Samstarf við Færeyinga í aðildarviðræðum við ESB

138. löggjafarþing Mál nr. 209 13. nóvember 2009 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
947 orð
2 flokkar
Framsóknarflokkur Samfylkingin

Ríkisstjórn

Össur Skarphéðinsson
Samfylkingin
2 ræður 484 orð

Stjórnarandstaða

Siv Friðleifsdóttir
Framsóknarflokkur
2 ræður 463 orð

Tímalína umræðunnar

13. nóvember 2009
Siv Friðleifsdóttir Framsóknarflokkur ræða
269 orð
Virðulegur forseti. Í gær hélt Beinta í Jákupsstovu mjög skemmtilegan fyrirlestur í Norræna húsinu. Hún er dósent í stjórnmálafræði við Fróðskaparsetrið í Færeyjum og við Molde-háskóla í Noregi. Erindi hennar fjallaði um færeysk utanríkismál. Þar kom fram að Færeyingar þyrftu að endurskoða samskipti sín við erlendi ríki og ríkjasambönd og að færeyska heimastjórnin hefði í þessum tilgangi sett á stofn nefnd sem horfði sérstaklega til Evrópusambandsins og EFTA og til annarra ríkja í…

Virðulegur forseti. Í gær hélt Beinta í Jákupsstovu mjög skemmtilegan fyrirlestur í Norræna húsinu. Hún er dósent í stjórnmálafræði við Fróðskaparsetrið í Færeyjum og við Molde-háskóla í Noregi. Erindi hennar fjallaði um færeysk utanríkismál. Þar kom fram að Færeyingar þyrftu að endurskoða samskipti sín við erlendi ríki og ríkjasambönd og að færeyska heimastjórnin hefði í þessum tilgangi sett á stofn nefnd sem horfði sérstaklega til Evrópusambandsins og EFTA og til annarra ríkja í Norður-Evrópu. Beinta í Jákupsstovu sagði að Færeyingar stæðu fyrir utan alþjóðasamstarf og að hennar mati væri ljóst að það gengi ekki lengur.

Nú eru Færeyingar því búnir að setja niður þessa nefnd. Þeir opnuðu nýlega sendistofu hér á Íslandi og eru reyndar með sendistofu í Brussel og London og á fleiri stöðum. Þeir stofnuðu líka utanríkisráðuneyti nýlega og eru greinilega að fara að láta til sín taka í utanríkismálum.

Því langar mig að spyrja hæstv. utanríkisráðherra, þar sem við erum komin með aðildarumsókn í ESB í ferli og sjávarútvegur er mjög mikilvægt atriði í samningum okkar — lögsögur okkar og Færeyinga liggja saman og við erum með mikla samninga við þá — hvort það komi til greina í ljósi þessarar stöðu að við bjóðum Færeyingum að vera í samstarfi við okkur í sambandi við þessa ESB-umsókn og höfum þá upplýsta um það sem fram fer hjá okkur, vegna þess að gæti verið gott fyrir hagsmuni beggja ríkjanna vegna stöðu sjávarútvegsmála. Við ráðum saman yfir talsvert stórum hluta Norður-Atlantshafinu.

Kemur til greina að bjóða vinum okkar í Færeyjum, ef þeir vilja þiggja það, að vera með okkur og fá upplýsingar um það sem við erum að gera?

Össur Skarphéðinsson Samfylkingin ræða
310 orð
Frú forseti. Það kemur meira en til greina, við höfum þegar átt samræður við færeyska stjórnmálamenn þar sem við höfum upplýst þá um afstöðu okkar og um gang þessara mála. Fyrir skömmu var utanríkismálanefnd færeyska þingsins stödd hér á Íslandi. Ég held að nokkrir þingmenn hafi átt viðræður við hana en utanríkisráðuneytið og ég áttum sérstakar viðræður við nefndina og þingmennina og upplýstum þá um stöðuna. Ég tel sjálfur að það sé mikilvægt fyrir Færeyinga að fylgjast með þessu máli. Þeir…

Frú forseti. Það kemur meira en til greina, við höfum þegar átt samræður við færeyska stjórnmálamenn þar sem við höfum upplýst þá um afstöðu okkar og um gang þessara mála. Fyrir skömmu var utanríkismálanefnd færeyska þingsins stödd hér á Íslandi. Ég held að nokkrir þingmenn hafi átt viðræður við hana en utanríkisráðuneytið og ég áttum sérstakar viðræður við nefndina og þingmennina og upplýstum þá um stöðuna. Ég tel sjálfur að það sé mikilvægt fyrir Færeyinga að fylgjast með þessu máli. Þeir hafa sagt að þeir hafi mikinn vilja til þess og þar hafa þeir sérstaklega beint sjónum sínum að sjávarútvegsmálunum.

