Samningsstaða Íslands og úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu

138. löggjafarþing Mál nr. 658 4. mars 2010 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
747 orð
2 flokkar
Sjálfstæðisflokkur Vinstrihreyfingin - grænt framboð

Ríkisstjórn

Ragnheiður E. Árnadóttir
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 408 orð

Stjórnarandstaða

Steingrímur J. Sigfússon
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
2 ræður 339 orð

Tímalína umræðunnar

4. mars 2010
Ragnheiður E. Árnadóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
250 orð
Frú forseti. Ég ætla að beina fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra og ég ætla að halda áfram að tala um sama mál vegna þess að mér finnst hæstv. fjármálaráðherra ekki svara skýrt. Ég tek undir með formanni Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Bjarna Benediktssyni, það er algjörlega ljóst að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla mun fara fram á laugardaginn og ég er í sjálfu sér ánægð með að hæstv. fjármálaráðherra sé loksins búinn að átta sig á því. Hins vegar vil ég spyrja ráðherrann beint út: Hvort…

Frú forseti. Ég ætla að beina fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra og ég ætla að halda áfram að tala um sama mál vegna þess að mér finnst hæstv. fjármálaráðherra ekki svara skýrt.

Ég tek undir með formanni Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Bjarna Benediktssyni, það er algjörlega ljóst að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla mun fara fram á laugardaginn og ég er í sjálfu sér ánægð með að hæstv. fjármálaráðherra sé loksins búinn að átta sig á því.

Hins vegar vil ég spyrja ráðherrann beint út: Hvort telur hæstv. fjármálaráðherra það styrkja betur samningsstöðu Íslands í framhaldinu að fólk mæti á kjörstað og greiði atkvæði með samningnum eða að það greiði atkvæði á móti samningnum? Er betra fyrir fólk að segja já eða segja nei upp á samningsstöðu Íslands í viðræðunum

sem verða í framhaldinu?

Næsta spurning til hæstv. fjármálaráðherra er þessi: Telur hæstv. fjármálaráðherra að það styrki samningsstöðu Íslands með einhverjum hætti að kjósendur mæti ekki á kjörstað á laugardaginn kemur? Mun það bæta stöðu Íslands með einhverjum hætti í framtíðarsamningaviðræðum að fólk mæti ekki til þess að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni?

Ég held að ég geti ekki talað skýrar. Núna eru tveir dagar í þessa kosningu. Samstaðan hefur komið okkur þangað sem við erum núna. Er ekki kominn tími til þess að íslenska ríkisstjórnin, ráðamenn Íslands, gangi fram fyrir skjöldu og tryggi að íslenska þjóðin viti hvernig hennar hagsmunum er best varið. Ég segi: Mætum öll á kjörstað og segjum nei. Nú bíð ég spennt eftir að heyra hverju hæstv. fjármálaráðherra svarar í þessum efnum.

Steingrímur J. Sigfússon Vinstrihreyfingin - grænt framboð ræða
160 orð
Frú forseti. Rétturinn er kjósandans. Kjósandinn ákveður það sjálfur hvort hann fer á kjörstað og ef hann fer á kjörstað hvort hann segir já, nei eða situr hjá. Ég ætla ekkert að fara að gefa út einhverjar „instrúksjónir“ hérna en ég heyri að aðrir eru ófeimnir við það. Ég held að það sé best bara að hver beri ábyrgð á sínum orðum og ákveði fyrir sig hversu hófstillt eða hástemmd þau eru. Færi ég að reyna að gefa hér einhverjar leiðbeiningar er eins víst að hv.…

Frú forseti. Rétturinn er kjósandans. Kjósandinn ákveður það sjálfur hvort hann fer á kjörstað og ef hann fer á kjörstað hvort hann segir já, nei eða situr hjá.

Ég ætla ekkert að fara að gefa út einhverjar „instrúksjónir“ hérna en ég heyri að aðrir eru ófeimnir við það.

