Íslenskur landbúnaður og ESB

139. löggjafarþing Mál nr. 525 27. janúar 2011 Sjá á Alþingi.is ↗
5 ræður
3 þingmenn
520 orð
1 flokkar
Framsóknarflokkur

Ríkisstjórn

Stjórnarandstaða

Sigurður Ingi Jóhannsson
Framsóknarflokkur
2 ræður 520 orð

Tímalína umræðunnar

27. janúar 2011
Sigurður Ingi Jóhannsson Framsóknarflokkur ræða
311 orð
Virðulegi forseti. Þetta voru áhugaverðar umræður. Ég spurði hv. formann utanríkismálanefndar út í þetta sama mál í gær og þá kom fram að tveimur spurningum hefði ekki verið svarað skriflega, öllum öðrum hefði verið svarað skriflega. Því spyr ég enn og aftur og nú gengur ekki, hæstv. utanríkisráðherra, að mala eins og köttur um hið evrópska faðmlag heldur er nú komið að ögurstundu. Nú er að segja satt og rétt frá. Nú er verið að tala um hagsmuni Íslendinga í samningaviðræðum, um það hverju…

Virðulegi forseti. Þetta voru áhugaverðar umræður. Ég spurði hv. formann utanríkismálanefndar út í þetta sama mál í gær og þá kom fram að tveimur spurningum hefði ekki verið svarað skriflega, öllum öðrum hefði verið svarað skriflega. Því spyr ég enn og aftur og nú gengur ekki, hæstv. utanríkisráðherra, að mala eins og köttur um hið evrópska faðmlag heldur er nú komið að ögurstundu. Nú er að segja satt og rétt frá.

Nú er verið að tala um hagsmuni Íslendinga í samningaviðræðum, um það hverju er verið að flagga, um hvað á að semja í anda þeirra skilyrða sem hér voru samþykkt sumarið 2009 í meirihlutagreinargerð og þingsályktun sem hér var samþykkt. Hverju var flaggað? Af hverju í ósköpunum er tveimur spurningum ekki svarað skriflega en öllum hinum 50 eða 90? Hvað stóð í þessum spurningum? Um hvað var spurt og hverju var svarað? Í anda þeirrar þingsályktunartillögu sem hér var samþykkt kemur m.a. fram að hæstv. ráðherra skuli gefa skýrslu reglulega og það skuli hafa samráð við allar fagnefndir þingsins sem og utanríkismálanefnd. Þess vegna gengur ekki að koma hér og fara í kringum þetta eins og köttur í kringum heitan graut heldur verður að segja sannleikann.

Einnig hefur komið fram á fundum sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar að á vegum utanríkisráðuneytisins, væntanlega frekar en aðalsamninganefndarinnar, hefur verið unnið að öðru máli sem snertir þessar viðræður, tollvernd íslenska landbúnaðarins, sem er gríðarlega mikið atriði og eitt af þeim atriðum sem er verið að flagga. Við höfum heyrt ávinning af því að unnin hafi verið skýrsla um með hvaða hætti Ísland gerir kröfu um þetta. Þá skýrslu höfum við ekki séð og ég geri eiginlega þá kröfu að ráðherrann upplýsi okkur um það hvort hún verði ekki lögð fram til fagnefndanna til að við getum fylgst með því

hvað er verið að tala um af hálfu ríkisstjórnarinnar, hvort sem það er munnlegt eða skriflegt.

Össur Skarphéðinsson ræða
Sigurður Ingi Jóhannsson Framsóknarflokkur ræða
209 orð
Virðulegi forseti. Á upplýsingafundinum sem var ágætur kom m.a. fram um það efni sem við erum að spyrja ítrekað um að nokkuð óljóst væri hvernig með yrði farið, hvernig svarað yrði spurningum um hvenær og hvernig Ísland ætlaði að taka upp hið evrópska regluverk í landbúnaði. Þess vegna er mjög mikilvægt á síðasta degi rýnifundanna að við fáum að vita hvað verið er að tala um. Það var um það trúnaður þangað til búið yrði að tala um það við samninganefndina í Brussel og við það höfum við…

Virðulegi forseti. Á upplýsingafundinum sem var ágætur kom m.a. fram um það efni sem við erum að spyrja ítrekað um að nokkuð óljóst væri hvernig með yrði farið, hvernig svarað yrði spurningum um hvenær og hvernig Ísland ætlaði að taka upp hið evrópska regluverk í landbúnaði. Þess vegna er mjög mikilvægt á síðasta degi rýnifundanna að við fáum að vita hvað verið er að tala um. Það var um það trúnaður þangað til búið yrði að tala um það við samninganefndina í Brussel og við það höfum við staðið.

Varðandi skýrsluna um tollvernd höfum við upplýsingar um að hún hafi verið unnin í nóvember en að ekki eigi að vinna hana á næstunni. Það er mjög mikilvægt að við fáum þær upplýsingar. Það er líka rétt að það er ekkert mál að kalla eftir upplýsingum og fá nýja fundi til að fá þessar upplýsingar fram og það munum við án efa gera.

En staðreyndin er auðvitað sú að Evrópuganga hæstv. utanríkisráðherra haltrar og gott betur en það. Hún skjögrar á milli þeirra sem eru þjóðernissósíalistar

og hinna, hægri kratanna, hefðbundnu kratanna sem vilja fara með okkur öll inn í Brussel. Þetta gengur

ekki lengur. Við eigum að gera eitthvað skynsamlegra en að eyða tíma okkar og peningum í þetta.

Össur Skarphéðinsson ræða
Ásta R. Jóhannesdóttir ræða