Viðbrögð stjórnvalda við loftslagsáætlun ESB

153. löggjafarþing Mál nr. 678 6. mars 2023 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
1.042 orð
2 flokkar
Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkur

Ríkisstjórn

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 545 orð

Stjórnarandstaða

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Miðflokkurinn
2 ræður 497 orð

Tímalína umræðunnar

6. mars 2023
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokkurinn ræða
321 orð
Herra forseti. Ég hef áður spurt hæstv. utanríkisráðherra út í þá ógn sem stafar af yfirvofandi löggjöf Evrópusambandsins sem mun í raun rústa stöðu Íslands í flugmálum. Ég heyri að hæstv. ráðherra hefur tekið undir þær áhyggjur. Í gær var hæstv. ráðherra í viðtali við Morgunblaðið, a.m.k. mbl.is, og sló þar í og úr og vakti eiginlega fleiri spurningar en svarað var. Hæstv. ráðherra sagði að það hefði verið farið í fordæmalaust átak til að hafa áhrif á löggjöf ESB, m.a. verið haldnir yfir 100…

Herra forseti. Ég hef áður spurt hæstv. utanríkisráðherra út í þá ógn sem stafar af yfirvofandi löggjöf Evrópusambandsins sem mun í raun rústa stöðu Íslands í flugmálum. Ég heyri að hæstv. ráðherra hefur tekið undir þær áhyggjur. Í gær var hæstv. ráðherra í viðtali við Morgunblaðið, a.m.k. mbl.is, og sló þar í og úr og vakti eiginlega fleiri spurningar en svarað var. Hæstv. ráðherra sagði að það hefði verið farið í fordæmalaust átak til að hafa áhrif á löggjöf ESB, m.a. verið haldnir yfir 100 fundir með embættismönnum og hæstv. ráðherra hefði sjálfur hitt á þriðja tug utanríkisráðherra. En hver varð árangurinn af þessu fordæmalausa átaki og öllum þessum fundum? Hvað hefur fengist á móti? Hæstv. ráðherra segir að þetta sé erfitt viðureignar og erfitt að fá undanþágur vegna þess að þetta sé hluti af loftslagsáætlun Evrópusambandsins, sem Ísland hefur illu heilli elt þrátt fyrir að þetta eigi ekki við um íslenskar aðstæður, til að mynda þessi tilraun til að neyða fólk inn í járnbrautarlestir fremur en að fara í flugvélar, sem hentar okkur augljóslega ekki. Svo segir hæstv. ráðherra líka að enginn mótmæli lengur áhrifunum á Ísland. Ég er ekki alveg viss um að þetta sé rétt. Hingað kom einhver Slóvaki, hæstv. forseti verður að fyrirgefa, ég man ekki hvað hann heitir, Milo, held ég. Alla vega heldur þessi maður utan um þessi mál öll. Þessi Slóvaki sem hefur örlög Íslands í hendi sér gaf ekkert til kynna um að það væri skilningur á afstöðu Íslands til þessara mála. Hæstv. ráðherra segir, með leyfi forseta:

„Við tökum þetta fasa fyrir fasa og við erum að gera allt hvað við getum til að ná fram breytingum og verðum í raun að vona það besta. Ef það tekst ekki þá er í raun ekki tímabært að fabúlera um það hvað gerist næst.“

Herra forseti. Er ekki einmitt löngu orðið tímabært að hæstv. ráðherra ekki aðeins fabúleri heldur segi okkur hvað gerist næst?

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
348 orð
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Ég er eðli máls samkvæmt ekki alveg sammála því að ég hafi slegið úr og í í þessu viðtali. Hér er spurt um hvað gerist næst og sagt að ég skuldi svör við þessu máli einhvern veginn í heild sinni. Staðreyndin er sú að við erum í miðju verki. Málinu er ekki lokið Evrópusambandsmegin og ég stend algjörlega við að um er að ræða stærsta átak sem við höfum farið í, við byrjuðum fyrr og erum í raun ekki enn þá komin á þann stað þar sem við erum…

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Ég er eðli máls samkvæmt ekki alveg sammála því að ég hafi slegið úr og í í þessu viðtali. Hér er spurt um hvað gerist næst og sagt að ég skuldi svör við þessu máli einhvern veginn í heild sinni. Staðreyndin er sú að við erum í miðju verki. Málinu er ekki lokið Evrópusambandsmegin og ég stend algjörlega við að um er að ræða stærsta átak sem við höfum farið í, við byrjuðum fyrr og erum í raun ekki enn þá komin á þann stað þar sem við erum venjulega að óska eftir aðlögunum eða ákveðnu mótvægi áður en mál eru tekin upp í sameiginlegu EES-nefndina. Það er ekki rétt, og ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður sé að vísa í Savkovic, að hann haldi á málinu einn og örlög okkar séu í hans höndum.

