Kostir og gallar hugsanlegrar aðildar Íslands að tollabandalagi Evrópusambandsins

153. löggjafarþing Mál nr. 586 16. desember 2022 Sjá á Alþingi.is ↗
1 ræður
1 þingmenn
107 orð
1 flokkar
Flokkur fólksins

Ríkisstjórn

Stjórnarandstaða

Eyjólfur Ármannsson
Flokkur fólksins
1 ræða 107 orð

Tímalína umræðunnar

16. desember 2022
Eyjólfur Ármannsson Flokkur fólksins grein fyrir atkvæði
107 orð
Virðulegur forseti. Í gær greiddum við atkvæði um að fella niður tolla á franskar kartöflur. Þessi skýrslubeiðni felst í því að kanna kosti og galla þess að vera inni í Tollabandalagi Evrópu. Tyrkland, 82 milljóna samfélag, hefur verið í tollabandalaginu en utan ESB. Ef Íslendingar hafa grætt á einhverju undanfarna áratugi er það frjáls verslun. Þessi maður á þessari mynd hefur skrifað það. [Þingmaður bendir á mynd af Jóni Sigurðssyni.] Frjáls verslun hefur bætt kjör íslensks almennings…

Virðulegur forseti. Í gær greiddum við atkvæði um að fella niður tolla á franskar kartöflur. Þessi skýrslubeiðni felst í því að kanna kosti og galla þess að vera inni í Tollabandalagi Evrópu. Tyrkland, 82 milljóna samfélag, hefur verið í tollabandalaginu en utan ESB. Ef Íslendingar hafa grætt á einhverju undanfarna áratugi er það frjáls verslun. Þessi maður á þessari mynd hefur skrifað það. [Þingmaður bendir á mynd af Jóni Sigurðssyni.] Frjáls verslun hefur bætt kjör íslensks almennings gríðarlega mikið, getur gert það enn þá meira ef við göngum í tollabandalagið en við þurfum að vita hverjir kostir og gallar þess eru varðandi aðild að þessu mikilvæga bandalagi.