Við vitum það auðvitað, Íslendingar, og göngum ekki gruflandi að því að það sem kann að ráða úrslitum um hvort íslenska þjóðin ákveður að ganga inn í Evrópusambandið er sú niðurstaða sem fæst í sjó og fiski. Við höfum mjög svipaða hagsmuni og Færeyingar, reyndar að hluta til eins og Grænlendingar líka því að það er líklegt að sjávarútvegurinn við Grænland verði töluvert öflugur á næstu árum vegna breytinga í hafi sem tengjast loftslagsmálum. Ég hef líka rætt þetta sérstaklega við Grænlendinga, en staðan er sem sagt þannig að þeim stendur til boða að fá allar þær upplýsingar sem við getum veitt þeim og við höfum boðist til þess að veita þeim upplýsingar með reglulegum hætti um þetta.

Ég vek svo eftirtekt á því að ekki síst fyrir tilstilli íslenskra þingmanna eru Færeyingar núna í fyrsta skipti í næstu viku þátttakendur með áheyrnaraðild á fundum þingmannanefndar EFTA, sem var þeim keppikefli, en það voru ekki allir sem það vildu. Það var líka eftirtektarvert, fannst mér, þegar einn íslenskur fjölmiðill sendi mann til Færeyja til þess að kanna stöðuna þar og greindi frá því að það væri mikill áhugi í Færeyjum, m.a. á því að skoða möguleika á því að skipta um mynt og taka upp evru. Það þótti mér merkilegt.

Siv Friðleifsdóttir Framsóknarflokkur ræða
194 orð
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þetta svar. Það er alveg ljóst að Færeyingar eru í mjög sérstakri stöðu af því að þeir eru með takmarkaða sjálfsstjórn en um leið eigin utanríkisstefnu. Þeir standa utan við þau meginutanríkissamtök sem flest ríki eru í samstarfi við, þeir standa meira og minna utan við það allt í dag. Mér finnst því mjög skynsamlegt hjá Færeyingum að hafa sett niður nefnd sem mun skoða framtíðartengsl þeirra á sviði utanríkismála við aðrar stofnanir eins og ESB,…

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þetta svar. Það er alveg ljóst að Færeyingar eru í mjög sérstakri stöðu af því að þeir eru með takmarkaða sjálfsstjórn en um leið eigin utanríkisstefnu. Þeir standa utan við þau meginutanríkissamtök sem flest ríki eru í samstarfi við, þeir standa meira og minna utan við það allt í dag. Mér finnst því mjög skynsamlegt hjá Færeyingum að hafa sett niður nefnd sem mun skoða framtíðartengsl þeirra á sviði utanríkismála við aðrar stofnanir eins og ESB, hugsanlega varðandi EES-samning, og að ganga í EFTA. Það er allt í deiglunni hjá þeim, ég veit ekki alveg hvað þeir munu velja en ég fagna því að þeir verða áheyrnarfulltrúar í EFTA og það er mjög gott að Íslendingar hafi hjálpað til við að liðka fyrir því.

Ég fagna því að hæstv. utanríkisráðherra sé tilbúinn til þess að veita allar upplýsingar en ég tel að við ættum helst að setja þessi mál í einhvern formlegan farveg og athuga hvort

Færeyingar vilji þiggja mjög mikið samstarf á þessu sviði. Ég held að það sé til bóta fyrir báðar þjóðirnar vegna þessarar sérstöku stöðu í sjávarútvegsmálum og þeirra stóru hafsvæða sem hér liggja undir.

Össur Skarphéðinsson Samfylkingin ræða
174 orð
Frú forseti. Það er orðið undarlegt hversu mikið ég er alltaf sammála hv. þm. Siv Friðleifsdóttur. Ég er henni algjörlega sammála um þessa sameiginlegu hagsmuni. Ég hef reifað þetta sjálfur á fundum með bæði Grænlendingum og Færeyingum. Ég hef reyndar lagt til að einmitt í ljósi framtíðarhagsmuna sem munu vaxa sameiginlega á norðurslóðum og með tilliti til sameiginlegra sjávarútvegshagsmuna reynum við að stilla saman strengi okkar og ég hef á fundum, bæði með grænlenskum stjórnmálamönnum,…

Frú forseti. Það er orðið undarlegt hversu mikið ég er alltaf sammála hv. þm. Siv Friðleifsdóttur. Ég er henni algjörlega sammála um þessa sameiginlegu hagsmuni. Ég hef reifað þetta sjálfur á fundum með bæði Grænlendingum og Færeyingum. Ég hef reyndar lagt til að einmitt í ljósi framtíðarhagsmuna sem munu vaxa sameiginlega á norðurslóðum og með tilliti til sameiginlegra sjávarútvegshagsmuna reynum við að stilla saman strengi okkar og ég hef á fundum, bæði með grænlenskum stjórnmálamönnum, formanni grænlensku landsstjórnarinnar og sömuleiðis með færeyska lögmanninum, lagt það til að það verði aftur teknir upp reglulegir, árlegir leiðtogafundir þessara þriggja þjóða til þess að stilla saman strengi, sérstaklega á þessum tveimur sviðum.

Það má geta þess að Kubik Kleist er að koma hingað til lands í byrjun næsta árs þar sem þetta verður m.a. rætt og sömuleiðis er ég á förum í upphafi næsta árs til Færeyja og mun reifa þetta mál. Ég er sem sagt þeirrar skoðunar að við eigum að efla samstarf þessara þriggja grannríkja eins og kostur er,

það er í þágu allra þriggja.