Ég held að það sé best bara að hver beri ábyrgð á sínum orðum og ákveði fyrir sig hversu hófstillt eða hástemmd þau eru. Færi ég að reyna að gefa hér einhverjar leiðbeiningar er eins víst að hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson teldi þær skaðlegar og vitlausar og er ekki einu sinni víst að hv. þm. Ragnheiður Elín Árnadóttir yrði ánægð með þær, þannig að mér er nokkur vandi á höndum, en ég held að ég kjósi að hafa þetta svona. Við skulum bara láta fólkið í landinu hafa frið til þess að meta þetta sjálft og gera það sem það vill á laugardaginn,

kjósa eins og það vill eða sitja heima.

Ragnheiður E. Árnadóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
158 orð
Virðulegi forseti. Ég er ekki að biðja hæstv. fjármálaráðherra að vera með einhverja einræðistilburði hér. Ég er að biðja hæstv. fjármálaráðherra um að koma með pólitíska leiðsögn í þessu erfiða máli. [Hlátur í þingsal.] Ég er að biðja hæstv. fjármálaráðherra að koma fram fyrir íslensku þjóðina og sýna leiðtogahæfileika sem ég trúi ekki öðru en að hann hafi. Hvernig telur hæstv. fjármálaráðherra hagsmunum Íslands best borgið í framhaldinu í viðræðum? Telur hann t.d., eins og hv.…

Virðulegi forseti. Ég er ekki að biðja hæstv. fjármálaráðherra að vera með einhverja einræðistilburði hér. Ég er að biðja hæstv. fjármálaráðherra um að koma með pólitíska leiðsögn í þessu erfiða máli. [Hlátur í þingsal.] Ég er að biðja hæstv. fjármálaráðherra að koma fram fyrir íslensku þjóðina og sýna leiðtogahæfileika sem ég trúi ekki öðru en að hann hafi. Hvernig telur hæstv. fjármálaráðherra hagsmunum Íslands best borgið í framhaldinu í viðræðum? Telur hann t.d., eins og hv. þm. Ögmundur Jónasson, sem var í sama útvarpsþætti og ég fyrr í vikunni, að það sé fullkomlega galið að fólk mæti á kjörstað og segi já? Það er nú einu sinni þannig að það liggur nýtt tilboð fyrir á borðinu þar sem munar, ef mér skjöplast ekki, 80 milljörðum. Getur hæstv. fjármálaráðherra

tekið undir með mér að það hljóti að vera betra að halda áfram á þeirri vegferð

og tryggja það að íslenska þjóðin fái að fella þennan samning

á laugardaginn kemur?

Steingrímur J. Sigfússon Vinstrihreyfingin - grænt framboð ræða
179 orð
Frú forseti. Ég þakka að sjálfsögðu traustið, að ég hafi fengið hér áskorun um að taka að mér að veita þjóðinni pólitíska leiðsögn í þessari vandasömu stöðu. En nú er verið að kjósa hér í almennri þjóðaratkvæðagreiðslu um eitt tiltekið lagafrumvarp. Eitt er víst og það er að ef það frumvarp verður fellt er málið ekki leyst, þá er málið ekki búið, það er ekki horfið, það þarf áfram að vinna að því. Það er líka ljóst að það hefur orðið sú þróun í þessum…

Frú forseti. Ég þakka að sjálfsögðu traustið, að ég hafi fengið hér áskorun um að taka að mér að veita þjóðinni pólitíska leiðsögn í þessari vandasömu stöðu. En nú er verið að kjósa hér í almennri þjóðaratkvæðagreiðslu um eitt tiltekið lagafrumvarp. Eitt er víst og það er að ef það frumvarp verður fellt er málið ekki leyst, þá er málið ekki búið, það er ekki horfið,

það þarf áfram að vinna að því.

Það er líka ljóst að það hefur orðið sú þróun í þessum samningaviðræðum að okkur bjóðast hagstæðari kjör til að klára málið,

sú staðreynd verður ekki þurrkuð út. Ég segi: Þeim mun skýrar sem það liggur fyrir hvað við höfum í höndum áður en laugardagurinn rennur upp, þeim mun betra er það, það hlýtur að vera. Þar eiga kjósendur sinn rétt að fá upplýsingar þannig að þegar lotunni lýkur í London

er mikilvægt að upplýsa í framhaldinu nákvæmlega hver staða málsins er,

hvað er í hendi eða ekki í hendi, og það auðveldar mönnum væntanlega að gera upp hug sinn.

Forseti biður um þögn í þingsal.