír mánuðir síðan ég lagði fyrirspurnina fram á meðan ráðuneyti hafa almennt um…

Virðulegi forseti. Já, ég ætla að fá að taka undir þá gagnrýni sem fram hefur komið hér frá stjórnarandstöðu. Mig langar að nefna sérstaklega þetta varðandi samráðsleysið. Það er æpandi hvað þessi ríkisstjórn hefur ákveðið að virða að vettugi reglur um samráð áður en mál koma hingað inn í þingið. Ég er reyndar með fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra um einmitt þetta mál — það eru reyndar þrír mánuðir síðan ég lagði fyrirspurnina fram á meðan ráðuneyti hafa almennt um þrjár vikur til að svara slíkum fyrirspurnum — einmitt um það hversu mörg mál hafa ekki farið í samráð eða ekki notið fulls samráðs. Ég er mjög hissa á því að ríkisstjórnin hafi ekki ákveðið að setja þetta stóra mál sitt í samráðsgátt. Ég hygg til að mynda að þá værum við að ræða athugasemdir sem höfðu komið fram varðandi skýrleika, varðandi kostnaðarmat sem er ekki neitt eða varðandi dagsetninguna sem er líka mjög sérkennileg.

Virðulegur forseti. Síðan ég kynntist hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, og settist á þing 2016 þá hefur hún ítrekað sagt að fólk vilji ekki ræða um Evrópusambandið. Þess vegna kemur mjög á óvart að hæstv. ráðherra hafi ekki viljað mæta fyrir utanríkismálanefnd í morgun til að ræða einmitt það. Nú erum við að ræða Evrópusambandið. Við ættum öll að vera rosalega glöð yfir því, er það ekki?

Karl Gauti Hjaltason Miðflokkurinn ræða
111 orð
Frú forseti. Málið er ekki sett í samráðsgátt. Málið er fyrst kynnt og við þingmenn fáum fyrst að sjá þetta mál eftir blaðamannafund sem ríkisstjórnin heldur. Málið er sem sagt kynnt fyrir fjölmiðlum áður en þingmönnum þjóðarinnar er kynnt innihald málsins. Ríkisstjórnin kemur fram við þingið eins og algjört aukaatriði, sem er kannski einmitt það sem þau stefna að; að þingið hér verði algjört aukaatriði, íslenska löggjafarþingið. Stjórnin vinnur allt þetta mál með…

Frú forseti. Málið er ekki sett í samráðsgátt. Málið er fyrst kynnt og við þingmenn fáum fyrst að sjá þetta mál eftir blaðamannafund sem ríkisstjórnin heldur. Málið er sem sagt kynnt fyrir fjölmiðlum áður en þingmönnum þjóðarinnar er kynnt innihald málsins. Ríkisstjórnin kemur fram við þingið eins og algjört aukaatriði, sem er kannski einmitt það sem þau stefna að; að þingið hér verði algjört aukaatriði, íslenska löggjafarþingið. Stjórnin vinnur allt þetta mál með öfugum afturklónum. Svo neitar hæstv. utanríkisráðherra að mæta fyrir utanríkismálanefnd þrátt fyrir klára og skýra skyldu til þess í þingskapalögum. Þetta er allt unnið með öfugum afturklónum og þetta er algjör fljótaskrift strax hér, fyrstu skref þessa máls.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn ræða
164 orð
Virðulegi forseti. Það er margboðuð þingsályktunartillaga sem er að koma núna til umræðu hér á eftir. Ég hef líka sagt að ég muni mæta á fund á fimmtudaginn á nefndadegi þingsins fyrir utanríkismálanefnd eftir að þetta mál hefur komið hér til umfjöllunar og ég undirstrika að í þessu stóra innanríkismáli, sem þetta mál í rauninni er, er ekki hægt að hafa fallegra og betra og skilvirkara samráð en einmitt við þjóðina okkar, að eiga þetta samtal og hlusta síðan á hennar…

Virðulegi forseti. Það er margboðuð þingsályktunartillaga sem er að koma núna til umræðu hér á eftir. Ég hef líka sagt að ég muni mæta á fund á fimmtudaginn á nefndadegi þingsins fyrir utanríkismálanefnd eftir að þetta mál hefur komið hér til umfjöllunar og ég undirstrika að í þessu stóra innanríkismáli, sem þetta mál í rauninni er, er ekki hægt að hafa fallegra og betra og skilvirkara samráð en einmitt við þjóðina okkar, að eiga þetta samtal og hlusta síðan á hennar niðurstöðu og virða niðurstöðuna, að fara með þetta mál fyrir þjóðina og biðja hana að greiða atkvæði: Já, ég vil vita meira eða nei, ég vil ekki vita meira. Svo einfalt er þetta. En það sem ég fæ á tilfinninguna eftir allar þessar ræður og upphrópanir hér enn og aftur er að ég er bara sannfærð um að því oftar sem er farið inn í málið á þessum forsendum, því hræddari er stjórnarandstaðan við þjóðina. Í guðanna bænum, treystið þjóðinni fyrir þessu máli.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokkurinn ræða
135 orð
Forseti. Ég vek athygli hæstv. forseta á því að hann á mikið verkefni fyrir höndum því ósvífni hæstv. utanríkisráðherra virðist vera takmarkalaus. Ekki nóg með það að hæstv. ráðherra neiti að mæta fyrir utanríkismálanefnd og kynna málið fyrr en að lokinni fyrri umræðu heldur kemur hæstv. ráðherra hér upp og segir að það þurfi í rauninni ekkert að ræða við utanríkismálanefnd af því að fallegasta samráðið sé samráðið við þjóðina. Þetta segir ráðherra sem er búin að…

Forseti. Ég vek athygli hæstv. forseta á því að hann á mikið verkefni fyrir höndum því ósvífni hæstv. utanríkisráðherra virðist vera takmarkalaus. Ekki nóg með það að hæstv. ráðherra neiti að mæta fyrir utanríkismálanefnd og kynna málið fyrr en að lokinni fyrri umræðu heldur kemur hæstv. ráðherra hér upp og segir að það þurfi í rauninni ekkert að ræða við utanríkismálanefnd af því að fallegasta samráðið sé samráðið við þjóðina. Þetta segir ráðherra sem er búin að vera á endalausum fundum í Brussel að plotta á bak við þjóðina, að undirbúa aðgerð sem þjóðin fékk fyrst að heyra eftir að erlendir fjölmiðlar höfðu upplýst um það eftir heimildarmönnum sínum í Brussel. Þetta er þjóðin sem hæstv. ráðherra þykist bera svo mikla virðingu fyrir að fegurð samráðs við hana trompi lagalega skyldu hæstv. ráðherra gagnvart Alþingi.

