Hvalveiðar Íslendinga og sjávarútvegsstefna ESB

138. löggjafarþing Mál nr. 1110 16. júní 2010 Sjá á Alþingi.is ↗
18 ræður
11 þingmenn
1.800 orð
4 flokkar
Framsóknarflokkur Samfylkingin Sjálfstæðisflokkur Vinstrihreyfingin - grænt framboð

Ríkisstjórn

Jón Gunnarsson
Sjálfstæðisflokkur
2 ræður 327 orð
Einar K. Guðfinnsson
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 160 orð
Guðlaugur Þór Þórðarson
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 150 orð
Unnur Brá Konráðsdóttir
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 142 orð
Pétur H. Blöndal
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 137 orð
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Samfylkingin
1 ræða 122 orð
Ásta R. Jóhannesdóttir
Samfylkingin
7 ræður 118 orð

Stjórnarandstaða

Árni Þór Sigurðsson
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
1 ræða 185 orð
Ásmundur Einar Daðason
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
1 ræða 164 orð
Jón Bjarnason
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
1 ræða 149 orð
Gunnar Bragi Sveinsson
Framsóknarflokkur
1 ræða 146 orð

Tímalína umræðunnar

16. júní 2010
Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokkur ræða
169 orð
Virðulegi forseti. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að þýska þingið hefði sett okkur það skilyrði fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu að Íslendingar hættu hvalveiðum. Þar segir, með leyfi forseta: „Þýska þingið hefur með ákvörðun sinni 22. apríl 2010 lýst yfir fullum stuðningi við formlegar viðræður við Ísland sem miða að því að Ísland öðlist fulla aðild að ESB. En samtímis lýsti þingið því yfir að Ísland yrði að taka sig á hvað varðar verndun hvala í samræmi við alþjóða- og…

Virðulegi forseti. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að þýska þingið hefði sett okkur það skilyrði fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu að Íslendingar hættu hvalveiðum. Þar segir, með leyfi forseta:

„Þýska þingið hefur með ákvörðun sinni 22. apríl 2010 lýst yfir fullum stuðningi við formlegar viðræður við Ísland sem miða að því að Ísland öðlist fulla aðild að ESB. En samtímis lýsti þingið því yfir að Ísland yrði að taka sig á hvað varðar verndun hvala í samræmi við alþjóða- og ESB-lög.“

Virðulegi forseti. Hér er kominn upp ágreiningur um það mál sem maður hefur talið að yrði helsta ágreiningsmálið í aðildarviðræðum okkar við ESB, þ.e. um sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Ég tel óforsvaranlegt að Ísland haldi áfram viðræðum við Evrópusambandið á meðan svo stórt ágreiningsmál er greinilega í uppsiglingu. Það er ekki réttlætanlegt að eyða milljörðum króna í viðræður við Evrópusambandið á sama tíma og þeir setja okkur skilyrði fyrir fram um það hvernig við nýtum okkar sjávarauðlind.

Ég hvet forseta til að taka þetta mál til umræðu á þinginu.

Ásta R. Jóhannesdóttir Samfylkingin ræða
11 orð
Þau skilaboð eru komin til forseta og forseti hefur meðtekið þau.
Gunnar Bragi Sveinsson Framsóknarflokkur ræða
146 orð
Forseti. Mig langar að ræða fundarstjórn þar sem ég vil skora á hæstv. forseta að breyta dagskránni. Ég held að það væri réttast að taka til umræðu þingsályktunartillögu sem lögð hefur verið fram um að draga umsókn að Evrópusambandinu til baka, í ljósi þess að það hefur komið á daginn sem menn hafa fullyrt að við þurfum að byrja á því að gefa eftir í málum er varða sjávarútvegsstefnu okkar. Í gær var settur á svið fyrirspurnatími milli eins hv. þingmanns og hæstv. utanríkisráðherra varðandi…

Forseti. Mig langar að ræða fundarstjórn þar sem ég vil skora á hæstv. forseta að breyta dagskránni. Ég held að það væri réttast að taka til umræðu þingsályktunartillögu sem lögð hefur verið fram um að draga umsókn að Evrópusambandinu til baka, í ljósi þess að það hefur komið á daginn sem menn hafa fullyrt að við þurfum að byrja á því að gefa eftir í málum er varða sjávarútvegsstefnu okkar.

