Undanþága vegna verndaraðgerða ESB varðandi kísilmálm

157. löggjafarþing Mál nr. 186 12. nóvember 2025 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
977 orð
2 flokkar
Sjálfstæðisflokkur Viðreisn

Ríkisstjórn

Hanna Katrín Friðriksson
Viðreisn
2 ræður 599 orð

Stjórnarandstaða

Ólafur Adolfsson
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 378 orð

Tímalína umræðunnar

12. nóvember 2025
Ólafur Adolfsson Sjálfstæðisflokkur ræða
197 orð
Virðulegi forseti. Það var verið að birta frétt hjá Ríkisútvarpinu um að Ísland og Noregur fái ekki undanþágu frá fyrirhuguðum verndaraðgerðum Evrópusambandsins gagnvart kísilmálmi samkvæmt tillögu sem framkvæmdastjórn ESB tilkynnti í gær. Þess skal þó getið að aðildarríki ESB eiga eftir að gefa endanlegt samþykki. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti íslenskum og norskum stjórnvöldum að ríkin tvö fengju ekki undanþágu frá fyrirhuguðum verndaraðgerðum ESB…

Virðulegi forseti. Það var verið að birta frétt hjá Ríkisútvarpinu um að Ísland og Noregur fái ekki undanþágu frá fyrirhuguðum verndaraðgerðum Evrópusambandsins gagnvart kísilmálmi samkvæmt tillögu sem framkvæmdastjórn ESB tilkynnti í gær. Þess skal þó getið að aðildarríki ESB eiga eftir að gefa endanlegt samþykki. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti íslenskum og norskum stjórnvöldum að ríkin tvö fengju ekki undanþágu frá fyrirhuguðum verndaraðgerðum ESB vegna kísilmálms sem hafa verið í undirbúningi síðustu misseri.

Nú langar mig til að spyrja hæstv. atvinnuvegaráðherra hvort þetta sé enn eitt áfallið á hinu svokallaða verðmætasköpunarhausti og mig langar til að biðja hana um að koma hingað og útskýra fyrir okkur hvernig hagsmunagæslu hefur verið háttað í þessu máli. Einnig óska ég eftir því að hæstv. ráðherra tali nú aðeins við okkur um það hver möguleg áhrif gætu orðið af þessari aðgerð Evrópusambandsins og möguleg áhrif hennar á starfsemi Elkem á Grundartanga. Nú hafa dunið yfir áföll á Grundartanga og þetta verður þá enn eitt áfallið sem mun ríða yfir þann ágæta vinnustað og einnig nærliggjandi sveitarfélög sem eiga mikið undir að atvinnulíf gangi vel. Þess vegna tel ég mjög mikilvægt að ráðherrann dragi ekkert undan þegar hann gefur mér mögulegar skýringar á þessu.

Hanna Katrín Friðriksson Viðreisn ræða
335 orð
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa mikilvægu fyrirspurn vegna þess að það er auðvitað rétt eins og fram kemur í máli hans að þetta eru upplýsingar sem við höfum nýverið fengið og málið er svo sem á fyrstu stigum. Við höfum fengið tilkynningu til sameiginlegu EES-nefndarinnar um þessar tillögur að verndarráðstöfunum vegna innflutnings á járnblendi og þar kemur í ljós að hugmynd framkvæmdastjórnarinnar er að Ísland og Noregur séu ekki undanskilin. Þetta…

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa mikilvægu fyrirspurn vegna þess að það er auðvitað rétt eins og fram kemur í máli hans að þetta eru upplýsingar sem við höfum nýverið fengið og málið er svo sem á fyrstu stigum. Við höfum fengið tilkynningu til sameiginlegu EES-nefndarinnar um þessar tillögur að verndarráðstöfunum vegna innflutnings á járnblendi og þar kemur í ljós að hugmynd framkvæmdastjórnarinnar er að Ísland og Noregur séu ekki undanskilin. Þetta eru auðvitað vonbrigði. Við teljum eftir sem áður að þetta sé ekki í samræmi við það sem stendur í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og við það stöndum við. Það er það sjónarmið sem við höfum haldið á lofti í okkar hagsmunabaráttu alla tíð frá því að þetta mál kom upp.