Þorgrímur Sigmundsson Miðflokkurinn ræða
113 orð
Frú forseti. Hæstv. utanríkisráðherra kemur hér og talar um fegurð og samráð og að fegursta samráðið sé við þjóðina. Ég átta mig ekki alveg á því hvernig fegurðin lítur út í aðdraganda kosninga þegar forystufólk í þessari ríkisstjórn tók hreinlega málið af dagskrá og vildi alls ekki senda út nein önnur skilaboð en þau að þetta væri ekki forgangsmál og myndi bíða þangað til að tökum hefði verið náð á öðrum brýnni málum hérna heima fyrir. Þetta er enn eitt málið þar sem…

Frú forseti. Hæstv. utanríkisráðherra kemur hér og talar um fegurð og samráð og að fegursta samráðið sé við þjóðina. Ég átta mig ekki alveg á því hvernig fegurðin lítur út í aðdraganda kosninga þegar forystufólk í þessari ríkisstjórn tók hreinlega málið af dagskrá og vildi alls ekki senda út nein önnur skilaboð en þau að þetta væri ekki forgangsmál og myndi bíða þangað til að tökum hefði verið náð á öðrum brýnni málum hérna heima fyrir. Þetta er enn eitt málið þar sem það er að koma í ljós að það er ekkert að marka, ekki neitt, það sem forystufólk þessarar ríkisstjórnar sagði í aðdraganda kosninganna. Það er nú öll fegurðin, hæstv. utanríkisráðherra.

Jóhann Friðrik Friðriksson Framsóknarflokkur ræða
113 orð
Frú forseti. Þjóðin kaus þingmenn hér inni til að gæta sinna hagsmuna og sýna aðhald gagnvart ríkisstjórn. Það vita allir sem vita eitthvað um þingsköp að um utanríkismálanefnd gilda algerlega sérreglur. Í 24. gr. þingskapalaga, eins og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fór hér yfir, ber ráðherra að bera stór utanríkismál undir nefndina. Það er algjörlega skýrt. Og þegar verið er að tala um fallegt samráð — já, auðvitað er það fallegt samráð að leggja þetta til og…

Frú forseti. Þjóðin kaus þingmenn hér inni til að gæta sinna hagsmuna og sýna aðhald gagnvart ríkisstjórn. Það vita allir sem vita eitthvað um þingsköp að um utanríkismálanefnd gilda algerlega sérreglur. Í 24. gr. þingskapalaga, eins og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fór hér yfir, ber ráðherra að bera stór utanríkismál undir nefndina. Það er algjörlega skýrt. Og þegar verið er að tala um fallegt samráð — já, auðvitað er það fallegt samráð að leggja þetta til og ekki ætla ég að vera á móti þjóðaratkvæðagreiðslu, en fallegt samráð á sér líka stað í samráðsgátt og í utanríkismálanefnd. Það skiptir máli að við vinnum þessi mál öllsömul vel og vandlega, einmitt fyrir þjóðina.

Pawel Bartoszek Viðreisn ræða
140 orð
Virðulegur forseti. Við erum öll sammála um að ef hæstv. ráðherra hefði ákveðið að sækja um aðild að Evrópusambandinu án þess að tala við þingið eða nefndina, þá væri það brot á þingskapalögum, en kannski gegnir öðru máli þegar um er að ræða þingsályktunartillögu sem er lögð fram. En mig langar að bera upp spurningu til forseta. Nú er það þannig að formanni barst ósk um það seinni part föstudags að ráðherra kæmi fyrir fund nefndarinnar. Formaður vann úr þeirri ósk um…

Virðulegur forseti. Við erum öll sammála um að ef hæstv. ráðherra hefði ákveðið að sækja um aðild að Evrópusambandinu án þess að tala við þingið eða nefndina, þá væri það brot á þingskapalögum, en kannski gegnir öðru máli þegar um er að ræða þingsályktunartillögu sem er lögð fram. En mig langar að bera upp spurningu til forseta. Nú er það þannig að formanni barst ósk um það seinni part föstudags að ráðherra kæmi fyrir fund nefndarinnar. Formaður vann úr þeirri ósk um helgina og tilkynnti síðan þeim sem hafði beðið um þetta seinni part sunnudags um að ráðherra myndi mæta á fund nefndarinnar á fimmtudegi og fékk engin frekari viðbrögð við því.

Telur forseti að þarna hafi annaðhvort formaður nefndarinnar eða hæstv. ráðherra gerst brotlegur við þingskapalög hvað þetta varðar? Að um óeðlilegan hægagang hafi verið að ræða eða hvað?

Sigríður Á. Andersen Miðflokkurinn ræða
193 orð
Virðulegur forseti. Það er óþolandi fyrir þingmenn að sitja undir þessum skætingi sem hæstv. utanríkisráðherra lætur yfir þingheim ganga hér með vísun til samráðs við þjóðina þegar ekki bara í þingskapalögum er gert ráð fyrir samráði eða í lögum heldur sérstaklega í samþykktum ríkisstjórnarinnar. Í samþykktum ríkisstjórnarinnar frá árinu 2023 er sérstaklega kveðið á um samráð, ekki bara í einni grein heldur tveimur. Þannig er sérstaklega fjallað um það í 3. gr. að það…

