Kostir og gallar aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið

150. löggjafarþing Mál nr. 91 16. september 2019 Sjá á Alþingi.is ↗
1 ræður
1 þingmenn
131 orð
1 flokkar
Miðflokkurinn

Ríkisstjórn

Stjórnarandstaða

Ólafur Ísleifsson
Miðflokkurinn
1 ræða 131 orð

Tímalína umræðunnar

16. september 2019
Ólafur Ísleifsson Miðflokkurinn um atkvæðagreiðslu
131 orð
Herra forseti. Sem 1. flutningsmaður þessa máls vil ég nota tækifærið til að árétta að þessi skýrslubeiðni er endurflutt öðru sinni með það að markmiði að halda málinu í réttum þinglegum farvegi. Skýrslubeiðnin var samþykkt 10. apríl í fyrra og aftur 9. október. Utanríkisráðherra skipaði starfshóp 30. ágúst sama ár til að vinna skýrsluna. Skýrslubeiðnin er gerð að norskri fyrirmynd en þar í landi var gerð ítarleg og vönduð skýrsla í tilefni af því að 20 ár voru liðin frá gildistöku…

Herra forseti. Sem 1. flutningsmaður þessa máls vil ég nota tækifærið til að árétta að þessi skýrslubeiðni er endurflutt öðru sinni með það að markmiði að halda málinu í réttum þinglegum farvegi. Skýrslubeiðnin var samþykkt 10. apríl í fyrra og aftur 9. október. Utanríkisráðherra skipaði starfshóp 30. ágúst sama ár til að vinna skýrsluna. Skýrslubeiðnin er gerð að norskri fyrirmynd en þar í landi var gerð ítarleg og vönduð skýrsla í tilefni af því að 20 ár voru liðin frá gildistöku EES-samningsins. Það er vel við hæfi að gera ítarlega og vandaða úttekt á aðild Íslands að samningnum þegar 25 ár eru liðin frá gildistöku hans. Ég geri mér vonir um að skýrslan verði góður grundvöllur að umræðum og stefnumörkun á því mikilvæga sviði sem aðild okkar að Evrópska efnahagssvæðinu er.