Orð fjármálaráðherra um AGS og ESB

138. löggjafarþing Mál nr. 320 3. desember 2009 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
752 orð
2 flokkar
Samfylkingin Sjálfstæðisflokkur

Ríkisstjórn

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 411 orð
Jóhanna Sigurðardóttir
Samfylkingin
2 ræður 341 orð

Stjórnarandstaða

Tímalína umræðunnar

3. desember 2009
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
239 orð
Frú forseti. Í gær flutti hæstv. fjármálaráðherra ræðu sem í rauninni vakti fleiri spurningar en að hún svaraði einhverjum af þeim fjölmörgu spurningum sem við þingmenn höfum verið að bera fram í umræðum um Icesave. Spurning mín til hæstv. forsætisráðherra snertir það sem hæstv. fjármálaráðherra sagði í gær en hann sagði m.a. að ESB hefði haft uppi grímulausar hótanir gagnvart Íslandi vegna Icesave og endurskoðun efnahagsáætlunar hefði verið í gíslingu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum vegna…

Frú forseti. Í gær flutti hæstv. fjármálaráðherra ræðu sem í rauninni vakti fleiri spurningar en að hún svaraði einhverjum af þeim fjölmörgu spurningum sem við þingmenn höfum verið að bera fram í umræðum um Icesave. Spurning mín til hæstv. forsætisráðherra snertir það sem hæstv. fjármálaráðherra sagði í gær en hann sagði m.a. að ESB hefði haft uppi grímulausar hótanir gagnvart Íslandi vegna Icesave og endurskoðun efnahagsáætlunar hefði verið í gíslingu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum vegna Icesave. Þessi ummæli stangast algerlega á við það sem Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur sagt. Vissulega svaraði fjármálaráðherra í gær að Hollendingar og Bretar hefðu ekki haft í hótunum en engu að síður undirstrikaði hann það að ESB hefði haldið uppi grímulausum hótunum gagnvart Íslendingum og við hefðum verra af, eins og hæstv. fjármálaráðherra orðaði það í gær, ef Íslendingar drifu sig ekki í að klára Icesave. Þess vegna vil ég gjarnan fá að vita hver hefur rétt fyrir sér, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða fjármálaráðherra. Það er mikilvægt fyrir okkur að vita hvað er satt og rétt í þessu máli og ég vil gjarnan þá vita líka hvaða viðbrögð voru höfð uppi af hálfu forsætisráðherra þegar þessar hótanir voru af því að fjármálaráðherra upplýsti okkur um það í gær að hann vissi þetta manna best sjálfur af því að hann hefði verið í þessum viðræðum og því spyr ég: Hvaða viðbrögð komu fram af hálfu forsætisráðherra? Hver er að segja satt og hver er að segja ósatt?

Jóhanna Sigurðardóttir Samfylkingin ræða
153 orð
Virðulegi forseti. Ég held að hér sé einhver misskilningur í gangi af hálfu hv. þingmanns. Það sem fjármálaráðherra var að vísa til í gær var eitthvað sem kom fram á haustdögum 2008 þegar Bretar voru með hótanir um uppsögn á EES-samningnum. En ég kannast ekki við neinar hótanir af hálfu ESB sem hv. þingmaður er að vitna til, þvert á móti hafa t.d. bæði Carl Bildt og Olli Rehn sagt að hér sé um tvíhliða deilu að ræða sem tengist á engan hátt Evrópusambandinu, umsóknaraðild okkar að því. Ég…