Virðulegur forseti. Það er óþolandi fyrir þingmenn að sitja undir þessum skætingi sem hæstv. utanríkisráðherra lætur yfir þingheim ganga hér með vísun til samráðs við þjóðina þegar ekki bara í þingskapalögum er gert ráð fyrir samráði eða í lögum heldur sérstaklega í samþykktum ríkisstjórnarinnar. Í samþykktum ríkisstjórnarinnar frá árinu 2023 er sérstaklega kveðið á um samráð, ekki bara í einni grein heldur tveimur. Þannig er sérstaklega fjallað um það í 3. gr. að það skuli hafa opið samráð við almenning og gefa almenningi kost á umsögnum og ábendingum. Þetta eigi þó ekki við ef sérstök rök mæla gegn slíkri birtingu. Ég hlýt að spyrja: Hvaða sérstöku rök hafa legið til þess að setja þetta mál ekki í samráð? Það er sérstaklega nefnt í 9. gr. samþykktar ríkisstjórnar Íslands að frumvarp eða þingsályktunartillaga sem varðar málefnasvið annars ráðuneytis skuli bera sérstaklega undir viðkomandi ráðuneyti á undirbúningsstigi og veita almenningi tækifæri til þess að veita umsögn um málið og hafa samráð þannig við almenning. Hvaða brýnu rök stóðu til þess að viðhafa ekki þessar reglur sem sjálf ríkisstjórn Íslands setti sér árið 2023? Ég hlýt að spyrja að því og óska eftir svörum við því.

Bergþór Ólason Miðflokkurinn ræða
184 orð
Frú forseti. Hæstv. utanríkisráðherra segir að þetta sé margboðað mál. Hv. þingmaður, þingflokksformaður Samfylkingar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, kallar hér fram í að þetta sé í stjórnarsáttmálanum. Það hittist bara þannig á að þetta er ekki í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Það er ekki í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar og var þess vegna ekki partur af þeirri yfirferð sem þingmenn í utanríkismálanefnd fengu við upphaf þings þegar það kom saman í september. Að láta að…

Frú forseti. Hæstv. utanríkisráðherra segir að þetta sé margboðað mál. Hv. þingmaður, þingflokksformaður Samfylkingar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, kallar hér fram í að þetta sé í stjórnarsáttmálanum. Það hittist bara þannig á að þetta er ekki í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Það er ekki í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar og var þess vegna ekki partur af þeirri yfirferð sem þingmenn í utanríkismálanefnd fengu við upphaf þings þegar það kom saman í september. Að láta að því liggja að þetta sé bara eitthvað sem allir máttu eiga von á vegna þess að þetta stóð í stjórnarsáttmálanum, eða hvað sem þau kalla þetta núna, er því alger útúrsnúningur. Ég bara bið virðulegan forseta að hlutast til um þetta og reyna að koma skikki á það með hvaða hætti ríkisstjórnin leggur hér mál fram í þinginu því það er ekki út af engu sem ríkisstjórn kynnir þingmálaskrár sínar og fer með kynningu þingmála fyrir sinni fagnefnd með þeim hætti sem gert er. Ekkert af því átti við um þetta mál. Sérstaklega þess vegna er eðlilegt að þetta mál sé rætt við hv. utanríkismálanefnd áður en það kemur hingað til meðferðar í þinginu.

Jens Garðar Helgason Sjálfstæðisflokkur ræða
172 orð
Virðulegur forseti. Hér erum við með ríkisstjórn sem er búin að gefast upp á því verkefni að reyna að ná tökum á vöxtum og verðbólgu og atvinnuleysi í landinu. Við erum með ríkisstjórn sem ákveður að setja ekki í samráð við þjóðina eitt stærsta mál seinni tíma, setur það ekki í samráð. Af hverju ekki? Af því að það á að keyra þetta mál í gegnum þingið af því að það hentar hæstv. ríkisstjórn að við séum að tala hér um Evrópusambandið og atkvæðagreiðslur í staðinn fyrir…

Virðulegur forseti. Hér erum við með ríkisstjórn sem er búin að gefast upp á því verkefni að reyna að ná tökum á vöxtum og verðbólgu og atvinnuleysi í landinu. Við erum með ríkisstjórn sem ákveður að setja ekki í samráð við þjóðina eitt stærsta mál seinni tíma, setur það ekki í samráð. Af hverju ekki? Af því að það á að keyra þetta mál í gegnum þingið af því að það hentar hæstv. ríkisstjórn að við séum að tala hér um Evrópusambandið og atkvæðagreiðslur í staðinn fyrir að tala um það sem skiptir þjóðina máli í dag, sem er verðbólga, atvinnuleysi og háir vextir. Þetta er ástæðan. Það á að fara í kosningar 29. ágúst af því að það á ekki að eiga alvörusamtal við þjóðina í aðdraganda kosninganna þegar þjóðin er í sumarfríi og fólk vill njóta sumarsins með sínum nánustu. Þetta er ríkisstjórnin sem segist ekki vera hrædd við þjóðina en akkúrat allar þessar dagsetningar og þessar tímalínur sýna að hér er að verki ríkisstjórn sem er hrædd við þjóðina.

Logi Einarsson Samfylkingin ræða
117 orð
Virðulegur forseti. Mér finnst næstum því eins og við séum farin að rífast um keisarans skegg hérna. Það dylst engum að málið kemur fram í dagsljósið. Utanríkismálanefnd á eftir að fjalla um þetta mjög vel og lengi milli tveggja umræðna. Þetta er í hverjum einasta þætti. Það er ekki hægt að kveikja á útvarpinu án þess að maður heyri þingmenn vera að tjá sig um málið þannig að þetta mun fá mjög mikla efnislega umræðu. Það í hvaða röð nákvæmlega þetta er gert — þetta er…

Virðulegur forseti. Mér finnst næstum því eins og við séum farin að rífast um keisarans skegg hérna. Það dylst engum að málið kemur fram í dagsljósið. Utanríkismálanefnd á eftir að fjalla um þetta mjög vel og lengi milli tveggja umræðna. Þetta er í hverjum einasta þætti. Það er ekki hægt að kveikja á útvarpinu án þess að maður heyri þingmenn vera að tjá sig um málið þannig að þetta mun fá mjög mikla efnislega umræðu. Það í hvaða röð nákvæmlega þetta er gert — þetta er farið að minna mig á verkfræðinginn sem ég vann með sem keyrði alltaf upp Brekkuna, kom inn á skrifstofu og sagði mér að hann væri að fara að senda mér „e-mail“.

