Kostir og gallar aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið

149. löggjafarþing Mál nr. 159 9. október 2018 Sjá á Alþingi.is ↗
8 ræður
8 þingmenn
1.103 orð
5 flokkar
Miðflokkurinn Píratar Sjálfstæðisflokkur Vinstrihreyfingin - grænt framboð Viðreisn

Ríkisstjórn

Birgir Ármannsson
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 167 orð
Katrín Jakobsdóttir
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
1 ræða 156 orð
Kristján Þór Júlíusson
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 154 orð
Steingrímur J. Sigfússon
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
1 ræða 104 orð

Stjórnarandstaða

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Viðreisn
1 ræða 201 orð
Björn Leví Gunnarsson
Píratar
1 ræða 128 orð
Jón Steindór Valdimarsson
Viðreisn
1 ræða 123 orð
Ólafur Ísleifsson
Miðflokkurinn
1 ræða 70 orð

Tímalína umræðunnar

9. október 2018
Kristján Þór Júlíusson Sjálfstæðisflokkur um atkvæðagreiðslu
154 orð
Virðulegi forseti. Ég vil fyrir hönd utanríkisráðherra þakka hæstv. forseta og hv. þingmönnum fyrir auðsýndan skilning á þeirri staðreynd að umfang skýrslunnar sem beðið er um er öllu meira en almennt tíðkast varðandi skýrslubeiðnir á grundvelli 54. gr. þingskapalaga. Ákveðið var að ráðast í ítarlegri vinnu en gert var ráð fyrir og rúmast innan reglnanna og því skipaði utanríkisráðherra starfshóp 30. ágúst sl. til að vinna skýrsluna. Hópurinn hóf þegar störf og í hann skipaði utanríkisráðherra…

Virðulegi forseti. Ég vil fyrir hönd utanríkisráðherra þakka hæstv. forseta og hv. þingmönnum fyrir auðsýndan skilning á þeirri staðreynd að umfang skýrslunnar sem beðið er um er öllu meira en almennt tíðkast varðandi skýrslubeiðnir á grundvelli 54. gr. þingskapalaga. Ákveðið var að ráðast í ítarlegri vinnu en gert var ráð fyrir og rúmast innan reglnanna og því skipaði utanríkisráðherra starfshóp 30. ágúst sl. til að vinna skýrsluna. Hópurinn hóf þegar störf og í hann skipaði utanríkisráðherra þrjá valinkunna einstaklinga sem hafa mikla þekkingu á þeim málum, þ.e. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, sem er formaður hópsins, Kristrúnu Heimisdóttur og Bergþóru Halldórsdóttur. Starfshópurinn fær 12 mánuði til skýrslugerðarinnar og hefur þegar farið af stað af miklum krafti. Hann hefur haldið fimm fundi á einum mánuði og hitt um tíu sérfræðinga nú þegar.

Það er vel við hæfi að gera ítarlega og vandaða úttekt á aðild Íslands að samningnum þegar 25 ár eru liðinn frá gildistöku hans.

Ólafur Ísleifsson Miðflokkurinn um atkvæðagreiðslu
70 orð
Herra forseti. Ég þakka ráðherra upplýsingarnar sem hann ber fram um málið. Ég vil nota tækifærið til að árétta að þessi tillaga er endurflutt með það að markmiði að halda málinu, eins og það heitir, í réttum þinglegum farvegi. Málið er algerlega óbreytt að öðru leyti en því að í greinargerð er bætt við örlitlum texta þar sem það atriði er reifað sem ég er að gera grein fyrir núna.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn um atkvæðagreiðslu
201 orð
Herra forseti. Ég leyfi mér að lýsa yfir mikilli ánægju með það verklag sem hæstv. utanríkisráðherra hefur viðhaft hvað þetta varðar. Það skiptir máli að vandað sé til verka. Ef það þýðir að við þurfum að taka okkur lengri tíma til að fara yfir kosti og galla aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu þá gerum við það. Aðalmálið er að verkefnið, skýrslugerðin, rannsóknin, er í mjög góðum höndum fólks sem þekkir þessi mál út og inn. Ég tel mikilvægt að þingið sýni að það treysti því verkferli sem…

Herra forseti. Ég leyfi mér að lýsa yfir mikilli ánægju með það verklag sem hæstv. utanríkisráðherra hefur viðhaft hvað þetta varðar. Það skiptir máli að vandað sé til verka. Ef það þýðir að við þurfum að taka okkur lengri tíma til að fara yfir kosti og galla aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu þá gerum við það. Aðalmálið er að verkefnið, skýrslugerðin, rannsóknin, er í mjög góðum höndum fólks sem þekkir þessi mál út og inn. Ég tel mikilvægt að þingið sýni að það treysti því verkferli sem utanríkisráðherra hefur sett af stað og því fólki sem hefur verið kallað til vinnu; það fólk þarf svigrúm og stuðning af hálfu þingsins til vinnunnar.