Virðulegi forseti. Ég held að hér sé einhver misskilningur í gangi af hálfu hv. þingmanns. Það sem fjármálaráðherra var að vísa til í gær var eitthvað sem kom fram á haustdögum 2008 þegar Bretar voru með hótanir um uppsögn á EES-samningnum. En ég kannast ekki við neinar hótanir af hálfu ESB sem hv. þingmaður er að vitna til, þvert á móti hafa t.d. bæði Carl Bildt og Olli Rehn sagt að hér sé um tvíhliða deilu að ræða sem tengist á engan hátt Evrópusambandinu, umsóknaraðild okkar að því. Ég held því að hér sé misskilningur á ferðinni og menn ættu líka að fletta upp gögnum sem tengdust þingsályktunartillögunni í desember. Þar kemur ýmislegt fram sem væri ástæða til að skoða um þessi tengsl, þá voru uppi hugmyndir um það en ég kannast ekki við að það séu neinar hugmyndir uppi um það núna að það sé eitthvert samband á milli Icesave-deilunnar og Evrópusambandsins.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
172 orð
Frú forseti. Enn og aftur verða ráðherrar í ríkisstjórn Íslands margsaga, dag eftir dag. Ég er búin að fá svör við því frá hæstv. fjármálaráðherra um að það voru ekki Bretar sem settu á okkur þennan þrýsting heldur eins og hæstv. fjármálaráðherra sagði orðrétt að aðilar innan Evrópusambandsins höfðu uppi grímulausar hótanir um að Íslendingar hefðu verra af ef þeir drifu sig ekki í að klára Icesave. Ráðherrarnir eru enn og aftur margsaga, það er eins og þau viti…

Frú forseti. Enn og aftur verða ráðherrar í ríkisstjórn Íslands margsaga, dag eftir dag. Ég er búin að fá svör við því frá hæstv. fjármálaráðherra um að það voru ekki Bretar sem settu á okkur þennan þrýsting heldur eins og hæstv. fjármálaráðherra sagði orðrétt að aðilar innan Evrópusambandsins höfðu uppi grímulausar hótanir

um að Íslendingar hefðu verra af ef þeir drifu sig ekki í að klára Icesave. Ráðherrarnir eru enn og aftur margsaga, það er eins og þau viti ekki alveg hvað fer fram innan ríkisstjórnarinnar.

En um hvað snýst málið í dag? Það snýst um það, þessi umræða af hálfu okkar í stjórnarandstöðunni er ákall okkar um að við sýnum samstöðu, ákall okkar til ríkisstjórnar Íslands. Þetta snýst ekki um það að koma ykkur frá, þið eruð fullfær um að stúta ykkur sjálf.

Þetta snýst um það að við sýnum samstöðu í málefnum sem tengjast Icesave, samstöðu þings og samstöðu þjóðar.

Það eru komnar 20 þúsund undirskriftir hjá Indefence.

Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða hefðbundið ræðuform í þingsal.

Jóhanna Sigurðardóttir Samfylkingin ræða
188 orð
Virðulegi forseti. Ég hef litlu við það að bæta sem ég sagði varðandi fyrirspurn hv. þingmanns. Það er alveg ljóst að það var á haustdögunum 2008 sem þetta kom fram en ég kannast ekki við og ítreka það að það séu nokkrar hótanir af hálfu ESB varðandi Icesave, IMF eða nokkuð að því er það varðar. Er fjármálaráðherra að segja ósatt? Nei, hann er ekki að segja ósatt að því er varðar haustið 2008 en þetta hefur ekki komið upp núna á síðustu mánuðum eða missirum. Að því er varðar…

Virðulegi forseti. Ég hef litlu við það að bæta sem ég sagði varðandi fyrirspurn hv. þingmanns. Það er alveg ljóst að það var á haustdögunum 2008 sem þetta kom fram en ég kannast ekki við og ítreka það að það séu nokkrar hótanir af hálfu ESB varðandi Icesave, IMF eða nokkuð að því er það varðar. Er fjármálaráðherra að segja ósatt? Nei, hann er ekki að segja ósatt að því er varðar haustið 2008 en þetta hefur ekki komið upp núna á síðustu mánuðum eða missirum.

Að því er varðar Icesave-deiluna er alveg ljóst að við höfum mismunandi afstöðu til hennar. Ég tel að það sé grundvallaratriði í alþjóðlegum samskiptum að við stöndum við skuldbindingar okkar, það sé grundvallaratriði í endurreisn okkar að við stöndum við skuldbindingar okkar varðandi Icesave-deiluna. Hvað með ...? Og það er lausn á ýmsum álitaefnum sem upp hafa komið og ýmsu sem þarf að losa hér um í efnahags- og atvinnulífinu að geta klárað þessa Icesave-deilu. Mér finnst mjög mikilvægt

að hv. stjórnarandstaða skoði hvaða áhrif það hefur ef tefja á hér fram yfir áramót að ná einhverri niðurstöðu í Icesave-málinu. Heyr, heyr.