Ég sagði hins vegar það sem er satt og rétt í þessu viðtali, að ef engar breytingar verða á málinu þá mun það hafa miklar afleiðingar fyrir okkur og þess vegna leggjum við svo mikla áherslu á málið. Í lagasetningarferlinu hjá Evrópusambandinu náðust hins vegar fram breytingar sem skipta okkur vissulega máli, eins og þær að Evrópusambandið muni niðurgreiða verðmun á venjulegu flugvélaeldsneyti og vistvænu eldsneyti sem við gætum mögulega framleitt hér og þarf þá ekki að borga ETS-gjöld af því síðar, og sömuleiðis að gerð verði úttekt á heildaráhrifum af þessu öllu saman. Það dugir okkur hins vegar ekki og þess vegna erum við ekki hætt í okkar vinnu. Við erum þar af leiðandi í miðju verki og leggjum okkur fram við að ná fram þeim breytingum sem við teljum sanngjarnar og eðlilegar. Að okkar mati erum við ekki að biðja um hluti sem eru ósanngjarnir eða óeðlilegir og erum ekki heldur að biðja um að vera stikkfrí í málinu. Við erum að benda á að það að reikna út meðaltal og yfirfæra það á allt málið sé ekki tæmandi og ekki nægilega góð nálgun vegna þess að jaðaráhrifin eru slík hjá okkur, og við köllum eftir því að við þeim sé brugðist.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokkurinn ræða
176 orð
Herra forseti. Það er rétt hjá hæstv. ráðherra að það að málið verði skoðað, áhrif þess, löngu eftir að það hefur tekið gildi dugar okkur ekki. En hvað hafa íslensk stjórnvöld fengið fram eftir þessa hundrað fundi og 20–30 fundi með utanríkisráðherrum að auki? Það er ekki að heyra að það sé neitt. Það blasir við að það verður krafa um að þetta klárist fyrir áramót þegar þessar reglur allar eiga að taka gildi í Evrópusambandinu og þá finnst mér áhyggjuefni ef hæstv. ráðherra getur ekki sagt…

Herra forseti. Það er rétt hjá hæstv. ráðherra að það að málið verði skoðað, áhrif þess, löngu eftir að það hefur tekið gildi dugar okkur ekki. En hvað hafa íslensk stjórnvöld fengið fram eftir þessa hundrað fundi og 20–30 fundi með utanríkisráðherrum að auki? Það er ekki að heyra að það sé neitt. Það blasir við að það verður krafa um að þetta klárist fyrir áramót þegar þessar reglur allar eiga að taka gildi í Evrópusambandinu og þá finnst mér áhyggjuefni ef hæstv. ráðherra getur ekki sagt hreint út að við munum ekki innleiða þetta ef það skaðar íslenska hagsmuni og aðstæður okkar hér. Hæstv. ráðherra sagði í fyrrnefndu viðtali að það væri ekki tímabært að tala um að hafna þessum hluta löggjafarinnar. Er ekki tímabært að tala um að hafna þessum hluta löggjafarinnar ef ekki verður komið til móts við okkur? Hvernig nálgast íslensk stjórnvöld þessar viðræður ef þau treysta sér ekki einu sinni til að segja það hreint út að ef ekki verði komið til móts við íslenskar aðstæður þá munum við hafna þessu?

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
197 orð
Herra forseti. Ég skil hv. þingmann vel, að hann komi hingað upp og ætlist til þess að ég svari eins skýrt og hann kallar eftir. Ég sagði skýrt í þessu viðtali og hef sagt það áður að við munum ekki standa að því að innleiða regluverk sem mun stórkostlega skaða hagsmuni Íslands. Mín ábyrgð er umfram allt að tryggja þá hagsmunagæslu sem þarf í þessu máli eins og öðrum og mitt mat er einfaldlega það að á þessum tímapunkti, út af þeim hagsmunum og út af þeirri ábyrgð, þá ætla ég að spila það…

Herra forseti. Ég skil hv. þingmann vel, að hann komi hingað upp og ætlist til þess að ég svari eins skýrt og hann kallar eftir. Ég sagði skýrt í þessu viðtali og hef sagt það áður að við munum ekki standa að því að innleiða regluverk sem mun stórkostlega skaða hagsmuni Íslands. Mín ábyrgð er umfram allt að tryggja þá hagsmunagæslu sem þarf í þessu máli eins og öðrum og mitt mat er einfaldlega það að á þessum tímapunkti, út af þeim hagsmunum og út af þeirri ábyrgð, þá ætla ég að spila það eins skynsamlega og ég get. Ég tel ekki að hluti af því sé að vera með gífuryrði og risastórar yfirlýsingar á þessum tímapunkti og þess vegna ætla ég ekki að gera það. Þó að það myndi henta mér pólitískt betur að gera það akkúrat núna þá ætla ég ekki að gera það vegna þess að þetta snýst allt um þessa stærri hagsmuni, um samninginn í heild sinni. Ég hef sagt alveg skýrt að ég mun ekki tala fyrir því að innleiða regluverk sem mun skaða hagsmuni Íslands stórkostlega og þess vegna erum við að vinna að því að það verði einfaldlega ekki þannig.