Ingvar Þóroddsson Viðreisn ræða
139 orð
Frú forseti. Ég sé mig knúinn til að koma hingað upp og bregðast við orðum hv. þingmanns Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem kemur hingað upp og ásakar hæstv. ráðherra um plott á bak við þjóðina. Óvífni, þvílík ósvífni. Hér er um að ræða að þjóðin fái að segja sitt um hvort eigi að halda áfram þeirri vegferð sem farið var af stað með árið 2009. Mér finnst þetta koma úr hörðustu átt frá hv. þingmanni sem lofaði þjóðinni því í aðdraganda kosninga 2013 að hún fengi að…

Frú forseti. Ég sé mig knúinn til að koma hingað upp og bregðast við orðum hv. þingmanns Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem kemur hingað upp og ásakar hæstv. ráðherra um plott á bak við þjóðina. Óvífni, þvílík ósvífni. Hér er um að ræða að þjóðin fái að segja sitt um hvort eigi að halda áfram þeirri vegferð sem farið var af stað með árið 2009. Mér finnst þetta koma úr hörðustu átt frá hv. þingmanni sem lofaði þjóðinni því í aðdraganda kosninga 2013 að hún fengi að segja sitt um það hvort ætti að halda áfram eða ekki og það var ekki gert. Það var sent eitthvert bréf og ekki í samráði við utanríkismálanefnd, ekki í samráði við Alþingi, ekki í samráði við þjóðina. Ef það er ekki plott á bak við þjóðina þá veit ég ekki hvað það er.

Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur ræða
135 orð
Virðulegi forseti. Keisarans skegg. Það er nafn stjórnarliða á lögum í landinu, keisarans skegg, og á við einhverja ekki-skeptísku frá Akureyri. Það stendur skýrt í lögunum fyrir fram; meiri háttar utanríkismál. Hér kemur hæstv. utanríkisráðherra og talar um fallegt samráð. Það er nýtt hugtak. Hvað er ljótt samráð, hæstv. utanríkisráðherra? Er það að fylgja lögum? Er hæstv. utanríkisráðherra farinn að titra, kannski aðeins af ástæðu, að kalla þetta mál…

Virðulegi forseti. Keisarans skegg. Það er nafn stjórnarliða á lögum í landinu, keisarans skegg, og á við einhverja ekki-skeptísku frá Akureyri. Það stendur skýrt í lögunum fyrir fram; meiri háttar utanríkismál. Hér kemur hæstv. utanríkisráðherra og talar um fallegt samráð. Það er nýtt hugtak. Hvað er ljótt samráð, hæstv. utanríkisráðherra? Er það að fylgja lögum? Er hæstv. utanríkisráðherra farinn að titra, kannski aðeins af ástæðu, að kalla þetta mál innanríkismál? Því að hæstv. ráðherra má lifa með því að það er ekki lögmætt samráð, hvorki við almenning né hv. utanríkismálanefnd, en fallega samráðið er við bjúrókrata í Brussel.

Virðulegi forseti. Það er ekki fallegt að fara á bak við þjóðina og plotta við bjúrókrata í Brussel og við vitum það vegna þess að fyrstu fregnir af þessu máli, fyrstu fregnir, virðulegi forseti, komu frá Brussel.

María Rut Kristinsdóttir Viðreisn ræða
134 orð
Virðulegur forseti. Þetta eru um margt fyrirsjáanleg viðbrögð sem við sjáum hér í dag. Hér er einfaldlega um að ræðu tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu á grundvelli ákvæða kosningalaga og áform ríkisstjórnarinnar um að halda þessa atkvæðagreiðslu hafa legið fyrir frá því að stefnuyfirlýsing hennar kom fram þannig að allt tal um leyndarhyggju og leynimakk við einhverja embættismenn í Brussel er algerlega fjarstæðukennd umræða. Þetta hefur legið fyrir frá upphafi og …

Virðulegur forseti. Þetta eru um margt fyrirsjáanleg viðbrögð sem við sjáum hér í dag. Hér er einfaldlega um að ræðu tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu á grundvelli ákvæða kosningalaga og áform ríkisstjórnarinnar um að halda þessa atkvæðagreiðslu hafa legið fyrir frá því að stefnuyfirlýsing hennar kom fram þannig að allt tal um leyndarhyggju og leynimakk við einhverja embættismenn í Brussel er algerlega fjarstæðukennd umræða. Þetta hefur legið fyrir frá upphafi og ætti ekki að koma neinum á óvart. Það að tefja málið eitthvað frekar er alger óþarfi. Ég hlakka til að eiga þessa umræðu hér í þingsal í dag. Ég segi: Byrjum bara umræðuna, tökumst á, förum málefnalega yfir það hvort við viljum fá að vita meira eða ekki. Ég hlakka til að taka þetta samtal. En í guðanna bænum, hættum þessu leikriti. Þetta er hjákátlegt.

Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokkur ræða
240 orð
Virðulegur forseti. Þá erum við með skilaboðin frá hæstv. ráðherra, Loga Einarssyni. Við eigum bara að hlusta á útvarpið til að fá upplýsingar um mikilvæg mál. Það er merkilegt að þau skuli ekki bara segja okkur að við þurfum ekki að mæta í vinnuna. En,virðulegur forseti, þetta mál ber allt yfirbragð Icesave-deilunnar og vinnubragðanna sem áttu sér stað í henni, þetta minnir mjög á hana. Þá var þetta sama fólk sem vildi hraða í gegn allri niðurstöðu. Þá mátti reyndar…

Virðulegur forseti. Þá erum við með skilaboðin frá hæstv. ráðherra, Loga Einarssyni. Við eigum bara að hlusta á útvarpið til að fá upplýsingar um mikilvæg mál. Það er merkilegt að þau skuli ekki bara segja okkur að við þurfum ekki að mæta í vinnuna. En,virðulegur forseti, þetta mál ber allt yfirbragð Icesave-deilunnar og vinnubragðanna sem áttu sér stað í henni, þetta minnir mjög á hana. Þá var þetta sama fólk sem vildi hraða í gegn allri niðurstöðu. Þá mátti reyndar almenningur ekki segja sína skoðun. Við lögðum til þjóðaratkvæðagreiðslu þá en það mátti ekki. En almenningur tók til sín völdin.

