Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á
ýmsum lögum til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2015/1794,
sem felur í sér breytingar á fimm eldri Evróputilskipunum sem þegar hafa verið
innleiddar í löggjöf hér á landi.
Frumvarpið var samið í félagsmálaráðuneytinu
að höfðu samráði við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og fulltrúa
frá Alþýðusambandi Íslands, Félagi skipstjórnarmanna, Samtökum fyrirtækja
í sjávarútvegi, Sjómannasambandinu og Samtökum verslunar og þjónustu. Auk þess
var frumvarpið sett í opið umsagnarferli í samráðsgátt Stjórnarráðsins.
Markmið fyrrnefndrar tilskipunar og þar með frumvarpsins er að farmenn geti
nýtt sér að fullu rétt sinn til sanngjarnra og réttlátra vinnuskilyrða
sem og rétt til upplýsingamiðlunar og samráðs.
Í aðfaraorðum tilskipunarinnar
er áréttað mikilvægi þess að setja samþættan lagaramma í þeim tilgangi
að gera sjávarútveginn samkeppnishæfari. Í því sambandi má nefna að með
tilskipuninni voru felldar út nokkrar valkvæðar undanþágur úr eldri tilskipun
sem leiddu til þess að hin ýmsu aðildarríki meðhöndluðu starfsmenn í sömu
starfsstétt með ólíkum hætti.
Með innleiðingu tilskipunarinnar í íslenskan
rétt er nauðsynlegt að gera breytingar á fjórum lagabálkum, þ.e. lögum
um evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum, lögum um upplýsingar og samráð í
fyrirtækjum, lögum um hópuppsagnir og lögum um réttarstöðu starfsmanna við
aðilaskipti að fyrirtækjum.
Hvað varðar lög um evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum
þarf að bæta við lögin nýrri málsgrein sem kveður á um að fulltrúar sérstaks
samningaráðs og samstarfsráðs sem tilheyra áhöfn hafskips skuli í nánar
tilgreindum tilvikum eiga rétt á því að taka þátt í fundum ráðanna. Þá
þarf að kveða á um í lögum að þegar mögulegt er skuli slíkir fundir
vera skipulagðir þannig að það auðveldi þátttöku fulltrúa og varamanna
sem tilheyra áhöfnum hafskipa. Er gert ráð fyrir því að í þeim tilvikum þar
sem fulltrúar sem tilheyra áhöfnum hafskips geta ekki setið fund skuli leitast
við að nota upplýsinga- og fjarskiptatækni.
Í þessu sambandi vil ég vekja sérstaklega athygli á því að umrædd lög
um evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum gilda um fyrirtæki sem hafa a.m.k. 1.000
starfsmenn. Munu þær breytingar sem frumvarpið gerir ráð fyrir í þeim lögum
því að öllum líkindum ekki koma til framkvæmda hér á landi nema að óverulegu
leyti.
Hvað varðar lög um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum sem og lög
um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum þarf að fella út úr lögunum ákvæði sem kveður á um að lögin gildi ekki um áhafnir hafskipa og útvíkka þannig gildissvið þeirra þannig að þau gildi einnig um áhafnir
hafskipa.
Við innleiðingu þeirrar tilskipunar sem hér um ræðir þarf einnig að fella
út úr lögum um hópuppsagnir sambærilegt ákvæði og ég gat um hér að framan,
auk þess sem bæta þarf við lögin ákvæði sem kveður á um að atvinnurekandi
skuli senda skriflega tilkynningu til Vinnumálastofnunar ef fyrirhugaðar uppsagnir
varða aðila úr áhöfn hafskips.
Virðulegur forseti. Að lokum vil ég taka fram að hvorki er gert ráð fyrir
því að lögfesting frumvarpsins hafi áhrif á stjórnsýslu ríkisins né að
það leiði til útgjalda fyrir ríkissjóð.
Þá legg ég til að frumvarpinu
verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. velferðarnefndar.