Svör við spurningum Evrópusambandsins

138. löggjafarþing Mál nr. 112 22. október 2009 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
915 orð
2 flokkar
Framsóknarflokkur Samfylkingin

Ríkisstjórn

Össur Skarphéðinsson
Samfylkingin
2 ræður 486 orð

Stjórnarandstaða

Gunnar Bragi Sveinsson
Framsóknarflokkur
2 ræður 429 orð

Tímalína umræðunnar

22. október 2009
Gunnar Bragi Sveinsson Framsóknarflokkur ræða
264 orð
Virðulegi forseti. Eins og hæstv. utanríkisráðherra er löngu orðið ljóst ber ég mikinn og hlýjan hug til hans og ég veit að það er gagnkvæmt. Mig langar hins vegar að minna hann á, af því að hann er dálítið eldri en ég, að hann er búinn að vera í ríkisstjórn býsna lengi, m.a. í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Hæstv. ráðherra og ég deilum, þó hvor með sínum formerkjunum, miklum áhuga á Evrópusambandinu og þeim spurningalistum sem þar eru farnir af stað. Mig langar að spyrja hann…

Virðulegi forseti. Eins og hæstv. utanríkisráðherra er löngu orðið ljóst ber ég mikinn og hlýjan hug til hans og ég veit að það er gagnkvæmt. Mig langar hins vegar að minna hann á, af því að hann er dálítið eldri en ég, að hann er búinn að vera í ríkisstjórn býsna lengi, m.a. í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Hæstv. ráðherra og ég deilum, þó hvor með sínum formerkjunum, miklum áhuga á Evrópusambandinu og þeim spurningalistum sem þar eru farnir af stað. Mig langar að spyrja hann varðandi frétt sem var í Morgunblaðinu. Það stendur í þeirri samþykkt sem hér var gerð að þeir hópar sem eiga að fjalla um einstök málefni, einstök svið, eigi að undirbúa svör. Hér stendur, með leyfi forseta:

„Þessir hópar halda utan um samningaviðræður, hver á sínu sviði, allt frá upphafi ferlisins til enda. Það felst m.a. í því að undirbúa svör við spurningum sambandsins.“

Nú er farið að senda út spurningalistana og svörin, ætli þau séu ekki bara öll farin. Mig langar að spyrja ráðherrann hvort hann telji að það sé eðlileg stjórnsýsla að fara svona gróflega á svig við það sem samþykkt var í þinginu og virða að vettugi af því að mönnum er tíðrætt varðandi Icesave, Evrópusambandsumsókn og annað, að greinargerðirnar hafi lagalegt gildi og þessi lögskýringargögn. Þá hlýtur greinargerðin, með þeirri samþykkt sem var gerð varðandi umsókn að Evrópusambandinu, að gilda jafnsterkt og annað. Því spyr ég hæstv. ráðherra hvort það séu eðlileg vinnubrögð gagnvart þinginu að fara svona á svig með því að senda þessi svör áður en búið er að skipa í þessa ágætu hópa.

Össur Skarphéðinsson Samfylkingin ræða
305 orð
Frú forseti. Hlýhugur hv. þingmanns í minn garð er gagnkvæmur. Hann er stuðningsmaður Kaupfélagsins í Skagafirði og það eru tvö kaupfélög eftir í heiminum, Kaupfélagið í Skagafirði og Evrópusambandið og ég styð bæði. [Hlátur í þingsal.] Hins vegar er það svo, frú forseti, að það sem hv. þingmaður gerir hér að umræðuefni á sér fullkomlega eðlilegar skýringar. Þegar við höfðum lokið við að samþykkja þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu fyrr í sumar brast á fárviðri,…

Frú forseti. Hlýhugur hv. þingmanns í minn garð er gagnkvæmur. Hann er stuðningsmaður Kaupfélagsins í Skagafirði og það eru tvö kaupfélög eftir í heiminum, Kaupfélagið í Skagafirði og Evrópusambandið og ég styð bæði. [Hlátur í þingsal.]

