Gagnaver í Reykjanesbæ

138. löggjafarþing Mál nr. 966 31. maí 2010 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
806 orð
2 flokkar
Framsóknarflokkur Vinstrihreyfingin - grænt framboð

Ríkisstjórn

Stjórnarandstaða

Steingrímur J. Sigfússon
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
2 ræður 493 orð
Vigdís Hauksdóttir
Framsóknarflokkur
2 ræður 313 orð

Tímalína umræðunnar

31. maí 2010
Vigdís Hauksdóttir Framsóknarflokkur ræða
153 orð
Virðulegi forseti. Í frumvarpi til laga um heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ gerði ESA athugasemdir við lengd ríkisábyrgðarinnar sem stendur til að veita fyrirtækinu. ESA taldi 20 ára ríkisábyrgð fyrir gagnaverið of langa og mæltist til að ríkisábyrgðin yrði stytt í 10 ár. Eftir 2. umr. um frumvarpið gerist það hér á landi að gagnaverið Thor Data Center er opnað án ríkisábyrgðar og annarra ívilnana frá íslenska ríkinu. Það gjörbreytti landslaginu í þessari atvinnugrein hér á…

Virðulegi forseti. Í frumvarpi til laga um heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ gerði ESA athugasemdir við lengd ríkisábyrgðarinnar sem stendur til að veita fyrirtækinu. ESA taldi 20 ára ríkisábyrgð fyrir gagnaverið of langa og mæltist til að ríkisábyrgðin yrði stytt í 10 ár.

Eftir 2. umr. um frumvarpið gerist það hér á landi að gagnaverið Thor Data Center er opnað án ríkisábyrgðar og annarra ívilnana frá íslenska ríkinu. Það gjörbreytti landslaginu í þessari atvinnugrein hér á landi og ógildir í raun frumvarpið um sérsamninga á milli ríkisins og Verne Holdings vegna samkeppnissjónarmiða EES-réttar.

Því spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: Er búið að tilkynna ríkisábyrgð til Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, í samræmi við 61. gr. EES-samningsins og er ESA búið að samþykkja hana í samræmi við ákvæði EES-samningsins um ríkisaðstoð? Er búið að koma til ESA þeirri vitneskju um gagnaver Thor Data Center að forsendur ríkisábyrgðarinnar fyrir gagnaver Verne Holdings séu þar með brostnar?

Steingrímur J. Sigfússon Vinstrihreyfingin - grænt framboð ræða
277 orð
Frú forseti. Hv. þingmaður virðist hafa allar upplýsingar um samskipti við ESA vegna málefna fyrirtækisins Verne Holdings og um áform þess um uppbyggingu gagnavers í Reykjanesbæ sem hafa reyndar verið í undirbúningi alllengi, sömuleiðis þær athugasemdir sem stofnunin hefur gert, enda gengu upphafleg drög að þeim fjárfestingarsamningi lengra. Í meðförum innan Stjórnarráðsins var dregið verulega úr þeim ívilnunum sem fyrirtækinu höfðu upphaflega verið ætluð í fyrstu drögum að…

Frú forseti. Hv. þingmaður virðist hafa allar upplýsingar um samskipti við ESA vegna málefna fyrirtækisins Verne Holdings og um áform þess um uppbyggingu gagnavers í Reykjanesbæ sem hafa reyndar verið í undirbúningi alllengi, sömuleiðis þær athugasemdir sem stofnunin hefur gert, enda gengu upphafleg drög að þeim fjárfestingarsamningi lengra. Í meðförum innan Stjórnarráðsins var dregið verulega úr þeim ívilnunum sem fyrirtækinu höfðu upphaflega verið ætluð í fyrstu drögum að fjárfestingarsamningi. Engu að síður varð niðurstaðan sú að þarna væri um of langan tíma að ræða og að sjálfsögðu er þá brugðist við því.

Nú þekki ég ekki nákvæmlega hvort starfsemi Thor-gagnaversins er sambærileg eða byggð á sams konar viðskiptalegum grunni. Ég hef einfaldlega ekki upplýsingar um það, hef því miður ekki haft tíma eða aðstöðu til að kynna mér það. Að sjálfsögðu gleðjumst við yfir því frumkvæði sem þar hefur verið sýnt. Það getur skipt máli hvernig viðskiptauppleggið er hvað varðar samskipti við þá aðila sem veitt er þjónusta, og álitamál eins og starfsstöð eða staðfesta gagnvart þjónustuaðilunum skiptir þar sköpum. Ég get ekki fullyrt hvort þessi mál séu þannig hliðstæð eða sambærileg að tilefni sé til að hvort hafi áhrif á hitt.

