Stjórnarsamstarfið -- sala Sjóvár -- nefndarfundir -- ESB o.fl.

139. löggjafarþing Mál nr. 1278 6. september 2011 Sjá á Alþingi.is ↗
18 ræður
16 þingmenn
338 orð
1 flokkar
Framsóknarflokkur

Ríkisstjórn

Stjórnarandstaða

Sigurður Ingi Jóhannsson
Framsóknarflokkur
1 ræða 338 orð

Tímalína umræðunnar

6. september 2011
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ræða
Þuríður Backman ræða
Guðlaugur Þór Þórðarson ræða
Ásta R. Jóhannesdóttir ræða
Ásmundur Einar Daðason ræða
Valgerður Bjarnadóttir ræða
Ásta R. Jóhannesdóttir ræða
Sigurður Ingi Jóhannsson Framsóknarflokkur ræða
338 orð
Virðulegi forseti. Ég kem upp til að ræða sama mál og hv. þingmenn ræddu hér áðan, þ.e. hver staðan sé í viðræðuferlinu og hvort þinginu sé ljós sú staða. Erum við nægilega upplýst? Sjálfur óskaði ég eftir fundi í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd í júlíbyrjun. Sá fundur var haldinn um miðjan ágúst. Ég bað um að haldinn yrði opinn fundur. Síðan kom upp sú hugmynd að sá fundur yrði sameiginlegur með utanríkismálanefnd. Það er núna búið að vera í skoðun í þrjár vikur. Ég heyri síðan að…

Virðulegi forseti. Ég kem upp til að ræða sama mál og hv. þingmenn ræddu hér áðan, þ.e. hver staðan sé í viðræðuferlinu og hvort þinginu sé ljós sú staða. Erum við nægilega upplýst? Sjálfur óskaði ég eftir fundi í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd í júlíbyrjun. Sá fundur var haldinn um miðjan ágúst. Ég bað um að haldinn yrði opinn fundur. Síðan kom upp sú hugmynd að sá fundur yrði sameiginlegur með utanríkismálanefnd. Það er núna búið að vera í skoðun í þrjár vikur. Ég heyri síðan að varaformaður utanríkismálanefndar fær boð frá hæstv. utanríkisráðherra um að halda fund. Það er ekki það sama, Jón og séra Jón.

Það gerist samdægurs. Ég er búinn að bíða núna síðan í byrjun júlí eftir þessum fundi, þ.e. í tvo mánuði. Ég hef líka beðið um opinn fund, en þessi fundur í dag á ekki að vera það.

Er okkur ljóst hvernig ferlið er? Á þessum fundi í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd var upplýst að enginn veit hvar verið er að vinna samningsmarkmið í landbúnaðarmálum. Það veit enginn. Farðu á netið. Það veit enginn.

Það er svolítið sérstakt að við séum ekki upplýst í þessu máli. Farðu inn á netið.

Ég held jafnframt að það væri skynsamlegast í ljósi þess sem kom margítrekað fram í sumar, þar sem voru misvísandi og óljósar yfirlýsingar hæstv. utanríkisráðherra um þetta mál, og kannski líka í ljósi þessa bréfs sem kom frá Evrópusambandinu í gær um svokallað „Opening Marks“ að til að bæta við þann lista sem við þurfum að ræða um á þessum sameiginlega fundi, þ.e. hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fengjum við einnig sendiherra ESB á Íslandi, Timo Summa, til að koma á slíkan fund. Þá fáum við upplýsingarnar beint en ekki túlkaðar af hæstv. utanríkisráðherra sem hefur yfirlýst markmið um að ganga í Evrópusambandið. Það er ekki vilji þjóðarinnar, það eru 60–65%

sem vilja það ekki. Síðast í morgun kom í ljós að 50–56% þjóðarinnar vilja draga umsóknina til baka. Ég held að þingmenn ættu

líka að taka tillit til þess stóra hóps.

Ásta R. Jóhannesdóttir ræða
Lilja Mósesdóttir ræða
Sigmundur Ernir Rúnarsson ræða
Pétur H. Blöndal ræða
Sigurður Kári Kristjánsson ræða
Björgvin G. Sigurðsson ræða
Birkir Jón Jónsson ræða
Ragnheiður E. Árnadóttir ræða
Lilja Rafney Magnúsdóttir ræða
Össur Skarphéðinsson ræða