Virðulegur forseti. Ég óttast að þessi vinnubrögð sem hæstv. utanríkisráðherra viðhefur í þessu máli núna gagnvart utanríkismálanefnd og þinginu séu forsmekkurinn að vinnubrögðum í nefndarstörfunum. Við höfum ítrekað þurft að koma hingað upp og kvarta yfir því hvernig yfirgangi er beitt í nefndum þegar við erum að biðja um gestakomur og reyna að fjalla ítarlega um mál. Ég vil því beina því til virðulegs forseta að í þessu máli brýni hann sérstaklega fyrir forystu utanríkismálanefndar að vanda til málsmeðferðar þannig að við þurfum ekki að koma hér upp vegna þess að okkur sé ítrekað neitað um að fá mikilvæga gesti á fundi, þannig að það sé hægt að fjalla af alvöru um þessi mál. Þetta er alvörumál, virðulegur forseti, og það má ekki líða að slík dónavinnubrögð sem hafa verið viðhöfð í nefndum undanfarið verði viðhöfð í þessu mikilvæga máli.

Karl Gauti Hjaltason Miðflokkurinn ræða
124 orð
Frú forseti. Ríkisstjórnin hefur gefist upp á því að berjast við vextina og verðbólguna. Hún hefur gefist upp á því. Sleggjunni hefur verið komið fyrir inni í kústaskáp ríkisstjórnarinnar. Úrræði hennar er að tromma upp og boða til blaðamannafundar þar sem tilkynnt er um þessa þingsályktunartillögu og við fengum fyrst að vita um efni hennar á þeim blaðamannafundi. Þessi tillaga er ekki sett í samráðsgátt og hæstv. utanríkisráðherra neitar að koma fyrir…

Frú forseti. Ríkisstjórnin hefur gefist upp á því að berjast við vextina og verðbólguna. Hún hefur gefist upp á því. Sleggjunni hefur verið komið fyrir inni í kústaskáp ríkisstjórnarinnar. Úrræði hennar er að tromma upp og boða til blaðamannafundar þar sem tilkynnt er um þessa þingsályktunartillögu og við fengum fyrst að vita um efni hennar á þeim blaðamannafundi. Þessi tillaga er ekki sett í samráðsgátt og hæstv. utanríkisráðherra neitar að koma fyrir utanríkismálanefnd eins og henni er þó skylt samkvæmt þingskapalögum, frú forseti. Þegar svona augljóst brot á þingskapalögum á sér stað, er ekki ráð að forseti taki þetta til gaumgæfilegrar athugunar og þegar hæstv. ráðherra neitar að koma fyrir utanríkismálanefnd og brýtur þar með þingsköp með svona berum hætti eins og þarna er?

Eiríkur S. Svavarsson Miðflokkurinn ræða
157 orð
Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin fellur algerlega á fyrsta prófinu þegar kemur að þessari þingsályktunartillögu sem við munum ræða hér síðar í dag. Ég velti því fyrir mér hvort fólkið í landinu eigi ekki betra skilið. Það heyrir fyrst af þessari þjóðaratkvæðagreiðslu í erlendum fjölmiðlum. Síðan er hér haldinn blaðamannafundur um þingsályktunartillögu sem fyllir ekki einu sinni fjórar blaðsíður. Það er ekkert í þessari þingsályktunartillögu um lykilspurningar sem fólk í…

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin fellur algerlega á fyrsta prófinu þegar kemur að þessari þingsályktunartillögu sem við munum ræða hér síðar í dag. Ég velti því fyrir mér hvort fólkið í landinu eigi ekki betra skilið. Það heyrir fyrst af þessari þjóðaratkvæðagreiðslu í erlendum fjölmiðlum. Síðan er hér haldinn blaðamannafundur um þingsályktunartillögu sem fyllir ekki einu sinni fjórar blaðsíður. Það er ekkert í þessari þingsályktunartillögu um lykilspurningar sem fólk í þessu landi þarf að fá að vita þegar það fer í þessa atkvæðagreiðslu. Það er ekkert um samningsmarkmið þessarar ríkisstjórnar, bara þessarar sem var í aðildarviðræðum hér fyrir 15 árum að verða. Það er ekkert þarna um kostnað af aðild að Evrópusambandinu. Það er ekkert um kostnað af aðildarferlinu sjálfu. Ég vil bara að lokum taka heils hugar undir það sem stjórnarandstöðuþingmenn hafa hér sagt: Þetta er þvílíkt mál að utanríkisráðherra hefði átt og á og ber að koma fyrir utanríkismálanefnd og það fyrst þegar málið fer til umræðu.

Jón Pétur Zimsen Sjálfstæðisflokkur ræða
90 orð
Frú forseti. Hæstv. ríkisstjórn kemur nú fram með mál til að beina athyglinni frá getuleysi sínu hvað vexti, verðbólgu og vaxandi atvinnuleysi varðar. Frú forseti. Þeir sem eru hræddir vilja ekki samráð. Það er eðli málsins samkvæmt. Það er ekkert fallegt samráð við þjóðina í gegnum samráðsgátt en til þess er samráðsgáttin. Það er ekkert fallegt samráð við utanríkismálanefnd og ekkert fallegt samráð við þingið fyrir fram. Eina fallega samráðið sem viðhaft hefur verið…

Frú forseti. Hæstv. ríkisstjórn kemur nú fram með mál til að beina athyglinni frá getuleysi sínu hvað vexti, verðbólgu og vaxandi atvinnuleysi varðar.

Frú forseti. Þeir sem eru hræddir vilja ekki samráð. Það er eðli málsins samkvæmt. Það er ekkert fallegt samráð við þjóðina í gegnum samráðsgátt en til þess er samráðsgáttin. Það er ekkert fallegt samráð við utanríkismálanefnd og ekkert fallegt samráð við þingið fyrir fram. Eina fallega samráðið sem viðhaft hefur verið er fallegt samráð við skoðanabræður í ESB. Það er staðan á þessu í dag, frú forseti.