Ég efast ekki um að við munum fá skýrsluna til ítarlegrar umræðu. Ekki veitir af. Ég vil um leið segja að ég furða mig á því að vissu leyti að sjá nokkra þingmenn Sjálfstæðisflokksins á þessari skýrslubeiðni. Ég spyr: Treysta þingmenn Sjálfstæðisflokksins ekki þeirri nefnd sem nú er að störfum varðandi úttektina, sem er gríðarlega mikilvæg, á EES-samstarfinu? Mér finnst skipta máli að við veitum þeirri nefnd svigrúm, tækifæri og frið til að vinna skýrsluna. Við munum síðan taka hana hér til efnislegrar og ítarlegrar umræðu þegar þar að kemur.

Jón Steindór Valdimarsson Viðreisn um atkvæðagreiðslu
123 orð
Herra forseti. Mál þetta er allt með miklum ólíkindum. Sams konar skýrslubeiðni var samþykkt á síðasta þingi. Við umræður þar kom mjög skýrt fram, m.a. af hálfu þess sem hér talar, að það væri algjörlega óframkvæmanlegt að vinna skýrslubeiðni af því umfangi sem þá var lögð fram á þeim tíma. Var varað mjög eindregið við því að menn legðu af stað í þá bráðræðisför. Utanríkisráðherra tók málið hins vegar alvarlega og í sínar hendur og er búinn að koma því í ágætisfarveg. Ég skil satt að…

Herra forseti. Mál þetta er allt með miklum ólíkindum. Sams konar skýrslubeiðni var samþykkt á síðasta þingi. Við umræður þar kom mjög skýrt fram, m.a. af hálfu þess sem hér talar, að það væri algjörlega óframkvæmanlegt að vinna skýrslubeiðni af því umfangi sem þá var lögð fram á þeim tíma. Var varað mjög eindregið við því að menn legðu af stað í þá bráðræðisför.

Utanríkisráðherra tók málið hins vegar alvarlega og í sínar hendur og er búinn að koma því í ágætisfarveg. Ég skil satt að segja ekki hvað vakir fyrir hv. þingmanni og þingmönnum sem eru á málinu núna. Eru þeir að biðja um tvær skýrslur núna? Ég átta mig ekki á þessu. Þetta er nú ekki til að auka virðingu Alþingis.

Katrín Jakobsdóttir Vinstrihreyfingin - grænt framboð um atkvæðagreiðslu
156 orð
Herra forseti. Ég kveð mér aðallega hljóðs til að reyna að átta mig á vinnulagi Alþingis í slíkum málum. Um skýrslubeiðnina sem var samþykkt á síðasta þingi, eins og aðra skýrslubeiðni frá hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni, háttar svo til að ráðherrarnir sem um ræðir, ég í tilviki hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar og hæstv. utanríkisráðherra í tilviki hv. þm. Ólafs Ísleifssonar, hafa sent Alþingi bréf. Við upplýstum að við teljum verkið svo viðamikið að við þurfum tiltekinn tíma. Við höfum lýst…

Herra forseti. Ég kveð mér aðallega hljóðs til að reyna að átta mig á vinnulagi Alþingis í slíkum málum. Um skýrslubeiðnina sem var samþykkt á síðasta þingi, eins og aðra skýrslubeiðni frá hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni, háttar svo til að ráðherrarnir sem um ræðir, ég í tilviki hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar og hæstv. utanríkisráðherra í tilviki hv. þm. Ólafs Ísleifssonar, hafa sent Alþingi bréf. Við upplýstum að við teljum verkið svo viðamikið að við þurfum tiltekinn tíma. Við höfum lýst því hvaða vinna stendur yfir og í hvaða ferli málin eru. Ég átta mig því ekki alveg á því af hverju Alþingi setur á dagskrá á nýjan leik, í tilfelli þessarar skýrslubeiðni, skýrslubeiðni sem er í ferli. Ég skil ekki tilganginn með því, hæstv. forseti, ef ég má gerast svo frökk að velta því fyrir mér hvort þetta sé ekki rætt á vettvangi forsætisnefndar og hv. þingflokksformanna. Mér finnst það ekki rökrétt, hæstv. forseti.

