Þjóðaratkvæðagreiðsla um inngöngu í Evrópusambandið

156. löggjafarþing Mál nr. 162 20. mars 2025 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
830 orð
2 flokkar
Flokkur fólksins Framsóknarflokkur

Ríkisstjórn

Ingibjörg Isaksen
Framsóknarflokkur
2 ræður 433 orð

Stjórnarandstaða

Inga Sæland
Flokkur fólksins
2 ræður 397 orð

Tímalína umræðunnar

20. mars 2025
Ingibjörg Isaksen Framsóknarflokkur ræða
231 orð
Virðulegi forseti. Í gegnum tíðina hefur hæstv. ráðherra verið skýr í afstöðu sinni til Evrópusambandsins og tekið afgerandi afstöðu gegn aðild Íslands að sambandinu. Með leyfi forseta: „Það væri verri hlutur fyrir íslenskan almenning að ganga í Evrópusambandið en nokkuð annað sem hægt væri að hugsa sér. Við myndum missa fullveldið, sjávarútveginn og okkar sjálfsákvörðunarrétt.“ Þessi orð hæstv. ráðherra eru sterk og þau endurspegla andstöðu sem margir Íslendingar deila. Flokkur fólksins…

Virðulegi forseti. Í gegnum tíðina hefur hæstv. ráðherra verið skýr í afstöðu sinni til Evrópusambandsins og tekið afgerandi afstöðu gegn aðild Íslands að sambandinu. Með leyfi forseta:

„Það væri verri hlutur fyrir íslenskan almenning að ganga í Evrópusambandið en nokkuð annað sem hægt væri að hugsa sér. Við myndum missa fullveldið, sjávarútveginn og okkar sjálfsákvörðunarrétt.“

Þessi orð hæstv. ráðherra eru sterk og þau endurspegla andstöðu sem margir Íslendingar deila. Flokkur fólksins hefur einnig á sinni stefnuskrá tekið skýra afstöðu gegn aðild og talar fyrir því að Ísland standi utan sambandsins til að vernda þjóðhagslega hagsmuni. ESB er ekki það sama og það var. Sambandið hefur veikst á mörgum sviðum og ekki sýnt þann stöðugleika sem fólk vildi sjá. Hnignun í samstarfi og vaxandi vantraust innan ESB-ríkjanna sjálfra ætti einnig að kalla á varfærni og gagnrýna hugsun. Einhverjir hafa fært þau rök fyrir inngöngu að það sé til þess að ná verðbólgu og vöxtum niður, en hafa fært sig yfir á vagn varnar- og öryggismála í dag þegar við sjáum vexti á niðurleið. Við búum vissulega við óvissu í alþjóðakerfinu sem krefst þess að við stöndum vaktina í varnarmálum og utanríkisstefnu en slík staða réttlætir ekki róttækar stefnubreytingar. Að ganga í ESB væri stærsta utanríkisákvörðun sem Ísland tæki frá lýðveldisstofnun og krefst vandaðs undirbúnings.

Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Styður hæstv. ráðherra það að flýta þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu Íslands í Evrópusambandið?

Inga Sæland Flokkur fólksins ræða
307 orð
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir þessa ágætu fyrirspurn sem gefur mér tækifæri á því að ítreka það að allt sem kom fram í fyrri hluta hennar fyrirspurnar á við rök að styðjast. Flokkur fólksins er alfarið á móti inngöngu Íslands í Evrópusambandið, algerlega, bæði núna og þá. Hvað framtíðin ber í skauti sér get ég ekki svarað fyrir. Það virðist gæta einhvers skringilegs misskilnings þegar við erum að tala um þjóðaratkvæðagreiðslu. Í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu er ekki…

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir þessa ágætu fyrirspurn sem gefur mér tækifæri á því að ítreka það að allt sem kom fram í fyrri hluta hennar fyrirspurnar á við rök að styðjast. Flokkur fólksins er alfarið á móti inngöngu Íslands í Evrópusambandið, algerlega, bæði núna og þá. Hvað framtíðin ber í skauti sér get ég ekki svarað fyrir.