Rósa Guðbjartsdóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
180 orð
Virðulegur forseti. Mig langar að taka undir þá gagnrýni sem kom fram hérna hjá kollegum mínum á vinnubrögð þessa máls og ekki síst á viðbrögð þeirra þingmanna stjórnarmeirihlutans sem hafa komið hingað upp og lýst því yfir að hér sé verið að setja upp leikrit, þetta sé hjákátlegt og þar fram eftir götunum. Við skulum átta okkur á því að þetta er eitt stærsta hagsmunamál okkar þjóðar í áratugi og jafnvel lengri tíma en það. Þetta snýst um fullveldi okkar þjóðar sem við…

Virðulegur forseti. Mig langar að taka undir þá gagnrýni sem kom fram hérna hjá kollegum mínum á vinnubrögð þessa máls og ekki síst á viðbrögð þeirra þingmanna stjórnarmeirihlutans sem hafa komið hingað upp og lýst því yfir að hér sé verið að setja upp leikrit, þetta sé hjákátlegt og þar fram eftir götunum. Við skulum átta okkur á því að þetta er eitt stærsta hagsmunamál okkar þjóðar í áratugi og jafnvel lengri tíma en það. Þetta snýst um fullveldi okkar þjóðar sem við erum svo stolt af þannig að við skulum líka átta okkur á því að það að fara í þessa atkvæðagreiðslu sem flestir eru sammála um að skuli borin undir þjóðina — þetta snýst ekki bara um að halda einhverju áfram og kíkja í pakkann, eins og það hefur verið kallað. Um leið og farið verður í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu erum við að stíga gríðarlega stórt skref í átt að inngöngu í Evrópusambandið. Þetta er ekki bara eitthvert formsatriði um áframhald, við erum að stíga mjög stórt skref þangað inn og við þurfum öll að átta okkur á því.

Sigurður Örn Hilmarsson Sjálfstæðisflokkur ræða
82 orð
Forseti. Alþingi Íslendinga getur um margt verið skrýtinn vinnustaður en botninn dettur samt úr þegar ég hlýði á hæstv. utanríkisráðherra væna okkur í stjórnarandstöðunni um að treysta ekki þjóðinni en lætur það vera að nefna það að hér var brotið gegn samþykkt ríkisstjórnarinnar um vandaða lagasetningu sem gerir akkúrat ráð fyrir því að samráð sé haft við þjóðina við undirbúning þingsályktunartillögu eins og við erum að ræða hér um og ráðherrann verður að svara fyrir…

Forseti. Alþingi Íslendinga getur um margt verið skrýtinn vinnustaður en botninn dettur samt úr þegar ég hlýði á hæstv. utanríkisráðherra væna okkur í stjórnarandstöðunni um að treysta ekki þjóðinni en lætur það vera að nefna það að hér var brotið gegn samþykkt ríkisstjórnarinnar um vandaða lagasetningu sem gerir akkúrat ráð fyrir því að samráð sé haft við þjóðina við undirbúning þingsályktunartillögu eins og við erum að ræða hér um og ráðherrann verður að svara fyrir það hvers vegna þetta var ekki gert.

Ingibjörg Davíðsdóttir Miðflokkurinn ræða
169 orð
Frú forseti. Ekki gera lítið úr þinginu, segir hæstv. utanríkisráðherra, og dylgjar jafnframt um að stjórnarandstaðan sé hrædd við þjóðina, dylgjar um það. Ég veit ekki hver það er sem er hræddur við þjóðina annar en hæstv. utanríkisráðherra sjálfur. Hér er það utanríkisráðherrann sem gerir lítið úr Alþingi Íslendinga. Það er utanríkisráðherrann sjálfur sem gerir lítið úr Alþingi Íslendinga. Það er nefnilega skylda að eiga samráð samkvæmt 24. gr. þingskapalaga og ég…

Frú forseti. Ekki gera lítið úr þinginu, segir hæstv. utanríkisráðherra, og dylgjar jafnframt um að stjórnarandstaðan sé hrædd við þjóðina, dylgjar um það. Ég veit ekki hver það er sem er hræddur við þjóðina annar en hæstv. utanríkisráðherra sjálfur. Hér er það utanríkisráðherrann sem gerir lítið úr Alþingi Íslendinga. Það er utanríkisráðherrann sjálfur sem gerir lítið úr Alþingi Íslendinga. Það er nefnilega skylda að eiga samráð samkvæmt 24. gr. þingskapalaga og ég ætla að lesa hana aftur upp þó að það hafi verið gert á fyrri stigum, með leyfi forseta:

„Utanríkismálanefnd skal, auk verkefna sem hún hefur skv. 13. gr., vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál enda skal ríkisstjórnin ávallt bera fyrir fram undir hana slík mál jafnt á þingtíma sem í þinghléum, nema brýn nauðsyn banni.“

Hver er þessi brýna nauðsyn sem bannar að slíkt samráð skuli vera viðhaft? Hæstv. utanríkisráðherra ætti að sjá sóma sinn í því að koma hér upp og skýra út fyrir þingheimi hver þessi brýna nauðsyn er sem banni þetta samráð.

Guðrún Hafsteinsdóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
202 orð
Frú forseti. Ég ætla ekki að fara að munnhöggvast við hæstv. utanríkisráðherra. Ég veit ekki hvað hún er búin að segja oft orðin „þjóð mína“ hér í dag og nú er það þannig að þetta er þjóðkjörið þing. Hér ber að virða Alþingi og mér hefur þótt dapurt og við höfum komið hér ítrekað í fundarstjórn forseta þegar stjórnarmeirihlutinn hefur vaðið yfir minni hlutann í nefndum. Hér hefur ekki verið viðhaft lögbundið samráð. Framganga ráðherra í utanríkismálum og samráðsleysi…