Í gær var settur á svið fyrirspurnatími milli eins hv. þingmanns og hæstv. utanríkisráðherra varðandi þessar hvalveiðar, áður en í raun var upplýst hver staða málsins væri. Það er ljóst að Evrópusambandið ætlar, frú forseti, að blanda sér í eina af okkar undirstöðuatvinnugreinum —

sem er sjávarútvegurinn, hv. þingmaður, hvalveiðar eru hluti af honum — þannig að við hljótum að krefjast þess að forseti skoði breytingar á dagskrá til að við getum rætt þetta mikilvæga mál.

Ásta R. Jóhannesdóttir Samfylkingin ræða
12 orð
Forseti vill geta þess að dagskrá liggur fyrir sem samkomulag er um.
Jón Bjarnason Vinstrihreyfingin - grænt framboð ræða
149 orð
Frú forseti. Ég heyri að verið er að beina áskorun til forseta um að breyta dagskrá vegna þess að það þurfi að ræða afstöðu Íslands hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu varðandi stefnu í hvalveiðum og síðan kröfu Þjóðverja um að Ísland verði að hætta hvalveiðum áður en orðið geti af aðild að Evrópusambandinu. Það alveg rétt að í gær var fundur fulltrúa ráðuneytisins og staðgengils þýska sendiherrans þar sem þessari kröfu Þjóðverja var komið mjög rækilega á framfæri, að Ísland yrði að hætta…

Frú forseti. Ég heyri að verið er að beina áskorun til forseta um að breyta dagskrá vegna þess að það þurfi að ræða afstöðu Íslands hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu varðandi stefnu í hvalveiðum og síðan kröfu Þjóðverja um að Ísland verði að hætta hvalveiðum áður en orðið geti af aðild að Evrópusambandinu. Það alveg rétt að í gær var fundur fulltrúa ráðuneytisins og staðgengils þýska sendiherrans þar sem þessari kröfu Þjóðverja var komið mjög rækilega á framfæri, að Ísland yrði að hætta hvalveiðum áður en til Evrópusambandsaðildar kæmi. Það kemur í sjálfu sér ekkert á óvart.

Hitt vil ég taka fram

að í þeim samningum sem núna standa yfir í Alþjóðahvalveiðiráðinu fer

Ísland náttúrlega að sínum eigin kröfum og eigin hagsmunum, sem er að vernda og nýta auðlindirnar

með sjálfbærum hætti og án þess að láta af

neinum kröfum af því taginu. Þar er því

ekkert að óttast að mínu mati.

Ásta R. Jóhannesdóttir Samfylkingin ræða
20 orð
Forseti vill hvetja þingmenn til að virða tímamörk og óskar eftir því að rædd verði fundarstjórn forseta undir þessum lið.
Einar K. Guðfinnsson Sjálfstæðisflokkur ræða
160 orð
Virðulegi forseti. Alltaf leggst okkur andstæðingum ESB-aðildar eitthvað til. Nú hafa Þjóðverjar ákveðið að hjálpa okkur við að leggja stein í götu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu og það er vissulega vel. Þar með eru þeir í rauninni að sýna sitt rétta andlit. Það liggur fyrir að Evrópusambandið hyggst hafa áhrif á stefnu okkar í sjávarútvegsmálum og þar með talið hugmyndir okkar um hvalveiðar, sem er auðvitað algerlega óviðunandi. Þetta er álíka gáfulegt eins og ef við færum núna í…

Virðulegi forseti. Alltaf leggst okkur andstæðingum ESB-aðildar eitthvað til. Nú hafa Þjóðverjar ákveðið að hjálpa okkur við að leggja stein í götu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu og það er vissulega vel. Þar með eru þeir í rauninni að sýna sitt rétta andlit. Það liggur fyrir að Evrópusambandið hyggst hafa áhrif á stefnu okkar í sjávarútvegsmálum og þar með talið hugmyndir okkar um hvalveiðar, sem er auðvitað algerlega óviðunandi. Þetta er álíka gáfulegt eins og ef við færum núna í Evrópusambandsviðræður á þeim forsendum að við vildum ekki að Þjóðverjar héldu áfram bílaframleiðslu sinni vegna þess að okkur fyndist það siðlaust, það ylli mengun, bílar yllu slysum o.s.frv. Þetta er álíka gáfulegt.

Við ætlum okkur auðvitað að verja íslenskan sjávarútveg. Við ætlum að verja þann rétt okkar að geta veitt hval

með sjálfbærum hætti. Hins vegar ber að fagna því

í sjálfu sér að Þjóðverjar skuli með þessu leggja stein í götu aðildarumsóknar okkar að Evrópusambandinu.

