Samkeppniseftirlit á Íslandi og innleiðing skaðabótatilskipunar ESB

154. löggjafarþing Mál nr. 719 4. mars 2024 Sjá á Alþingi.is ↗
3 ræður
2 þingmenn
672 orð
2 flokkar
Samfylkingin Vinstrihreyfingin - grænt framboð

Ríkisstjórn

Katrín Jakobsdóttir
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
2 ræður 491 orð

Stjórnarandstaða

Kristrún Frostadóttir
Samfylkingin
1 ræða 181 orð

Tímalína umræðunnar

4. mars 2024
Katrín Jakobsdóttir Vinstrihreyfingin - grænt framboð ræða
292 orð
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka upp þetta mikilvæga mál. Í raun er merkilegt hvað það hefur lítið verið rætt í þingsal því að mínu viti tel ég að þetta mál sýni að Samkeppniseftirlitið er svo sannarlega að vinna sína vinnu, að við erum með lög og reglur um samkeppni sem skipta máli. Þetta eru himinháar sektir sem þessi fyrirtæki fá. En ég ætla að taka undir með hv. þingmanni að það skiptir máli að við hugsum um framhaldið því að þetta snýst ekki bara um samkeppnisréttinn,…

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka upp þetta mikilvæga mál. Í raun er merkilegt hvað það hefur lítið verið rætt í þingsal því að mínu viti tel ég að þetta mál sýni að Samkeppniseftirlitið er svo sannarlega að vinna sína vinnu, að við erum með lög og reglur um samkeppni sem skipta máli. Þetta eru himinháar sektir sem þessi fyrirtæki fá. En ég ætla að taka undir með hv. þingmanni að það skiptir máli að við hugsum um framhaldið því að þetta snýst ekki bara um samkeppnisréttinn, sem er mikilvægur, þetta snýst líka um hvernig skipulagður er innflutningur í landið, hvernig við högum þeim málum. Þá er ég að vísa til þess að í gegnum þessi tvö fyrirtæki fer auðvitað nánast allur innflutningur á vöru inn í landið og það skiptir máli að við veltum því fyrir okkur hvernig við getum opnað fyrir nýliðun þegar kemur að innflutningi í landinu.

Hv. þingmaður nefnir hér sérstaklega skaðabótatilskipun, Evróputilskipun um skaðabótarétt vegna samkeppnismála sem ekki hefur enn verið tekin upp í EES-samninginn. Því hefur ekki hvílt á Íslandi sérstök þjóðréttarleg skuldbinding til að innleiða þá tilskipun. En samkvæmt upplýsingum frá menningar- og viðskiptaráðherra, sem fer með þessi mál, hefur verið unnið að því að innleiða þessa tilskipun í EES-samninginn af hálfu EES- og EFTA-ríkjanna og áfram stendur til að vinna þá vinnu. Ég ætla að taka undir með hv. þingmanni. Við erum lítið land og hér eru fá fyrirtæki. Það getur verið flókið að tryggja virka samkeppni nema að regluverkið sé skýrt. Ég tel að þessi niðurstaða sýni að við erum með samkeppniseftirlit sem virkar en ég tel að við eigum að sjálfsögðu að huga að því hvaða réttarbætur við getum ráðist í til þess að tryggja þá stöðu enn betur.

Kristrún Frostadóttir Samfylkingin ræða
181 orð
Forseti. Það gleður mig að heyra að hæstv. forsætisráðherra er sammála okkur í Samfylkingunni hvað varðar þetta málefni. Ég vil samt ítreka stöðu Samkeppniseftirlitsins og þá vanfjármögnun sem eftirlitið hefur staðið frammi fyrir og kalla eftir viðbrögðum hvað það varðar frá hæstv. forsætisráðherra. Þetta er alvarleg staða, sérstaklega í ljósi þess að við sjáum að í þessu máli skipafélaganna kærðu félögin einstakar aðgerðir eftirlitsins 14 sinnum til dómstóla og töpuðu í öllum tilvikum. Það …

Forseti. Það gleður mig að heyra að hæstv. forsætisráðherra er sammála okkur í Samfylkingunni hvað varðar þetta málefni. Ég vil samt ítreka stöðu Samkeppniseftirlitsins og þá vanfjármögnun sem eftirlitið hefur staðið frammi fyrir og kalla eftir viðbrögðum hvað það varðar frá hæstv. forsætisráðherra. Þetta er alvarleg staða, sérstaklega í ljósi þess að við sjáum að í þessu máli skipafélaganna kærðu félögin einstakar aðgerðir eftirlitsins 14 sinnum til dómstóla og töpuðu í öllum tilvikum. Það liggur alveg fyrir að þetta er algjört einsdæmi og það var fyrst þegar þetta lá fyrir sem Eimskip ákvað að játa sín brot. Þannig að góð fjármögnun eftirlitsins er lykilatriði hjá stjórnvöldum í dag. En ég vil líka að það komi hér fram og vil varpa því til hæstv. ráðherra að auðvitað er líka hægt að innleiða efnisreglur tilskipunarinnar í íslensk lög, það þarf ekki að bíða eftir EFTA í þessu samhengi. Ég hvet hæstv. forsætisráðherra líka til þess að þrýsta enn frekar á þá aðila sem koma að samningagerðinni gagnvart EFTA-ríkjunum vegna þess að við eigum auðvitað að hafa frumkvæði að þessu máli fyrir íslenskt hagkerfi.

Katrín Jakobsdóttir Vinstrihreyfingin - grænt framboð ræða
199 orð
Herra forseti. Það hefur verið metið sem svo af hálfu þeirra sem hafa fjallað um þetta í stjórnkerfinu að það skipti máli að hér gildi sömu starfsskilyrði og annars staðar á EES-svæðinu og að tjónþolar samkeppnislagabrota á Íslandi, sem geta auðvitað bæði verið neytendur og fyrirtæki, starfi við sömu starfsskilyrði og annars staðar á EES-svæðinu. Því hefur það verið metið svo að það sé rétt að innleiðing tilskipunarinnar eigi sér stað að loknu eða að undangengnu formlegu ferli í samræmi við…

Herra forseti. Það hefur verið metið sem svo af hálfu þeirra sem hafa fjallað um þetta í stjórnkerfinu að það skipti máli að hér gildi sömu starfsskilyrði og annars staðar á EES-svæðinu og að tjónþolar samkeppnislagabrota á Íslandi, sem geta auðvitað bæði verið neytendur og fyrirtæki, starfi við sömu starfsskilyrði og annars staðar á EES-svæðinu. Því hefur það verið metið svo að það sé rétt að innleiðing tilskipunarinnar eigi sér stað að loknu eða að undangengnu formlegu ferli í samræmi við ákvæði EES-samningsins. Hins vegar liggur algerlega fyrir að þegar því er lokið stendur til að innleiða hana í íslenskan rétt þannig að það hefur verið gefið skýrt út.

Hvað varðar fjármögnun Samkeppniseftirlitsins þá er þetta auðvitað sjálfstæð stofnun og hluti af því er að fjármögnun hennar hefur lotið þá í raun og veru sérstökum reglum. En það skiptir auðvitað máli að við séum sívakandi gagnvart þessu því eins og ég sagði áðan, þetta er lítið land sem við búum í, hér eru oft örfá fyrirtæki eins og í þessu tilfelli á sama sviði og það er alvarlegt. Það þýðir að við þurfum að vera jafnvel meira á tánum en stærri ríki til að tryggja öfluga samkeppni í landinu.