Hins vegar er það svo, frú forseti, að það sem hv. þingmaður gerir hér að umræðuefni á sér fullkomlega eðlilegar skýringar. Þegar við höfðum lokið við að samþykkja þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu fyrr í sumar brast á fárviðri, Icesave-málið mikla. Þá komu til mín þingmenn með þær skoðanir að það væri betra sökum þess nána samráðs sem ég þyrfti og væri uppálagt að hafa við stjórnarandstöðuna að hafa m.a. um það mál að við mundum kæla það. Ég fór og ræddi það við fólk sem ég taldi og tel enn vera forustumenn í öllum stjórnmálaflokkunum og það varð að ráði. Hins vegar uppálagði þingið mér að hafa þar nánast samráð við ýmsa sérfræðinga, háskólasamfélagið o.s.frv. í gegnum þessa samningahópa sem af þessum sökum tafðist að skipa en eru nú að komast á lokasprett. Og til að standa undir þeim vilja Alþingis var farið með þessa kafla í gegnum fagráðuneytin til ýmissa hagsmunasamtaka, til háskólasamfélagsins, til þeirra sérfræðinga í stjórnsýslunni og þeirra stofnana sem munu eiga fulltrúa í þessum nefndum. Og til að hafa allt á tæru voru allir meginkaflarnir líka sendir hinni fimm manna Evrópunefnd utanríkismálanefndar sem las þá yfir og eftir atvikum gerði við þær jákvæðar athugasemdir, a.m.k. þekki ég dæmi um þar sem gerðar voru mikilvægar athugasemdir. Með þessum hætti tel ég að ég hafi náð því að hafa þetta samráð og draga úr þekkingarsjóðum þær staðreyndir sem þurfti því að

þær staðreyndir sem felast í svörunum eru fyrst og fremst lýsingar á lagaverki, tölfræði o.s.frv. Þetta veit hv. þingmaður því að hann er eins og ég, hann er að snúast til fylgis við hitt kaupfélagið.

Gunnar Bragi Sveinsson Framsóknarflokkur ræða
165 orð
Frú forseti. Það vill nú svo skemmtilega til að sá sem hér stendur er ekki skráður í eitt einasta kaupfélag í heiminum. En til að upplýsa ráðherrann eru um 800 milljónir manna hins vegar skráðir í samvinnufélög og kaupfélög víða um heim þannig að það eru nokkuð fleiri til en þessi ágætu tvö félög sem hann nefndi. Ég hef grun um að áhugi hans á a.m.k. öðru þeirra sé heldur meiri en minn. En samt kom fram í ræðu hæstv. ráðherra, sem hann svaraði í rauninni ekki og viðurkennir með því…

Frú forseti. Það vill nú svo skemmtilega til að sá sem hér stendur er ekki skráður í eitt einasta kaupfélag í heiminum. En til að upplýsa ráðherrann eru um 800 milljónir manna hins vegar skráðir í samvinnufélög og kaupfélög víða um heim þannig að það eru nokkuð fleiri til en þessi ágætu tvö félög sem hann nefndi. Ég hef grun um að áhugi hans á a.m.k. öðru þeirra sé heldur meiri en minn. En samt kom fram í ræðu hæstv. ráðherra, sem hann svaraði í rauninni ekki og viðurkennir með því það sem gert var undir hans stjórn, að það er algerlega farið á svig við það sem Alþingi samþykkti. Vilji Alþingis um að þeir ráðgefandi hópar sem hér á að skipa fari yfir spurningar og svör áður en það er sent út til Evrópusambandsins er virtur að vettugi. Það stendur í þeirri samþykkt sem meiri hluti stóð að á Alþingi og það er það sem ber að fara eftir, ekki einlægur vilji hæstv. ráðherra.

Össur Skarphéðinsson Samfylkingin ræða
181 orð
Frú forseti. Það sem ég er að reyna að skýra út fyrir þessum ágæta kaupfélagsmanni úr Skagafirði er að ég hafði samráð um þessa hluti. Mér er uppálagt að hafa samráð. Svörin við þeim spurningum sem hér um ræðir eru fyrst og fremst staðreyndalýsingar á tölfræði á íslensku lagaumhverfi o.s.frv. Til að geta svarað þeim þurfti sérfræðiþekkingu. Hennar var aflað en til að hafa allt á tæru miðað við þær aðstæður sem sköpuðust þar sem ég taldi að ég væri Af hverju ekki í samráði? að…

Frú forseti. Það sem ég er að reyna að skýra út fyrir þessum ágæta kaupfélagsmanni úr Skagafirði er að ég hafði samráð um þessa hluti. Mér er uppálagt að hafa samráð. Svörin við þeim spurningum sem hér um ræðir eru fyrst og fremst staðreyndalýsingar á tölfræði á íslensku lagaumhverfi o.s.frv. Til að geta svarað þeim þurfti sérfræðiþekkingu. Hennar var aflað en til að hafa allt á tæru miðað við þær aðstæður sem sköpuðust þar sem ég taldi að ég væri Af hverju ekki í samráði? að vinna í samráði við forustumenn allra stjórnmálaflokka á Alþingi var leitað til þessara sérfræðinga.

Hins vegar finnst mér það dálítið merkilegt …

Nei, við skulum bara hafa það á hreinu, við erum öll að reyna að komast í gegnum þennan Evrópusjó án þess að skapa deilur og reyna að vinna saman eins og hægt er. Við skulum bara gera það. Hins vegar finnst mér mjög merkilegt og það gleður mig að greinargerðin sem hv. þingmaður treysti sér ekki til að styðja

í sumar er núna orðin hans helsta biblía. Góð var þín gangan fyrr, stafur.