Okkur leggst alltaf eitthvað til.

Ásta R. Jóhannesdóttir Samfylkingin ræða
15 orð
Forseti vill minna þingmenn á að hér á að vera hafin umræða um Stjórnarráð Íslands.
Þórunn Sveinbjarnardóttir Samfylkingin ræða
122 orð
Hæstv. forseti. Ég beini því til forseta að halda dagskrá áfram í dag eins og ráð hefur verið fyrir gert í dagskrá þingsins. Það er fundur í utanríkismálanefnd síðar í dag, ef mig misminnir ekki, og það verða mýmörg tækifæri til að ræða um hvalveiðar og væntanlegar aðildarviðræður við Evrópusambandið á næstu dögum, vikum og missirum. Afstaða þýska þingsins kemur í sjálfu sér þeim sem hafa kynnt sér þau mál ekki á óvart. Stefna stjórnvalda á Íslandi er líka skýr í þessu máli. Aðildarviðræður…

Hæstv. forseti. Ég beini því til forseta að halda dagskrá áfram í dag eins og ráð hefur verið fyrir gert í dagskrá þingsins. Það er fundur í utanríkismálanefnd síðar í dag, ef mig misminnir ekki, og það verða mýmörg tækifæri til að ræða um hvalveiðar og væntanlegar aðildarviðræður við Evrópusambandið á næstu dögum, vikum og missirum. Afstaða þýska þingsins kemur í sjálfu sér þeim sem hafa kynnt sér þau mál ekki á óvart. Stefna stjórnvalda á Íslandi er líka skýr í þessu máli. Aðildarviðræður eru ekki hafnar en þær hefjast vonandi síðar á þessu ári. Það er bara einni staðreynd við þetta að bæta, frú forseti, af því að menn tala um undirstöðuatvinnugreinar: Útflutningstekjur af hvalveiðum voru á síðasta ári 5.000 kr.

Árni Þór Sigurðsson Vinstrihreyfingin - grænt framboð ræða
185 orð
Frú forseti. Ég hélt satt að segja að í gær og í nótt hefði náðst ákveðið samkomulag um þinghaldið þó að það hefði aðeins dregist fram eftir nóttu. Miðað við það sem flestir gerðu ráð fyrir hefði mátt búast við því að það gæti haldið áfram í dag þar sem frá var horfið og ég beini því eindregið til forseta að halda sig við það. Ég vil upplýsa að utanríkismálanefnd kemur til fundar í dag að loknum þessum þingfundi til að fjalla um tiltekin mál sem óskað var eftir. Það stendur til að …

Frú forseti. Ég hélt satt að segja að í gær og í nótt hefði náðst ákveðið samkomulag um þinghaldið þó að það hefði aðeins dregist fram eftir nóttu. Miðað við það sem flestir gerðu ráð fyrir hefði mátt búast við því að það gæti haldið áfram í dag þar sem frá var horfið og ég beini því eindregið til forseta að halda sig við það.

Ég vil upplýsa að utanríkismálanefnd kemur til fundar í dag að loknum þessum þingfundi til að fjalla um tiltekin mál sem óskað var eftir. Það stendur til að sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd og utanríkismálanefnd haldi sérstakan sameiginlegan fund, vonandi í lok þessarar viku, um hvalveiðimálin sérstaklega. Þau hafa oft verið rædd á vettvangi þingnefnda. Það er því ljóst að það eru tilefni og tækifæri til að ræða þau þar.

Ég ætla ekki að blanda ESB inn í þessa umræðu. Afstaða mín til hvalveiða byggir á grundvallarsjónarmiðum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og hefur ekkert með aðild Íslands að ESB að gera, þótt lesa megi út úr fjölmiðlum í dag að það sé mín afstaða.

Ég vísa því hér með á bug.

