Samvinna stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd

150. löggjafarþing Mál nr. 331 6. nóvember 2019 – 3. mars 2020 Sjá á Alþingi.is ↗
2 ræður
2 þingmenn
688 orð
1 flokkar
Sjálfstæðisflokkur

Ríkisstjórn

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 381 orð
Páll Magnússon
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 307 orð

Stjórnarandstaða

Tímalína umræðunnar

6. nóvember 2019
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Sjálfstæðisflokkur flutningsræða
381 orð
Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd á þskj. 375, 331. mál. Með frumvarpinu er lagt til að reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2017/2394, um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar nr. 2006/2004, öðlist lagagildi hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá því í júní 2019. Reglugerðin…

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd á þskj. 375, 331. mál. Með frumvarpinu er lagt til að reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2017/2394, um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar nr. 2006/2004, öðlist lagagildi hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá því í júní 2019. Reglugerðin leysir af hólmi eldri reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um samvinnu milli innlendra yfirvalda sem bera ábyrgð á framkvæmd laga um neytendavernd sem var innleidd í íslenskan rétt með lögum um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, nr. 56/2007.

Í reglugerðinni er mælt fyrir um samstarf og samræmingu aðgerða milli lögbærra yfirvalda á Evrópska efnahagssvæðinu sem bera ábyrgð á framfylgd laga á sviði neytendaverndar. Reglugerðin tekur til Evrópugerða sem tilgreindar eru í viðauka reglugerðarinnar eins og þær hafa verið innleiddar í landsrétt. Alls er um að ræða 26 Evrópugerðir sem varða tíu hérlend lög á sviði neytendaverndar.

Reglugerðin mælir fyrir um kerfi fyrir gagnkvæma aðstoð yfir landamæri. Yfirvöld geta að uppfylltum skilyrðum beðið yfirvöld annars aðildarríkis um upplýsingar og framfylgdarráðstafanir til að stöðva brot gegn lögum á sviði neytendaverndar. Þá er í frumvarpinu mælt fyrir um samræmt fyrirkomulag rannsókna og framfylgdar vegna svokallaðra víðtækra brota og víðtækra brota á sambandsvísu. Gert er ráð fyrir að yfirvöld tilkynni hvort öðru þegar grunur leikur á um slík brot, skiptist á upplýsingum og samræmi aðgerðir.

Samkvæmt reglugerðinni er skylt að tilnefna lögbær yfirvöld og miðlæga tengiskrifstofu í hverju landi sem ber ábyrgð á framkvæmd reglugerðarinnar. Á grundvelli núgildandi laga hafa íslensk stjórnvöld tilnefnt Neytendastofu, Fjármálaeftirlitið, Lyfjastofnun, Samgöngustofu og fjölmiðlanefnd sem lögbær yfirvöld og var Neytendastofa jafnframt tilnefnd miðlæg tengiskrifstofa. Verði frumvarpið að lögum þarf að auki að tilnefna Póst- og fjarskiptastofnun og Samgöngustofu sem lögbær yfirvöld.

Samhliða þessu frumvarpi er lagt fram annað frumvarp sem ég mælti fyrir áðan. Miðað er við breytingartillögur þess frumvarps að því að tryggja að lögbær yfirvöld hafi lágmarksheimildir til rannsókna og framfylgdar sem gerð er krafa um í reglugerðinni, en það er frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna samvinnu stjórnvalda á EES-svæðinu um neytendavernd.

Virðulegur forseti. Að lokinni umræðunni legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar til umfjöllunar.

3. mars 2020
Páll Magnússon Sjálfstæðisflokkur ræða
307 orð
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp til laga um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, og er það flutt í nafni meiri hluta nefndarinnar. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Daða Ólafsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Heiðdísi Lilju Magnúsdóttur og Anton Emil Ingimarsson frá fjölmiðlanefnd, Ásthildi Lóu Þórsdóttur og Guðmund Ásgeirsson frá Hagsmunasamtökum heimilanna, Þórunni Önnu…

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp til laga um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, og er það flutt í nafni meiri hluta nefndarinnar.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Daða Ólafsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Heiðdísi Lilju Magnúsdóttur og Anton Emil Ingimarsson frá fjölmiðlanefnd, Ásthildi Lóu Þórsdóttur og Guðmund Ásgeirsson frá Hagsmunasamtökum heimilanna, Þórunni Önnu Árnadóttur og Matthildi Sveinsdóttur frá Neytendastofu og Ingu Dröfn Benediktsdóttur og Sigurð Guðmundsson frá Fjármálaeftirlitinu.

Nefndinni bárust umsagnir frá Fjármálaeftirlitinu og Neytendastofu.

Með frumvarpinu er lagt til að reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2017/2394 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd verði innleidd í íslenska löggjöf. Enn fremur er lagt til að lög um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, nr. 56/2007, verði felld úr gildi.

Samhliða frumvarpi þessu er lagt fram frumvarp um breytingar á lögum á sviði neytendaverndar sem reglugerðin hefur áhrif á, sem er mál nr. 330 og ég mælti fyrir áðan.

Við meðferð málsins fyrir nefndinni voru engar efnislegar athugasemdir gerðar við málið. Meiri hlutinn leggur hins vegar til að við frumvarpið bætist ákvæði þar sem skýrt verði kveðið á um gildissvið laganna. Jafnframt leggur meiri hlutinn til að gildistöku frumvarpsins verði breytt á þann veg að lögin öðlist þegar gildi.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

„1. Á eftir 1. gr. komi ný grein, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Gildissvið.

Lög þessi gilda um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd og heimildir þar til bærra stjórnvalda til rannsókna og framfylgdar í þágu neytenda.

  1.  1. mgr. 4. gr. orðist svo:
    

Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Undir nefndarálitið ritar sá sem hér stendur, Páll Magnússon, Anna Kolbrún Árnadóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Birgir Ármannsson, Jón Steindór Valdimarsson og Þórarinn Ingi Pétursson.