Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu

138. löggjafarþing Mál nr. 619 25. febrúar 2010 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
667 orð
1 flokkar
Framsóknarflokkur

Ríkisstjórn

Stjórnarandstaða

Vigdís Hauksdóttir
Framsóknarflokkur
2 ræður 390 orð

Tímalína umræðunnar

25. febrúar 2010
Vigdís Hauksdóttir Framsóknarflokkur ræða
235 orð
Virðulegi forseti. Þann 8. janúar 2010 samþykkti Alþingi lög um þjóðaratkvæðagreiðslur að undangenginni synjun forseta Íslands á lögum nr. 1/2010. Dómsmálaráðuneytið hefur nú í samráði við landskjörstjórn gefið út að þjóðaratkvæðagreiðsla skuli fara fram þann 6. mars nk. Miklar umræður hafa verið í þjóðfélaginu um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar og fulltrúar stjórnarflokkanna verið með yfirlýsingar um að ekki verði af atkvæðagreiðslunni. Vilji…

Virðulegi forseti. Þann 8. janúar 2010 samþykkti Alþingi lög um þjóðaratkvæðagreiðslur að undangenginni synjun forseta Íslands á lögum nr. 1/2010. Dómsmálaráðuneytið hefur nú í samráði við landskjörstjórn gefið út að þjóðaratkvæðagreiðsla skuli fara fram þann 6. mars nk. Miklar umræður hafa verið í þjóðfélaginu um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar og fulltrúar stjórnarflokkanna verið með yfirlýsingar um að ekki verði af atkvæðagreiðslunni. Vilji Framsóknarflokksins er skýr í þessu efni, þjóðaratkvæðagreiðslan á að fara fram enda er málið í þeim stjórnskipulega farvegi.

Því langar mig til að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra: Er búið að uppfylla 2. gr. laganna um að fullvinna kjörskrár fyrir kosninguna? Þær skulu miðaðar við íbúaskrá þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag.

Er búið að undirbúa sveitarstjórnir um land allt í þeim tilgangi að birta kjörskrá viku fyrir kjördag? Þær eiga að liggja frammi þá viku öllum til sýnis.

Er búið að prenta kjörseðla fyrir allar kjördeildir landsins og er búið að senda þá út til kjörstjórna í hverju kjördæmi?

Í 5. gr. laganna segir að viku fyrir kjördag skuli dómsmálaráðuneytið birta spurninguna með auglýsingu í Ríkisútvarpi og dagblöðum. Verða þessar auglýsingar birtar nk. laugardag? Þá verður vika til kosninga.

Lagastofnun Háskóla Íslands og dómsmálaráðuneytið kynntu hlutlausan bækling um þjóðaratkvæðagreiðsluna fyrir allsherjarnefnd fyrr í þessum mánuði. Sá bæklingur átti að berast hverju heimili í landinu 10 dögum fyrir atkvæðagreiðsluna. Er búið að dreifa þessum bæklingi á póststöðvar og berst hann landsmönnum nú fyrir helgina?

Ragna Árnadóttir ræða
214 orð
Virðulegi forseti. Ég þakka spurninguna. Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið starfar að sjálfsögðu að framkvæmd þeirra laga sem samþykkt voru á Alþingi í byrjun janúar. Samkvæmt minni vitneskju er búið að fullvinna kjörskrá og það er hægt að fara inn á vefinn kosning.is, slá inn kennitölu og athuga hvar maður er á kjörskrá. Hvað varðar prentun kjörseðla, já, það er búið að prenta kjörseðla og samkvæmt upplýsingum mínum er þessa stundina verið að pakka þeim til dreifingar þannig að það á…

Virðulegi forseti. Ég þakka spurninguna. Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið starfar að sjálfsögðu að framkvæmd þeirra laga sem samþykkt voru á Alþingi í byrjun janúar. Samkvæmt minni vitneskju er búið að fullvinna kjörskrá og það er hægt að fara inn á vefinn kosning.is, slá inn kennitölu og athuga hvar maður er á kjörskrá.

Hvað varðar prentun kjörseðla, já, það er búið að prenta kjörseðla og samkvæmt upplýsingum mínum er þessa stundina verið að pakka þeim til dreifingar þannig að það á að vera á áætlun.

Hvað varðar birtingu auglýsingar um spurninguna, þ.e. að lagaákvæði mæli fyrir um að það eigi að birta auglýsingu um spurninguna í fjölmiðlum, verður það gert núna á laugardag. Það verður gert í dagblöðum og Ríkisútvarpi, minnir mig að lagaákvæðið hafi mælt fyrir um, en við vorum líka að huga að birtingu í vefmiðlum eins og umræður voru um á Alþingi að væri nauðsynlegt að gera líka.

Hvað varðaði hlutlausa kynningarefnið hefur vefurinn með hinu hlutlausa efni þegar verið opnaður og búið að gefa út að bæklingur eigi að koma inn á hvert heimili. Það sem kemur fram í bæklingnum er í rauninni ekkert annað en það sem kemur fram á vefnum en bæklingurinn er núna í prentun og við vonumst til þess að geta dreift honum skammlaust í tíma fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Vigdís Hauksdóttir Framsóknarflokkur ræða
155 orð
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir skýr og greinargóð svör eins og við var að búast frá henni. Ég tel það nefnilega skyldu mína sem þingmanns að sjá til þess að framkvæmdarvaldið fari í einu og öllu að gildandi lögum. Þess vegna finnst mér einkennilegur málflutningur ákveðinna ráðherra í ríkisstjórninni eins og hann hefur verið undanfarnar vikur, að tala um að hér verði ekki haldin þjóðaratkvæðagreiðsla. Því langar mig til að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvort…

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir skýr og greinargóð svör eins og við var að búast frá henni. Ég tel það nefnilega skyldu mína sem þingmanns að sjá til þess að framkvæmdarvaldið fari í einu og öllu að gildandi lögum. Þess vegna finnst mér einkennilegur málflutningur ákveðinna ráðherra í ríkisstjórninni eins og hann hefur verið undanfarnar vikur, að tala um að hér verði ekki haldin þjóðaratkvæðagreiðsla.

Því langar mig til að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvort ekki sé rétt að framkvæmdarvaldið dragi sig nú í hlé og tilkynni Bretum og Hollendingum að ekki verði af frekari viðræðum fyrr en að aflokinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Er ekki kominn tími til að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hætti að þverskallast í málinu, framfylgi stjórnarskrárvörðum rétti þjóðarinnar og hætti að þvælast fyrir okkur með þessum málalengingum sem þeir viðhafa? Annars, virðulegi forseti, óska ég þingmönnum og þjóðinni allri til hamingju með það að þjóðaratkvæðagreiðslan fer greinilega fram 6. mars. Við skulum fagna því.

Ragna Árnadóttir ræða
63 orð
Virðulegi forseti. Hlutverk mitt og ráðuneytis dómsmála og mannréttinda er mjög skýrt í þessu máli, það er að fara eftir þeim lögum sem samþykkt voru og vinna að því að framkvæmdin gangi hnökralaust fyrir sig. Hvað Alþingi ákveður varðandi kjördag og annað er í höndum annarra en dómsmálaráðuneytisins en á meðan ekkert annað hefur verið ákveðið vinnum við að undirbúningi af fullum krafti.