Tollasamningur Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur

151. löggjafarþing Mál nr. 348 3. desember 2020 Sjá á Alþingi.is ↗
2 ræður
2 þingmenn
279 orð
2 flokkar
Sjálfstæðisflokkur Viðreisn

Ríkisstjórn

Guðlaugur Þór Þórðarson
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 121 orð

Stjórnarandstaða

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Viðreisn
1 ræða 158 orð

Tímalína umræðunnar

3. desember 2020
Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur grein fyrir atkvæði
121 orð
Virðulegur forseti. Færa má rök fyrir því að stundum hafi ákveðnir hv. þingmenn gengið langt í fyrirspurnum og skýrslubeiðnum. Hér er ekki um slíkt að ræða. Ég vil nota tækifærið og þakka þeim hv. þingmönnum sem standa að baki þessari skýrslubeiðni. Hér er hvorki um meira né minna að ræða en munaðarlausasta alþjóðasamning í Íslandssögunni. Ég vona að þegar skýrslan komi fram muni hún, og það er markmiðið, draga fram kosti og galla við framkvæmdina, aðdraganda og hverjir stóðu að þessum…

Virðulegur forseti. Færa má rök fyrir því að stundum hafi ákveðnir hv. þingmenn gengið langt í fyrirspurnum og skýrslubeiðnum. Hér er ekki um slíkt að ræða. Ég vil nota tækifærið og þakka þeim hv. þingmönnum sem standa að baki þessari skýrslubeiðni. Hér er hvorki um meira né minna að ræða en munaðarlausasta alþjóðasamning í Íslandssögunni. Ég vona að þegar skýrslan komi fram muni hún, og það er markmiðið, draga fram kosti og galla við framkvæmdina, aðdraganda og hverjir stóðu að þessum samningi og hverjir bera ábyrgð á honum. Ég vona það, virðulegi forseti, og er sannfærður um að skýrslan geti orðið góður, málefnalegur grunnur fyrir umræðu um þessi mikilvægu mál.

Það er gott að heyra hvað ráðherra er ánægður með skýrslubeiðnina.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn grein fyrir atkvæði
158 orð
Virðulegi forseti. Það sem kreppan mikla á síðustu öld kenndi okkur, og þá sérstaklega setning Smoot-Hawley laganna í Bandaríkjunum, er að þegar þjóðir reyna að bregðast við efnahagslegum áföllum og vernda innlendan markað með hækkun tolla leiðir það til stigvaxandi aðgerða viðskiptaþjóða sem draga úr milliríkjaviðskiptum og það getur síðan lengt og dýpkað efnahagskreppuna svo um munar. Það eigum við að hafa í huga. Við eigum auðvitað að styðja vel og kröftuglega við landbúnað en við…

Virðulegi forseti. Það sem kreppan mikla á síðustu öld kenndi okkur, og þá sérstaklega setning Smoot-Hawley laganna í Bandaríkjunum, er að þegar þjóðir reyna að bregðast við efnahagslegum áföllum og vernda innlendan markað með hækkun tolla leiðir það til stigvaxandi aðgerða viðskiptaþjóða sem draga úr milliríkjaviðskiptum og það getur síðan lengt og dýpkað efnahagskreppuna svo um munar. Það eigum við að hafa í huga. Við eigum auðvitað að styðja vel og kröftuglega við landbúnað en við eigum ekki að gera það með tollmúrum. Við eigum frekar að beita beinum stuðningi, t.d. í gegnum jarðræktarstyrki eins og við í Viðreisn höfum lagt til. Ég styð þessa skýrslubeiðni af því að ég tel það vera lýðræðislegan rétt þingmanna að leggja slíka beiðni fram. Ég bið fólk að hafa í huga að það skiptir máli að styðja við frjáls og opin viðskipti en í þessu máli eins og mörgum öðrum frelsismálum virðist ekki alltaf hægt að finna breiðan stuðning innan Sjálfstæðisflokksins.