Frú forseti. Ég ætla ekki að fara að munnhöggvast við hæstv. utanríkisráðherra. Ég veit ekki hvað hún er búin að segja oft orðin „þjóð mína“ hér í dag og nú er það þannig að þetta er þjóðkjörið þing. Hér ber að virða Alþingi og mér hefur þótt dapurt og við höfum komið hér ítrekað í fundarstjórn forseta þegar stjórnarmeirihlutinn hefur vaðið yfir minni hlutann í nefndum. Hér hefur ekki verið viðhaft lögbundið samráð. Framganga ráðherra í utanríkismálum og samráðsleysi hefur verið algjört og því verður hæstv. utanríkisráðherra að lifa með. Ég ætla að fá að nefna sem dæmi að við fréttum það í útlöndum að það ætti að skrifa undir varnarsamstarf við Evrópusambandið og svo fréttum við líka sömuleiðis að fyrir utanríkismálanefnd hefur heldur ekki komið samvinnusamningur um sjálfbærar veiðar sem hæstv. atvinnuvegaráðherra skrifaði undir. Ég vil beina því til forseta: Getur minni hlutinn treyst því, frú forseti, að forseti muni tryggja að öll málsmeðferð þessa máls í utanríkismálanefnd verði tryggð og að þeir gestir sem kallað verður eftir fái að koma fyrir nefndina? Að orðið verði við beiðnum um þau álit sem kallað verður eftir og álitum erlendra sérfræðinga og svigrúm gefið til þess? Ég óska eftir svari frá virðulegum forseta.

Bergþór Ólason Miðflokkurinn ræða
174 orð
Frú forseti. Hv. þingmaður María Rut Kristinsdóttir hélt því fram áðan að það væri ekkert leynimakk í tengslum við þetta mál eins og það liggur fyrir. En þá er hv. þingmaður mögulega búinn að gleyma því að hér í óundirbúnum fyrirspurnum þann 16. febrúar síðastliðinn upplýsti hæstv. forsætisráðherra um það að í kjölfar viðræðna við ónefnda háttsetta embættismenn í Brussel hefði skilningur hæstv. ráðherra verið sá að það væri um eitthvað að semja. Auðvitað er þetta ekkert…

Frú forseti. Hv. þingmaður María Rut Kristinsdóttir hélt því fram áðan að það væri ekkert leynimakk í tengslum við þetta mál eins og það liggur fyrir. En þá er hv. þingmaður mögulega búinn að gleyma því að hér í óundirbúnum fyrirspurnum þann 16. febrúar síðastliðinn upplýsti hæstv. forsætisráðherra um það að í kjölfar viðræðna við ónefnda háttsetta embættismenn í Brussel hefði skilningur hæstv. ráðherra verið sá að það væri um eitthvað að semja. Auðvitað er þetta ekkert annað en eitthvert leynimakk sem síðan undirbyggir það með hvaða hætti málið er lagt fram í þinginu núna. Þetta er allt á sömu bókina lært. Þetta er einhver flótti frá eðlilegri meðferð þessa máls. Leynimakkið er augljóst og beinlínis staðfest af hæstv. forsætisráðherra. Auðvitað má forsætisráðherra hverju sinni tala við hvern sem viðkomandi sýnist en að láta að því liggja að það hafi ekki verið nein undirbúningsvinna með háttsettum embættismönnum í Brussel hvað þetta varðar er útúrsnúningur og ég gef mér að hv. þm. María Rut Kristinsdóttir hafi ekki munað eftir þessum óundirbúna fyrirspurnatíma 16. febrúar síðastliðinn.

Guðmundur Ari Sigurjónsson Samfylkingin ræða
187 orð
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp undir fundarstjórn forseta til að lýsa ákveðnum vonbrigðum varðandi framgöngu minni hlutans sem kemur hérna móður og másandi upp í pontu til að þyrla upp ryki og kasta rýrð á þá þinglegu meðferð sem er fram undan. Við erum einfaldlega með einfalda þingsályktunartillögu fyrir framan okkur: Eigum við að leyfa þjóðinni að greiða atkvæði um næstu skref um hvort við viljum halda áfram aðildarviðræðum við ESB eða ekki? Það er sú…

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp undir fundarstjórn forseta til að lýsa ákveðnum vonbrigðum varðandi framgöngu minni hlutans sem kemur hérna móður og másandi upp í pontu til að þyrla upp ryki og kasta rýrð á þá þinglegu meðferð sem er fram undan. Við erum einfaldlega með einfalda þingsályktunartillögu fyrir framan okkur: Eigum við að leyfa þjóðinni að greiða atkvæði um næstu skref um hvort við viljum halda áfram aðildarviðræðum við ESB eða ekki? Það er sú þingsályktunartillaga sem liggur fyrir. Hér er mikið af myndavélum. Hér eru margir að horfa. Hér eru margir spenntir fyrir umræðunni um það að þjóðin fái loksins tækifæri til að ákveða næstu skref í þessu máli. Fyrir rúmlega tíu árum síðan var þetta tækifæri tekið af þjóðinni þegar ríkisstjórn sem hafði lofað þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna dró umsókn einhliða til baka eða setti á ís, eins og það hefur verið kallað. Núna höfum við tækifæri til að vinda ofan af þessu, færa valdið til þjóðarinnar og treysta þjóðinni fyrir næstu skrefum. Nei, við skulum koma hingað hlaupandi, móð og másandi og finna allt því til foráttu að þjóðin fái að ráða.

Guðrún Hafsteinsdóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
147 orð
Frú forseti. Ég bíð enn eftir svari frá forseta hvort forseti ætli að tryggja það að málsmeðferð þessa máls verði með eðlilegum hætti í utanríkismálanefnd, að hér verði eðlilegar gestakomur, að orðið verði við beiðnum sem stjórnarminnihlutinn mun óska eftir um álit, hvort sem það er innlendra sérfræðinga eða erlendra. Mér finnst líka hv. þingmaður og þingflokksformaður Samfylkingar skauta ansi léttilega yfir þetta mál þegar hann segir: Við hvað eruð þið hrædd? Hér er um…

Frú forseti. Ég bíð enn eftir svari frá forseta hvort forseti ætli að tryggja það að málsmeðferð þessa máls verði með eðlilegum hætti í utanríkismálanefnd, að hér verði eðlilegar gestakomur, að orðið verði við beiðnum sem stjórnarminnihlutinn mun óska eftir um álit, hvort sem það er innlendra sérfræðinga eða erlendra. Mér finnst líka hv. þingmaður og þingflokksformaður Samfylkingar skauta ansi léttilega yfir þetta mál þegar hann segir: Við hvað eruð þið hrædd? Hér er um einfalda þingsályktunartillögu að ræða. Það er reynt að gera eins lítið úr þessu máli eins og hægt er, einu stærsta máli seinni tíma í íslenskri pólitík. Þetta er bara einfalt mál. Þetta er einföld þingsályktunartillaga.

