Deilur Rússa við Evrópuráðið

149. löggjafarþing Mál nr. 126 15. október 2018 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
856 orð
2 flokkar
Píratar Sjálfstæðisflokkur

Ríkisstjórn

Guðlaugur Þór Þórðarson
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 393 orð

Stjórnarandstaða

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
Píratar
2 ræður 463 orð

Tímalína umræðunnar

15. október 2018
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Píratar ræða
245 orð
Herra forseti. Sú sem hér stendur er í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins fyrir hönd Alþingis. Það er af þeim sökum sem ég kem hér upp og tala við hæstv. utanríkisráðherra um Evrópuráðið, sem er helsti framvörður mannréttindaverndar í Evrópu og víðar. Eins og ráðherra er kunnugt hefur starfsemi Evrópuráðsþingsins verið í uppnámi um þó nokkurn tíma vegna fjarveru sendinefndar Rússa frá þinginu allt frá árinu 2015 og síðar vegna þess að Rússar hafa neitað að borga sín lögbundnu meðlimagjöld í…

Herra forseti. Sú sem hér stendur er í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins fyrir hönd Alþingis. Það er af þeim sökum sem ég kem hér upp og tala við hæstv. utanríkisráðherra um Evrópuráðið, sem er helsti framvörður mannréttindaverndar í Evrópu og víðar.

Eins og ráðherra er kunnugt hefur starfsemi Evrópuráðsþingsins verið í uppnámi um þó nokkurn tíma vegna fjarveru sendinefndar Rússa frá þinginu allt frá árinu 2015 og síðar vegna þess að Rússar hafa neitað að borga sín lögbundnu meðlimagjöld í meira en ár.

Segja má að deila Rússa við Evrópuráðið hafi náð ákveðnum suðupunkti í liðinni viku á nýafstöðnu þingi Evrópuráðsþingsins þegar ekki tókst að ná í gegn ákveðnum breytingum á þingsköpum Evrópuráðsþingsins sem hefði mátt líta á sem skref í átt til sátta á milli Rússlands og Evrópuráðsþingsins. Í ljósi þessara atburða má leiða að því líkur að Rússar yfirgefi Evrópuráðið á einn eða annan hátt með alvarlegum afleiðingum fyrir framtíð Evrópuráðsins og þeim mun alvarlegri afleiðingum fyrir borgara Rússlands sem þá munu ekki lengur njóta verndar mannréttindasáttmála Evrópu.

Spurning mín til ráðherra, út af þessari atburðarás, er tvíþætt. Í fyrsta lagi: Hvað hyggst ráðherra gera til að beita sér fyrir því að reyna að ná sáttum og halda Rússum inni, ef eitthvað? Og: Ef allt fer á versta veg og Rússar ganga úr Evrópuráðinu, mun ráðherra beita sér fyrir því að hin eftirstandandi 46 aðildarríki hlaupi undir bagga með Evrópuráðinu hvað fjármagn varðar og leggi til þau 10% fjárlaga Evrópuráðsins sem tapast við útgöngu Rússa?

Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur ræða
240 orð
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þingmaðurinn fór hér yfir stöðu sem við þekkjum. Ég átti fund með Thorbjørn Jagland í New York fyrir nokkrum vikum síðan þar sem hann setti mig inn í þessi mál. Á þessum tímapunkti höfum við ekki tekið neina ákvörðun um hvernig við bregðumst við eða hvort rétt sé að við göngum inn í samskipti Rússa og Evrópuráðsins. Thorbjørn Jagland þekkir vel til Íslands og vildi tala við okkur m.a. út af þeirri stöðu sem þarna er komin…

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þingmaðurinn fór hér yfir stöðu sem við þekkjum. Ég átti fund með Thorbjørn Jagland í New York fyrir nokkrum vikum síðan þar sem hann setti mig inn í þessi mál. Á þessum tímapunkti höfum við ekki tekið neina ákvörðun um hvernig við bregðumst við eða hvort rétt sé að við göngum inn í samskipti Rússa og Evrópuráðsins. Thorbjørn Jagland þekkir vel til Íslands og vildi tala við okkur m.a. út af þeirri stöðu sem þarna er komin upp. Hún er alvarleg og óheppileg. En við höfum ekki sest sérstaklega niður núna eftir þá atburði sem hv. þingmaður vísar til. Ef ég skil hv. þingmann rétt er komin ákveðin ögurstund í þessu máli. En hins vegar munum við gera það sem við getum til þess að styðja Evrópuráðið og ég er sammála því að það er ekki gott fyrir almenning í Rússlandi ef svona fer.

