Aðildarumsókn að ESB og staða Grikkja

138. löggjafarþing Mál nr. 880 30. apríl 2010 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
715 orð
2 flokkar
Framsóknarflokkur Samfylkingin

Ríkisstjórn

Össur Skarphéðinsson
Samfylkingin
2 ræður 396 orð

Stjórnarandstaða

Vigdís Hauksdóttir
Framsóknarflokkur
2 ræður 319 orð

Tímalína umræðunnar

30. apríl 2010
Vigdís Hauksdóttir Framsóknarflokkur ræða
182 orð
Virðulegi forseti. Alþingi samþykkti að leggja inn umsókn að Evrópusambandinu án skilyrða síðasta sumar. Við vitum öll að staðan í Suður-Evrópu er afar slæm og staða Grikklands er svo slæm að það riðar á barmi gjaldþrots. Spánn stendur illa líka og er talið að vandræði Spánverja séu fimm sinnum meiri en vandræði Grikkja. Önnur ríki hafa verið nefnd þarna eins og Portúgal og Írland. Talið er að vandræði Grikkja nú geti leitt til þess að Grikkir yfirgefi Evrópusvæðið, verði jafnvel…

Virðulegi forseti. Alþingi samþykkti að leggja inn umsókn að Evrópusambandinu án skilyrða síðasta sumar. Við vitum öll að staðan í Suður-Evrópu er afar slæm og staða Grikklands er svo slæm að það riðar á barmi gjaldþrots. Spánn stendur illa líka og er talið að vandræði Spánverja séu fimm sinnum meiri en vandræði Grikkja. Önnur ríki hafa verið nefnd þarna eins og Portúgal og Írland.

Talið er að vandræði Grikkja nú geti leitt til þess að Grikkir yfirgefi Evrópusvæðið, verði jafnvel neyddir til að yfirgefa evrusvæðið. En í umræðum í sumar þegar Evrópusambandið var á dagskrá var ein helsta ástæðan fyrir því að við yrðum að sækja um aðild að Evrópusambandinu einmitt sú að við þyrftum nýjan gjaldmiðil og taldi Samfylkingin að evran væri sá gjaldmiðill sem við þyrftum að hafa. Það var gulrótin í umsókninni í sumar. Ég spyr hæstv. utanríkisráðherra í ljósi þeirra atburða sem nú eiga sér stað í Evrópu: Telur hæstv. utanríkisráðherra að sú ákvörðun hafi verið rétt að leggja inn umsókn að Evrópusambandinu, því að svo virðist vera að Evrópusambandið sé á leiðinni í allsherjargjaldþrot? [Hlátur í þingsal.]

Össur Skarphéðinsson Samfylkingin ræða
213 orð
Frú forseti. Það eru fréttir fyrir mig að Evrópusambandið sé á leið í gjaldþrot en hugsanlega getur þó Framsóknarflokkurinn tekið að sér hlutverk skilanefndarinnar. En þegar skoðanabróðir hv. þingmanns tjáði sig í fjölmiðlum frá Brussel í gær, Olli Rehn, sem fer með efnahagsmálin, taldi hann að andlát Evrópusambandsins væri mjög orðum aukið. Hann taldi jafnframt að innan nokkurra daga yrði búið að búa til pakka sem mundi koma Grikkjum úr þeim vanda sem þeir eru í núna. Hugsum okkur nú, frú…

Frú forseti. Það eru fréttir fyrir mig að Evrópusambandið sé á leið í gjaldþrot en hugsanlega getur þó Framsóknarflokkurinn tekið að sér hlutverk skilanefndarinnar. En þegar skoðanabróðir hv. þingmanns tjáði sig í fjölmiðlum frá Brussel í gær, Olli Rehn, sem fer með efnahagsmálin, taldi hann að andlát Evrópusambandsins væri mjög orðum aukið. Hann taldi jafnframt að innan nokkurra daga yrði búið að búa til pakka sem mundi koma Grikkjum úr þeim vanda sem þeir eru í núna.

Hugsum okkur nú, frú forseti, að Ísland hefði verið innan Evrópusambandsins og orðið Evrópuríki þegar það komst í þau vandræði sem fyrri stjórnir og síðari hafa komið Íslendingum í. Ætli það hefði þá ekki verið þokkalegt fyrir okkur að geta haft slíkan bakhjarl? Ætli við á Íslandi hefðum ekki tekið fagnandi svipuðum aðgerðapakka ef við hefðum verið orðin evruþjóð þá?