Frú forseti. Er ekki rétt, og ég geri það að tillögu minni, að forseti fresti þessari umræðu hér í dag þangað til að ráðherra er búinn að kynna málið fyrir utanríkismálanefnd eins og honum ber að gera?

Rósa Guðbjartsdóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
149 orð
Virðulegur forseti. Mig langar líka til að koma aðeins inn á það í ljósi þess hve þetta í rauninni ber allt brátt að, þótt við vitum að það hafi legið fyrir að tillaga sem þessi yrði sett fram á kjörtímabilinu, að það er dálítið óhefðbundið að setja á dagskrá, núna um tveimur mánuðum fyrir sveitarstjórnarkosningar, mál eins og þetta sem við vitum að klýfur þjóðina gjörsamlega í tvennt, í staðinn fyrir að gefa svigrúm á næstu vikum til að þjóðfélagsumræðan, einmitt…

Virðulegur forseti. Mig langar líka til að koma aðeins inn á það í ljósi þess hve þetta í rauninni ber allt brátt að, þótt við vitum að það hafi legið fyrir að tillaga sem þessi yrði sett fram á kjörtímabilinu, að það er dálítið óhefðbundið að setja á dagskrá, núna um tveimur mánuðum fyrir sveitarstjórnarkosningar, mál eins og þetta sem við vitum að klýfur þjóðina gjörsamlega í tvennt, í staðinn fyrir að gefa svigrúm á næstu vikum til að þjóðfélagsumræðan, einmitt útvarpsþættir sem hæstv. menntamálaráðherra vitnaði til hérna áðan, fái frekar að fjalla um málefni sem tengjast inn á sveitarstjórnarstigið og nærsamfélögin í stað þess að ræða ESB núna af fullum krafti næstu vikurnar og kljúfa þjóðina í tvennt í máli sem þessu. Þetta er algerlega óhefðbundið. Það hefur verið venjan að gefa sveitarstjórnarkosningunum og umræðunni smá svigrúm til þess að fara í aðrar áttir núna rétt fyrir kosningar.

Njáll Trausti Friðbertsson Sjálfstæðisflokkur ræða
142 orð
Frú forseti. Þetta er áhugaverð tímasetning á málinu, að það sé að koma inn í þinglega meðferð og eigi að klárast á því sem mér telst til að séu sjö þingvikur fram til 29. maí. Það er páskafrí og síðan sveitarstjórnarkosningar eftir örfáar vikur. Fyrir gríðarlega stórt og flókið mál kemur á óvart þegar hæstv. utanríkisráðherra kemur hér og segir að þetta sé innanríkismál. Þetta er væntanlega stærsta utanríkismálefni sem tengist íslenskri þjóð, sem við höfum tekist á um…

Frú forseti. Þetta er áhugaverð tímasetning á málinu, að það sé að koma inn í þinglega meðferð og eigi að klárast á því sem mér telst til að séu sjö þingvikur fram til 29. maí. Það er páskafrí og síðan sveitarstjórnarkosningar eftir örfáar vikur. Fyrir gríðarlega stórt og flókið mál kemur á óvart þegar hæstv. utanríkisráðherra kemur hér og segir að þetta sé innanríkismál. Þetta er væntanlega stærsta utanríkismálefni sem tengist íslenskri þjóð, sem við höfum tekist á um langt tímaskeið. Jú, við sóttum um áður, 2009, þegar þessi umræða var tekin. En það þarf að fara mjög langt aftur til að sjá eitthvert málefni sem er jafn mikið utanríkismálefni og þetta. Þetta er ekki innanríkismál. Þetta er grundvallarmál um íslenska hagsmuni til lengri framtíðar, grundvallarmál. Að trufla sveitarstjórnarkosningarnar með þessum hætti eins og hér er gert kemur mér gríðarlega á óvart.

Jens Garðar Helgason Sjálfstæðisflokkur ræða
165 orð
Virðulegur forseti. Hér er á ferðinni uppgefin ríkisstjórn sem er hrædd við þjóðina og vill að við séum að ræða eitthvað allt annað en það sem við eigum að vera að ræða um og það sem skiptir heimilin í landinu máli. Um það snýst þetta mál. Það snýst um akkúrat þetta, uppgefna ríkisstjórn. Hún vill ekki hafa samráð. Hún vill bara keyra málin í gegn og lítur á þingskapalög sem eitthvert túlkunaratriði, að formið sé frjálst og að það sé bara hægt að túlka þau eins og manni…

Virðulegur forseti. Hér er á ferðinni uppgefin ríkisstjórn sem er hrædd við þjóðina og vill að við séum að ræða eitthvað allt annað en það sem við eigum að vera að ræða um og það sem skiptir heimilin í landinu máli. Um það snýst þetta mál. Það snýst um akkúrat þetta, uppgefna ríkisstjórn. Hún vill ekki hafa samráð. Hún vill bara keyra málin í gegn og lítur á þingskapalög sem eitthvert túlkunaratriði, að formið sé frjálst og að það sé bara hægt að túlka þau eins og manni hentar. Hér kemur upp forystufólk stjórnarflokkanna og talar um þingskapalög eins og eitthvert opið túlkunaratriði um hvernig megi túlka. Það er miður en lýsir í raun sálarástandi hæstv. ríkisstjórnar: Hún er uppgefin. Hún er uppgefin, hún er búin að klúðra verkefninu og nú á að fara að beina sjónum fólks að einhverju öðru. Vandamálið er hins vegar bara að atvinnuleysið, verðbólgan og vextirnir fara ekki neitt þrátt fyrir að ríkisstjórn umbúðanna reyni að tala um eitthvað annað.