Umræða um stöðu ESB-viðræðna

140. löggjafarþing Mál nr. 845 26. apríl 2012 Sjá á Alþingi.is ↗
18 ræður
13 þingmenn
185 orð
1 flokkar
Framsóknarflokkur

Ríkisstjórn

Stjórnarandstaða

Sigurður Ingi Jóhannsson
Framsóknarflokkur
1 ræða 185 orð

Tímalína umræðunnar

26. apríl 2012
Jón Bjarnason flutningsræða
Ásta R. Jóhannesdóttir ræða
Ragnheiður E. Árnadóttir ræða
Ásta R. Jóhannesdóttir ræða
Össur Skarphéðinsson ræða
Ásmundur Einar Daðason ræða
Ásta R. Jóhannesdóttir ræða
Birgir Ármannsson ræða
Guðlaugur Þór Þórðarson ræða
Magnús Orri Schram ræða
Jón Bjarnason ræða
Unnur Brá Konráðsdóttir ræða
Sigurður Ingi Jóhannsson Framsóknarflokkur ræða
185 orð
Hæstv. forseti. Ég vil koma hingað upp undir þessum lið, fundarstjórn forseta, og taka undir beiðni hv. þm. Jóns Bjarnasonar um að eiga viðræður við forsætisráðherra um það stefnumál ríkisstjórnarinnar sem forsætisráðherra hefur lagt ríka áherslu á að sé helsta og jafnvel eina stefnumál ríkisstjórnarinnar. Hæstv. utanríkisráðherra hefur látið að því liggja í blaðagreinum að fljótlega þurfi Samfylkingin að taka upp nýja stefnu þar sem sú umræða fari fram um að þetta stefnumál sé að detta út. …

Hæstv. forseti. Ég vil koma hingað upp undir þessum lið, fundarstjórn forseta, og taka undir beiðni hv. þm. Jóns Bjarnasonar um að eiga viðræður við forsætisráðherra um það stefnumál ríkisstjórnarinnar sem forsætisráðherra hefur lagt ríka áherslu á að sé helsta og jafnvel eina stefnumál ríkisstjórnarinnar. Hæstv. utanríkisráðherra hefur látið að því liggja í blaðagreinum að fljótlega þurfi Samfylkingin að taka upp nýja stefnu þar sem sú umræða fari fram um að þetta stefnumál sé að detta út.

Það er líka rétt sem fram kom hjá hæstv. utanríkisráðherra, að hann hafi verið tilbúinn að taka þessa umræðu að sér og hafa hana síðasta mánudag, en það varð samkomulag allra um að falla frá því vegna þess að það mundi falla saman við þann tíma þegar landsdómur yrði kveðinn upp. Hv. þm. Jón Bjarnason óskaði eftir umræðu, sú beiðni stendur enn og ég tel að forseti verði að verða við henni. Umræðan í dag, um stöðu ESB-viðræðna, mun hins vegar

gjalda fyrir það að sú umræða hefur ekki farið fram því að það eru vissulega mjög mörg önnur utanríkismál sem við þurfum að eiga við hæstv. utanríkisráðherra.

Róbert Marshall ræða
Guðlaugur Þór Þórðarson ræða
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræða
Ásmundur Einar Daðason ræða
Atli Gíslason ræða