Björn Leví Gunnarsson Píratar um atkvæðagreiðslu
128 orð
Virðulegi forseti. Mig langar til að taka undir það sem hæstv. forsætisráðherra sagði hér rétt áðan. Ég er einmitt líka með skýrslubeiðni sem náði ekki að klárast fyrir lok síðasta þings. Mér var tjáð, af þeim sem eru í þessum þinglegu ferlum hér, að til þess að klára hana á formlegan hátt þyrfti ég að leggja hana fram aftur. Það er formsatriði að leggja þurfi skýrslubeiðnina aftur fram og að Alþingi þurfi aftur að greiða atkvæði um sömu skýrslubeiðni og þegar var búið að samþykkja.…

Virðulegi forseti. Mig langar til að taka undir það sem hæstv. forsætisráðherra sagði hér rétt áðan. Ég er einmitt líka með skýrslubeiðni sem náði ekki að klárast fyrir lok síðasta þings. Mér var tjáð, af þeim sem eru í þessum þinglegu ferlum hér, að til þess að klára hana á formlegan hátt þyrfti ég að leggja hana fram aftur.

Það er formsatriði að leggja þurfi skýrslubeiðnina aftur fram og að Alþingi þurfi aftur að greiða atkvæði um sömu skýrslubeiðni og þegar var búið að samþykkja. Það er mjög undarlegt. Í þessu tilviki virðist það bara vera formsatriði og við þurfum að tikka í boxið — sem er mjög undarlegt, verð ég að segja. Það væri kannski ráðlegt að breyta þingskapalögum á þann hátt að svona gerist ekki aftur.

Birgir Ármannsson Sjálfstæðisflokkur um atkvæðagreiðslu
167 orð
Herra forseti. Ég hygg að flutningsmenn málsins hafi fengið þau svör hjá skrifstofu þingsins að af þingtæknilegum ástæðum væri rétt að gera þetta svona og alveg ástæðulaust að vera að búa til pólitískan ágreining eða gera veður út af því. Ég spurðist fyrir þegar ég frétti af því og fékk þau svör að tryggara þætti að halda lífi í skýrslubeiðninni á þennan hátt og ég held að gert hafi verið eins og eðlilegt þótti við slíkar aðstæður. Auðvitað er ég þeirrar skoðunar að þegar fyrir liggur af…

Herra forseti. Ég hygg að flutningsmenn málsins hafi fengið þau svör hjá skrifstofu þingsins að af þingtæknilegum ástæðum væri rétt að gera þetta svona og alveg ástæðulaust að vera að búa til pólitískan ágreining eða gera veður út af því.

Ég spurðist fyrir þegar ég frétti af því og fékk þau svör að tryggara þætti að halda lífi í skýrslubeiðninni á þennan hátt og ég held að gert hafi verið eins og eðlilegt þótti við slíkar aðstæður. Auðvitað er ég þeirrar skoðunar að þegar fyrir liggur af hálfu viðkomandi ráðherra, hvort sem það er hæstv. utanríkisráðherra eins og í þessu tilviki eða hæstv. forsætisráðherra í öðru tilviki, að mál er í fullri vinnslu og góðum farvegi ætti frekari aðkoma þingsins að skýrslubeiðninni að vera óþörf. Ég held hins vegar að ef þingtæknileg atriði eða þingsköp gera þá kröfu að við samþykkjum það formlega þurfum við ekki að gera pólitískt veður út af því eða eigna mönnum einhverjar pólitískar meiningar, sem mér heyrðist sumir hv. þingmenn gera áðan.

Steingrímur J. Sigfússon Vinstrihreyfingin - grænt framboð ræða
104 orð
Forseti vonar að ekki þurfi mikið meiri umræður um þetta og við getum farið að ganga til atkvæða. Málið er tiltölulega einfalt. Það sem kunna að virðast órannsakanlegir vegir þingsins eru það alls ekki. Hér er fyrst og fremst sá munur á að hafi beiðni komið fram um að gerð sé skýrsla þá skiptir auðvitað í fyrsta lagi máli að sú skýrsla verði unnin og að hún komi fram. Það að skýrslubeiðni sé endurflutt og stofnað nýtt þingmál á nýju þingi þýðir að berist skýrslan innan þess þings verður hún…

Forseti vonar að ekki þurfi mikið meiri umræður um þetta og við getum farið að ganga til atkvæða. Málið er tiltölulega einfalt. Það sem kunna að virðast órannsakanlegir vegir þingsins eru það alls ekki. Hér er fyrst og fremst sá munur á að hafi beiðni komið fram um að gerð sé skýrsla þá skiptir auðvitað í fyrsta lagi máli að sú skýrsla verði unnin og að hún komi fram.

Það að skýrslubeiðni sé endurflutt og stofnað nýtt þingmál á nýju þingi þýðir að berist skýrslan innan þess þings verður hún sjálfkrafa að þingskjali, ella fær skýrslan stöðu munnlegrar skýrslu. Þetta er allt og sumt.