Ég er líka þeirrar skoðunar, frú forseti, að ef Ísland hefði fyrir tíu árum síðan sótt um aðild að Evrópusambandinu, hefði gengið í Evrópusambandið þá, hefði tekið upp evruna, eins og hefði verið mjög auðvelt á þeim tíma,

er að mínu viti mjög ólíklegt að efnahagshrunið hefði orðið á Íslandi. Í öllu falli tel ég að afleiðingarnar hefðu verið allt aðrar og miklu minni og eins og blasir við gagnvart Grikkjum núna hefðu Íslendingar átt bakhjarl.

Vigdís Hauksdóttir Framsóknarflokkur ræða
137 orð
Virðulegi forseti. Ég var ekki að spyrja hæstv. utanríkisráðherra um fortíðina og hugsanlega það sem hefði gerst hefðu aðrar ákvarðanir verið teknar fyrir tíu árum. Ég fer fram á að þeir ráðherrar sem sitja fyrir svörum á Alþingi haldi sig alla vega meira í nútíðinni, svo ekki sé meira sagt. Ég bar fram einfalda spurningu fyrir hæstv. utanríkisráðherra. Ég spurði að því hvort hann væri viss um að sú ákvörðun hafi verið rétt að leggja inn umsókn að Evrópusambandinu, vegna þessarar…

Virðulegi forseti. Ég var ekki að spyrja hæstv. utanríkisráðherra um fortíðina og hugsanlega það sem hefði gerst hefðu aðrar ákvarðanir verið teknar fyrir tíu árum. Ég fer fram á að þeir ráðherrar sem sitja fyrir svörum á Alþingi haldi sig alla vega meira í nútíðinni, svo ekki sé meira sagt.

Ég bar fram einfalda spurningu fyrir hæstv. utanríkisráðherra. Ég spurði að því hvort hann væri viss um að sú ákvörðun hafi verið rétt að leggja inn umsókn að Evrópusambandinu, vegna þessarar hugsanlegu evrugulrótar sem var sveiflað framan í þing og þjóð í sumar þar sem staðan á Evrópusvæðinu er orðin eins og hún er nú. Grikkland riðar á barmi gjaldþrots, Spánn er í mikilli hættu. Ég spyr um nútíðina, var rangt að fara þessa leið? Ég fer ekki fram á annað en að hæstv. utanríkisráðherra svari því.

Össur Skarphéðinsson Samfylkingin ræða
183 orð
Frú forseti. Svona líkar mér best við Framsóknarflokkinn, á hröðu undanhaldi. Í sinni fyrri ræðu sagði hv. þingmaður að það væri Evrópusambandið sem rambaði á barmi gjaldþrots en nú hefur hún smækkað það niður í svona tvær, þrjár, fjórar, fimm þjóðir. Ef hún mætti halda þriðju ræðuna yrði kannski bara ein þjóð eftir. Svar mitt er alveg afdráttarlaust. Ég tel að það hafi verið hárrétt ákvörðun hjá Alþingi, sem það tók raunar með stuðningi úr öllum flokkum sem á Alþingi sitja, að sækja um aðild…

Frú forseti. Svona líkar mér best við Framsóknarflokkinn, á hröðu undanhaldi. Í sinni fyrri ræðu sagði hv. þingmaður að það væri Evrópusambandið sem rambaði á barmi gjaldþrots en nú hefur hún smækkað það niður í svona tvær, þrjár, fjórar, fimm þjóðir. Ef hún mætti halda þriðju ræðuna yrði kannski bara ein þjóð eftir.

Svar mitt er alveg afdráttarlaust. Ég tel að það hafi verið hárrétt ákvörðun hjá Alþingi, sem það tók raunar með stuðningi úr öllum flokkum sem á Alþingi sitja, að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ég tel að það sé einn af lyklunum að því að leysa það vandamál sem við erum í núna. Ég tel að það sé einn af mikilvægustu þáttunum í uppbyggingarferlinu sem við erum komin í. Ég tel að það hafi verið hárrétt ákvörðun. En það skiptir í reynd ekki máli hvað mér finnst. Alþingi tók ákvörðunina og það verður þjóðin sem tekur ákvörðunina, Það er ekki rétt. það verður ekki utanríkisráðherra, ekki Framsóknarflokkur, ekki hv. þingmaður heldur þjóðin, alveg eins og þjóðin mun að lokum taka ákvörðun um hvort breyta eigi stjórnarskrá. Það er ekki rétt.