Ásta R. Jóhannesdóttir Samfylkingin ræða
16 orð
Forseti spyr hv. þingmenn hvort unnt sé að hefja umræðu um dagskrármálin sem samkomulag er um.
Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur ræða
150 orð
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir óskir þeirra aðila sem fara fram á að við ræðum þessi mál undir öðrum formerkjum en fundarstjórn forseta. Það er enginn bragur á þessu. Hér kemur hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og tilkynnir okkur að sendiráð Þýskalands hafi haldið sérstakan fund til að útskýra fyrir Íslendingum hvernig þeir eigi að haga sér í sjávarútvegsmálum. Auðvitað kemur þetta okkur sem þekkjum til ekkert á óvart. Við vitum að það er sameiginleg sjávarútvegs- og…

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir óskir þeirra aðila sem fara fram á að við ræðum þessi mál undir öðrum formerkjum en fundarstjórn forseta. Það er enginn bragur á þessu. Hér kemur hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og tilkynnir okkur að sendiráð Þýskalands hafi haldið sérstakan fund til að útskýra fyrir Íslendingum hvernig þeir eigi að haga sér í sjávarútvegsmálum. Auðvitað kemur þetta okkur sem þekkjum til ekkert á óvart. Við vitum að það er sameiginleg sjávarútvegs- og landbúnaðarstefna hjá Evrópusambandinu þannig að ef við göngum þar inn munu allir geta skipt sér af okkar málum hvað það varðar. Þannig er það.

Virðulegi forseti. Þetta kemur mörgum á óvart og ég verð að viðurkenna að ég átti ekki von á því að áður en aðildarviðræður hæfust færu þessar vinaþjóðir okkar að hafa afskipti eins og þau sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur upplýst um. Ég legg til

að við ræðum það sérstaklega.

Ásta R. Jóhannesdóttir Samfylkingin ræða
33 orð
Forseti vill ítreka þau orð hv. formanns utanríkismálanefndar sem komu fram í umræðum um fundarstjórn forseta að málið verður rætt á vettvangi nefndarinnar og sömuleiðis á sameiginlegum fundi sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og utanríkismálanefndar.
Unnur Brá Konráðsdóttir Sjálfstæðisflokkur ræða
142 orð
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir að taka þetta mál upp og tek undir beiðni hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar til forseta um að dagskrá verði breytt og tillagan um að draga til baka umsóknaraðild að Evrópusambandinu verði tekin á dagskrá. Það er brýnt og við Íslendingar getum ekki látið okkur þessar kröfur í léttu rúmi liggja sem nú birtast okkur grímulaust í fjölmiðlum frá Þjóðverjum um það hvernig okkur verði unnt að stunda atvinnu. Ég einfaldlega vil ekki að við…

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir að taka þetta mál upp og tek undir beiðni hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar til forseta um að dagskrá verði breytt og tillagan um að draga til baka umsóknaraðild að Evrópusambandinu verði tekin á dagskrá. Það er brýnt og við Íslendingar getum ekki látið okkur þessar kröfur í léttu rúmi liggja sem nú birtast okkur grímulaust í fjölmiðlum frá Þjóðverjum um það hvernig okkur verði unnt að stunda atvinnu. Ég einfaldlega vil ekki að við sitjum þegjandi undir svona sendingum. Við erum sjálfstæð þjóð, við erum fullvalda þjóð og við eigum að láta í okkur heyra þegar menn koma svona fram.

Síðan hefur sannast á síðustu dögum hvert sambandið er á milli Icesave og Evrópusambandsins,

sem stjórnarliðar hafa margoft ítrekað að hafi ekki verið neitt. Nú hefur sannast að það er rangt.

Ásta R. Jóhannesdóttir Samfylkingin ræða
11 orð
Forseti ítrekar að samkomulag er um dagskrána og hún liggur fyrir.
Ásmundur Einar Daðason Vinstrihreyfingin - grænt framboð ræða
164 orð
Frú forseti. Ég hef haft nokkrar áhyggjur undanfarna daga einmitt af því sem kom fram í fjölmiðlum í morgun, en ekki fengið það staðfest fyrr en nú, að Evrópusambandið er þegar byrjað að setja kröfur á hendur Íslendingum. Nú eru það hvalveiðar. Þetta tengist ekki afstöðu minni til hvalveiða. Afstaða mín er sú að Íslendingar eigi sjálfir að ráða hvort þeir stunda hvalveiðar eða ekki en það á ekki að vera að kröfu Evrópusambandsins. Mér finnst alveg ljóst að þetta stemmir mjög vel við það sem…

Frú forseti. Ég hef haft nokkrar áhyggjur undanfarna daga einmitt af því sem kom fram í fjölmiðlum í morgun, en ekki fengið það staðfest fyrr en nú, að Evrópusambandið er þegar byrjað að setja kröfur á hendur Íslendingum. Nú eru það hvalveiðar. Þetta tengist ekki afstöðu minni til hvalveiða. Afstaða mín er sú að Íslendingar eigi sjálfir að ráða hvort þeir stunda hvalveiðar eða ekki en það á ekki að vera að kröfu Evrópusambandsins.