Það virðist gæta einhvers skringilegs misskilnings þegar við erum að tala um þjóðaratkvæðagreiðslu. Í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu er ekki verið að greiða atkvæði um hvort við séum að ganga í Evrópusambandið. Það er verið að greiða atkvæði um það hvort við eigum að hefja aðildarviðræður að nýju um inngöngu í Evrópusambandið þar sem í rauninni Íslendingum öllum gefst tækifæri á því að segja sína skoðun um það. Þetta er lýðræðislegt mannréttindamál og eins og Flokkur fólksins hefur alltaf sagt: Við erum algjörlega hlynnt beinu lýðræði. Við treystum þjóðinni algjörlega fyrir því að taka ákvarðanir. Flokkur fólksins mun í öllu virða þær ákvarðanir sem þjóðin tekur sjálf við kjörborðið þannig að áfram segi ég það, svo það sé hafið yfir allan vafa: Flokkur fólksins mun segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Flokkur fólksins mun gera það, hv. þm. Ingibjörg Isaksen, vegna þess að Flokkur fólksins er alfarið á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þarna er bara hafsjór á milli og það er eiginlega sorglegt ef hv. þingmenn gera ekki greinarmun á þjóðaratkvæðagreiðslu sem felur í sér spurninguna til þjóðarinnar um það hvort hún vilji hefja aðildarviðræður eða spurningu til þjóðarinnar um hvort við eigum að ganga í Evrópusambandið. Hvort við eigum að flýta þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu eins og hv. þingmaður nefnir — ég sé enga ástæðu til þess. Það hefur ekki komið inn á mitt borð og ég hef ekki tekið neina ákvörðun hvað það varðar eða hef þurft að ræða það til þessa, þannig að Flokkur fólksins segir nei.

Ingibjörg Isaksen Framsóknarflokkur ræða
202 orð
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr svör því að það er mikilvægt að við horfum raunsætt á stöðuna. Það er nefnilega oft látið líta svo út eins og viðræður við ESB séu bara ákveðin skoðunarferð, að við séum að kíkja í pakkann. En staðreyndin er sú að aðildarviðræður eru aðlögunarferli. Þær snúast ekki um að semja um hvað við fáum heldur hvernig við getum aðlagað íslenskt samfélag að kerfum og regluverki sambands sem hefur breyst mikið á síðustu árum.…

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr svör því að það er mikilvægt að við horfum raunsætt á stöðuna. Það er nefnilega oft látið líta svo út eins og viðræður við ESB séu bara ákveðin skoðunarferð, að við séum að kíkja í pakkann. En staðreyndin er sú að aðildarviðræður eru aðlögunarferli. Þær snúast ekki um að semja um hvað við fáum heldur hvernig við getum aðlagað íslenskt samfélag að kerfum og regluverki sambands sem hefur breyst mikið á síðustu árum. Hæstv. ráðherra hefur sjálf bent á, með leyfi forseta: „Það er augljóst að Evrópusambandið er ekki í sömu stöðu og áður. Það er mikil ólga innan sambandsins og Ísland ætti ekki að fórna sjálfstæði sínu fyrir slíkt.“ Við verðum að tryggja að þjóðin fái allar upplýsingar áður en gengið er til kosninga og að við undirbúum okkur vel því að ESB er að breytast og ekki til batnaðar og við eigum ekki að nota auðlindir Íslands sem skiptimynt fyrir inngöngu.

Ég spyr hæstv. ráðherra: Ef þjóðin samþykkir inngöngu í ESB getur ráðherrann þá fullyrt hér í dag að hún muni virða þá niðurstöðu og vinna af heilindum að því að fylgja þeirri vegferð eftir þó svo að hún telji hana ranga?

Inga Sæland Flokkur fólksins ræða
90 orð
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen síðari fyrirspurn. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður áttar sig ekki á því að við erum hér í umboði kjósenda. Við erum hér starfandi fyrir þjóðina, í hennar umboði, og það mun ég halda áfram að gera af öllu mínu hjarta. Þannig að ef þjóðin mín talar í þjóðaratkvæðagreiðslu, þó að ég sé henni ekki sammála, þá mun ég í öllum tilvikum samþykkja þá niðurstöðu vegna þess að ég treysti þjóðinni minni til að rata réttan veg sem er henni fyrir…