Málið er auðvitað mjög flókið og erfitt og tengist atburðum sem við þekkjum öll sem hafa haft miklu meiri áhrif en bara það sem snýr að Evrópuráðinu. Á þessum tímapunkti er svarið við fyrirspurninni einfaldlega þetta: Það er ekki komið á þann stað að við höfum tekið neina ákvörðun um slíkt enda hefur enginn farið fram á það við okkur að við göngum inn í málið.

Varðandi seinni spurninguna er mikilvægt að sjá til þess að Evrópuráðið geti sinnt hlutverki sínu. Eðli málsins samkvæmt þarf fjármuni til þess.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Píratar ræða
218 orð
Herra forseti. Ég þakka svarið. Ég vil þá beina því til hæstv. ráðherra að leggjast yfir málið sem fyrst. Ég hafði ekki séð fyrir mér að Ísland yrði leiðandi í samningaviðræðum við Rússa hvað Evrópuráðið varðar, en að við værum alla vega meðvituð um þá stöðu sem nú er uppi og værum tilbúin að beita okkur í átt til sátta ef á þyrfti að halda. Mig skorti hins vegar svar við þeirri spurningu hvort hæstv. ráðherra sjái fyrir sér að leggja til aukin framlög til Evrópuráðsins til að koma til móts…

Herra forseti. Ég þakka svarið. Ég vil þá beina því til hæstv. ráðherra að leggjast yfir málið sem fyrst. Ég hafði ekki séð fyrir mér að Ísland yrði leiðandi í samningaviðræðum við Rússa hvað Evrópuráðið varðar, en að við værum alla vega meðvituð um þá stöðu sem nú er uppi og værum tilbúin að beita okkur í átt til sátta ef á þyrfti að halda. Mig skorti hins vegar svar við þeirri spurningu hvort hæstv. ráðherra sjái fyrir sér að leggja til aukin framlög til Evrópuráðsins til að koma til móts við þau 10% sem Evrópuráðið missir úr fjárlögum sínum við útgöngu Rússa. Mögulega bæti ég þeirri spurningu við hvort ráðherra gæti séð fyrir sér samvinnu hinna svokölluðu NB8-ríkja, eða alla vega Norðurlandanna, hvað það varðar að koma til móts við niðurskurðinn; ganga fram með góðu fordæmi, lýsa því jafnvel yfir fljótlega að við séum reiðubúin að koma til móts við vandann. Ef það kæmi frá litla Íslandi væri t.d. erfiðara fyrir Þýskaland að koma sér undan því. Þessir peningar eru smámunir í hinu alþjóðlega samhengi. Þetta er gríðarlega lág upphæð ef horft er á miklu stærra alþjóðlegt samstarf þar sem miklu meiri peningar eru í spilinu. Mun ráðherra beita sér fyrir því að við þurfum ekki að horfa fram á gríðarlegan niðurskurð á starfi Evrópuráðsins í framtíðinni?

Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur ræða
153 orð
Virðulegi forseti. Ég á von á því að við ræðum þetta á vettvangi Norðurlandanna og sömuleiðis NB8. Ég held að það skipti máli að við séum samstiga hinum nánu vinaþjóðum okkar hvort sem það er í þessu málefni eða mjög mörgum öðrum, en kannski sérstaklega í þessu. Á þessum tímapunkti held ég að ekki sé rétt að vera með stórar yfirlýsingar um það sem tengist hugsanlegri útgöngu Rússa. Við skulum vona að menn nái einhverri niðurstöðu sem væri ásættanlegri. Við skulum byrja á því að sjá…

Virðulegi forseti. Ég á von á því að við ræðum þetta á vettvangi Norðurlandanna og sömuleiðis NB8. Ég held að það skipti máli að við séum samstiga hinum nánu vinaþjóðum okkar hvort sem það er í þessu málefni eða mjög mörgum öðrum, en kannski sérstaklega í þessu. Á þessum tímapunkti held ég að ekki sé rétt að vera með stórar yfirlýsingar um það sem tengist hugsanlegri útgöngu Rússa. Við skulum vona að menn nái einhverri niðurstöðu sem væri ásættanlegri. Við skulum byrja á því að sjá hvað verður. Það er mat flestra að þrátt fyrir að deilur hafi verið út af framgöngu Rússa sé betra að hafa þá þarna inni en ekki. Þannig að við skulum vonast til þess að þeir verði áfram inni og styðja Thorbjørn Jagland í þeim verkefnum. Síðan munum við taka á þeirri stöðu sem upp kemur ef hún kemur upp. Þá liggur fyrir vilji okkar að styðja Evrópuráðið.