Líkt og kemur fram í máli hv. þingmanns er ekki búið að taka endanlega afstöðu til málsins og mér skilst að það verði á föstudaginn. Þangað til veit ég að hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. forsætisráðherra, með sínu fólki, eru í þéttum samtölum og við erum áfram, samhliða félögum okkar í Noregi, að halda því til streitu við aðildarríkin að þau snúi þessu við. Það er plan A. Við höfum hins vegar alla tíð verið líka með annan bolta sem er þá að tala um tollkvóta og lágmarksverð, nokkuð sem gæti dregið úr neikvæðum áhrifum, jafnvel svo verulega um munaði. Við erum að halda þeim bolta á lofti líka í samtölum þó að við séum enn þá að reyna að snúa við þessari hugmynd. Við lítum þetta mál alvarlegum augum og erum að beita öllum okkar kröftum en jafnframt er staðan sú að við erum vongóð með það að náum við ekki að snúa þessu við þannig að plan A, að við séum undanþegin þessum verndartollum, nái fram að ganga, þá a.m.k. sé plan B þannig að það séu tollkvótar og lágmarksverð á útflutning þannig að áhrifin á okkur verði í miklu lágmarki ef svo má segja. Það er auðvitað of snemmt að tala um það fyrr en endanleg útfærsla liggur fyrir.

Ólafur Adolfsson Sjálfstæðisflokkur ræða
181 orð
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin sem voru nokkuð rýr að mínu mati. Ég get ekki tekið undir með ráðherranum um að við séum hér á fyrstu stigum. Þetta er búið að vera í umræðunni nokkuð lengi og við höfum í sjálfu sér gert okkur grein fyrir því að til þessa gæti komið. Ég held að við höfum öll sem eitt reynt að tryggja að það kæmist kirfilega til skila til fyrirsvarsmanna Evrópusambandsins að þetta væri hreint brot á EES-samningnum. Því langar mig…

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin sem voru nokkuð rýr að mínu mati. Ég get ekki tekið undir með ráðherranum um að við séum hér á fyrstu stigum. Þetta er búið að vera í umræðunni nokkuð lengi og við höfum í sjálfu sér gert okkur grein fyrir því að til þessa gæti komið. Ég held að við höfum öll sem eitt reynt að tryggja að það kæmist kirfilega til skila til fyrirsvarsmanna Evrópusambandsins að þetta væri hreint brot á EES-samningnum. Því langar mig til að spyrja ráðherrann að því hvort við munum höfða mál eða hvað við munum gera til þess að Evrópusambandið breyti þessari ákvörðun sinni ef hún verður endanlega að veruleika? Hvað munum við gera? Ef það er svo að við getum ekki treyst því að við séum með samning við Evrópusambandið varðandi tollfrelsi þá langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað verður það þá næst sem Evrópusambandið kemur til með að mótmæla varðandi t.d. frekari tolla á aðrar vörur eins og ál, svo dæmi sé tekið?

Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða tímamörkin.

Hanna Katrín Friðriksson Viðreisn ræða
264 orð
Frú forseti. Aftur þakka ég andsvarið en ég verð að segja að ég vona að það hafi ekki verið viljandi útúrsnúningur hjá hv. þingmanni þegar hann hefur það eftir mér að við séum á fyrstu stigum þessa máls. Það var langt í frá það sem ég sagði. Ég sagði nákvæmlega að við hefðum staðið í mjög sterkri og öflugri hagsmunabaráttu ásamt Noregi sem er í sömu stöðu og við. Við vissum að það væru tvær leiðir. Í leið a, ef ég má segja sem svo, væri markmiðið að tryggja að við yrðum…

Frú forseti. Aftur þakka ég andsvarið en ég verð að segja að ég vona að það hafi ekki verið viljandi útúrsnúningur hjá hv. þingmanni þegar hann hefur það eftir mér að við séum á fyrstu stigum þessa máls. Það var langt í frá það sem ég sagði. Ég sagði nákvæmlega að við hefðum staðið í mjög sterkri og öflugri hagsmunabaráttu ásamt Noregi sem er í sömu stöðu og við. Við vissum að það væru tvær leiðir. Í leið a, ef ég má segja sem svo, væri markmiðið að tryggja að við yrðum undanþegin þessu þrátt fyrir þá staðreynd að við erum ekki í tollabandalagi líkt og við værum jú í innan Evrópusambandsins. Það er staðreyndin. Um það hefur hagsmunabaráttan snúist. Nú liggur þetta fyrir. Sú ákvörðun var að koma. Það hefur ekki verið endanleg ákvörðun tekin, hún hefur ekki verið staðfest, það er á fyrstu stigum. Það skýrist eftir, held ég að ég fari rétt með, á föstudaginn.

Plan B, sem alla tíð hefur verið unnið samhliða, er þá það að lágmarka áhrifin. Ég treysti mér til að segja að þau muni verða að miklu leyti lágmörkuð, ef ekki alveg þurrkuð út, ef við náum því í gegn í verri stöðunni að um sé að ræða lágmarkstoll, lágmarkskvóta og síðan lágmarksverð. Ég tel of snemmt að svo stöddu, á meðan við erum enn þá í þessu öfluga samtali, að fara að ætla hver næstu skref verða en ég get alveg fullvissað bæði hv. þingheim og allan almenning um að hagsmunabaráttu Íslands verður áfram haldið eins og best væri á kosið líkt og hingað til.