Varðandi fyrirkomulag ívilnandi aðgerða almennt er frumvarp til meðferðar á þingi þar sem reynt er að koma þessu í almennan farveg þannig að menn hætti eða komist í burtu frá því fyrirkomulagi að semja um hvert mál fyrir sig einhverja sérstaka klæðskerasaumaða fjárfestingarsamninga með mismunandi ívilnunum, heldur reyni að byggja á einhverri almennri stefnu sem sé samrýmanleg samkeppnisreglum okkar og skuldbindingum varðandi Evrópuréttinn á sviði byggðamála

og annað í þeim dúr. Það er það framtíðarlandslag sem verið er að reyna að koma þessum málum í.

Vigdís Hauksdóttir Framsóknarflokkur ræða
160 orð
Virðulegi forseti. Það er leitt hvað hæstv. fjármálaráðherra virðist vera lítið inni í þessum málum. Ég get upplýst að gagnaverið sem var opnað hér er eitt það umhverfisvænasta í heiminum, knúið af hreinni orku, íslensku veðurfari og hugviti og er komið á eins og ég fór yfir áðan án ríkisstyrkja, ríkisaðstoðar og annarra ívilnana frá íslenska ríkinu. Þess vegna eru þeir samningar sem á að gera hér um gagnaver með sérstakar ríkisívilnanir bannaðir samkvæmt EES-samningnum. Íslenska ríkið brýtur…

Virðulegi forseti. Það er leitt hvað hæstv. fjármálaráðherra virðist vera lítið inni í þessum málum. Ég get upplýst að gagnaverið sem var opnað hér er eitt það umhverfisvænasta í heiminum, knúið af hreinni orku, íslensku veðurfari og hugviti og er komið á eins og ég fór yfir áðan án ríkisstyrkja, ríkisaðstoðar og annarra ívilnana frá íslenska ríkinu. Þess vegna eru þeir samningar sem á að gera hér um gagnaver með sérstakar ríkisívilnanir bannaðir samkvæmt EES-samningnum. Íslenska ríkið brýtur EES-samninginn ef það frumvarp sem nú liggur fyrir þinginu verður keyrt í gegnum 3. umr. og til afgreiðslu. Frumvarpið var komið á dagskrá þingsins fyrir helgi. Það er búið að taka það út af dagskrá þingsins á ný þannig að það væri fróðlegt ef hæstv. fjármálaráðherra mundi svara spurningunni: Er þetta vegna þess að íslenska ríkisstjórnin er að brjóta EES-samninginn með þessu frumvarpi eða er eitthvað nýtt komið fram hjá sérstökum saksóknara

sem veldur því að frumvarpið er ekki komið til umræðu?

Steingrímur J. Sigfússon Vinstrihreyfingin - grænt framboð ræða
216 orð
Frú forseti. Það er leitt að hryggja hv. þingmann. Ég vona að hún hafi daginn af þó að hún sé óánægð með það að ég segi söguna eins og hún er. Á mitt borð hafa ekki komið upplýsingar um málefni nákvæmlega þessa fyrirtækis. Mér var ásamt fleirum boðið að koma og skoða það, held ég, þegar það var á leiðinni á sinn stað í gámi, ef ég veit þetta rétt, en ég hafði ekki aðstöðu til þess frekar en nokkur annar þingmaður, að mér skildist af umsögn fjölmiðla. Ég hef ekki enn haft tækifæri til að…

Frú forseti. Það er leitt að hryggja hv. þingmann. Ég vona að hún hafi daginn af þó að hún sé óánægð með það að ég segi söguna eins og hún er. Á mitt borð hafa ekki komið upplýsingar um málefni nákvæmlega þessa fyrirtækis. Mér var ásamt fleirum boðið að koma og skoða það, held ég, þegar það var á leiðinni á sinn stað í gámi, ef ég veit þetta rétt, en ég hafði ekki aðstöðu til þess frekar en nokkur annar þingmaður, að mér skildist af umsögn fjölmiðla. Ég hef ekki enn haft tækifæri til að kynna mér þetta nánar, en ég var einmitt að hugleiða um daginn að það væri áhugavert.

Það er ákaflega gleðilegt þegar slíkir hlutir gerast. Ég hef reyndar átt viðræður við fleiri áhugasama aðila um uppbyggingu gagnavera og þeir hafa ekki sérstaklega nefnt að þeir þyrftu undanþágur eða sérreglur varðandi skatta. Hins vegar þekkjum við sögu þess fyrirtækis sem fyrst fór af stað með þessi áform og er búið að vinna að þessu alllengi. Það lagði af stað á grundvelli hugmynda um að gerður yrði sérstakur fjárfestingarsamningur. Það er forsaga þess máls.

Um annað sem hv. þingmaður spyr um

er mér með öllu ókunnugt, þ.e. í hvað hv. þingmaður vísar eða að hverju hv. þingmaður ýjar með tali um sérstakan saksóknara.