Mér finnst alveg ljóst að þetta stemmir mjög vel við það sem sendiherra Evrópusambandsins hér á landi, embættismenn og fleiri hafa haldið fram, sem er að aðlögunarferlið taki þann tíma sem Íslendingar vilji taka í það. Það þýðir að þeim mun fyrr sem við göngum að kröfum Evrópusambandsins varðandi ýmis mál, þeim mun fljótar gengur þetta aðlögunarferli fyrir sig. Ég vil beina því til frú forseta að Evrópusambandsumsóknin verði tekin til gagngerrar endurskoðunar í ljósi þessa og ýmissa annarra ummæla sem komið hafa fram

bæði hjá ráðamönnum Evrópusambandsins og embættismönnum.

Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokkur ræða
158 orð
Virðulegi forseti. Hæstv. sjávarútvegsráðherra hefur staðfest að þýska sendiráðið gengur þeirra erinda að reyna að leggja stein í götu hvalveiða Íslendinga. Það er algerlega óásættanlegt og í ljósi þessa mikilvæga og kostnaðarsama máls er mjög eðlilegt að við breytum dagskránni og tökum málið til umræðu. Það verður hreinlega að gera, virðulegi forseti. Við erum að tala um milljarðakostnað. Á morgun ætla Evrópuríkin að taka ákvörðun um að hefja formlegar viðræður við okkur og við stöndum því á…

Virðulegi forseti. Hæstv. sjávarútvegsráðherra hefur staðfest að þýska sendiráðið gengur þeirra erinda að reyna að leggja stein í götu hvalveiða Íslendinga. Það er algerlega óásættanlegt og í ljósi þessa mikilvæga og kostnaðarsama máls er mjög eðlilegt að við breytum dagskránni og tökum málið til umræðu. Það verður hreinlega að gera, virðulegi forseti. Við erum að tala um milljarðakostnað. Á morgun ætla Evrópuríkin að taka ákvörðun um að hefja formlegar viðræður við okkur og við stöndum því á tímamótum í þessu máli.

Það hlýtur einnig að vera mikilvægt fyrir þingheim og þjóðina að heyra svör hæstv. ríkisstjórnar við kröfu Þjóðverja. Við hljótum að krefjast þess að í samræmi við vilja þingsins og þjóðarinnar í þessu máli bregðist hæstv. ríkisstjórn harkalega við. Um 5.000 kr. Virðulegi forseti.

Þessu máli verður að gefa tíma í þingsölum. Það er ekki nóg

að ræða það á lokuðum fundum í þingnefndum eða án þess að við vitum

nákvæmlega hvernig ríkisstjórnin ætlar að bregðast við.

Pétur H. Blöndal Sjálfstæðisflokkur ræða
137 orð
Frú forseti. Ég óska eftir því að hæstv. forseti setji á dagskrá á næsta fundi mál nr. 669 um að Íslendingar dragi til baka umsókn sína að Evrópusambandinu. Um hana á að fjalla á morgun, á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Þegar við fögnum 66 ára afmæli sjálfstæðis Íslands ætla menn að afsala sér því. Í ljós hefur komið að fjármálakaflinn verður skilinn út undan í umræðunum þar til Íslendingar verða búnir að semja um Icesave. Þá fer nú kostnaðurinn við aðild að Evrópusambandinu að verða ansi …

Frú forseti. Ég óska eftir því að hæstv. forseti setji á dagskrá á næsta fundi mál nr. 669 um að Íslendingar dragi til baka umsókn sína að Evrópusambandinu. Um hana á að fjalla á morgun, á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Þegar við fögnum 66 ára afmæli sjálfstæðis Íslands ætla menn að afsala sér því.

Í ljós hefur komið að fjármálakaflinn verður skilinn út undan í umræðunum þar til Íslendingar verða búnir að semja um Icesave. Þá fer nú kostnaðurinn við aðild að Evrópusambandinu að verða ansi mikill. Svo er búið að ákveða að við þurfum að fella niður hvalveiðar ef við ætlum að ganga til samninga. Ég vil fá umræðu um þetta á Alþingi, opna umræðu, þar sem hæstv. sjávarútvegsráðherra Jón Bjarnason svarar því hvort

hann sé enn að vinna ötullega að því að koma Íslendingum inn í Evrópusambandið.