Aðild Íslands að ESB

138. löggjafarþing Mál nr. 1052 11. júní 2010 Sjá á Alþingi.is ↗
4 ræður
2 þingmenn
949 orð
2 flokkar
Framsóknarflokkur Samfylkingin

Ríkisstjórn

Össur Skarphéðinsson
Samfylkingin
2 ræður 501 orð

Stjórnarandstaða

Gunnar Bragi Sveinsson
Framsóknarflokkur
2 ræður 448 orð

Tímalína umræðunnar

11. júní 2010
Gunnar Bragi Sveinsson Framsóknarflokkur ræða
280 orð
Virðulegi forseti. Það var afar athyglisvert að heyra hæstv. utanríkisráðherra tala áðan um villur fortíðarinnar, það er alltaf gaman að heyra gamla allaballa tala um villur fortíðarinnar, ekki síst þegar þeir telja sjálfa sig hafa frelsast. Svo er annað sem vakti líka athygli mína um daginn, það var orðið „orðsporsáhætta“ sem ég kynntist nýlega. Ég hugsa að ef slík áhætta yrði lögð á hæstv. utanríkisráðherra yrði hún býsna há. Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra út í viðtal…

Virðulegi forseti. Það var afar athyglisvert að heyra hæstv. utanríkisráðherra tala áðan um villur fortíðarinnar, það er alltaf gaman að heyra gamla allaballa tala um villur fortíðarinnar, ekki síst þegar þeir telja sjálfa sig hafa frelsast. Svo er annað sem vakti líka athygli mína um daginn, það var orðið „orðsporsáhætta“ sem ég kynntist nýlega. Ég hugsa að ef slík áhætta yrði lögð á hæstv. utanríkisráðherra yrði hún býsna há.

Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra út í viðtal um Evrópusambandið sem var sýnt í fréttatíma RÚV í gærkvöldi. Þar er rætt við einn helsta sérfræðing Þýskalands um Norðurlöndin og Evrópusambandið. Hann segir að það séu engar líkur á að Ísland gangi í Evrópusambandið eins og staðan er í dag og færir mikil og góð rök fyrir að slíkt muni væntanlega ekki gerast. Hann kemur m.a. fram með hvað það er sem þjóðir sækjast virkilega eftir á Íslandi og nefnir náttúruauðlindirnar, hann nefnir endurnýjanlegar orkuauðlindir og legu landsins. Er ekki einmitt ástæðan fyrir því að Þjóðverjar og hugsanlega aðrar bandalagsþjóðir eru tilbúnar að liðka fyrir inngöngu eða aðlögun Íslands að þessu bandalagi sú að þær ásælast þessar auðlindir? Það kemur fram í þessu viðtali við þennan ágæta mann.

Í þessu sama viðtali, hæstv. ráðherra, kemur fram að Evrópusambandið vilji gjarnan að nýjar aðildarþjóðir sýni vilja til að laga sig að ESB til lengri eða skemmri tíma. Snýst ekki málið einmitt um það að verið er að innlima Ísland í Evrópusambandið ef þetta verður að veruleika?

Þá kemur næsta spurning, hæstv. ráðherra: Er ekki rétt í ljósi þess að helstu sérfræðingar í Þýskalandi telja að ekkert verði af þessu að hætta nú þessu rugli og draga umsóknina til baka núna í dag?

Össur Skarphéðinsson Samfylkingin ræða
311 orð
Frú forseti. Ég veit ekki hvaða orðspor fer af hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni, en a.m.k. sýnist mér af lestri hans áðan að hann taki ekki vel eftir þeim texta sem fyrir hann er borinn. Ef hv. þingmaður læsi betur þá frétt sem hann vísar til sæi hann í fyrsta lagi að það er rangt hjá honum að þessi tiltekni sérfræðingur segi að það séu engar líkur á að Ísland gangi í Evrópusambandið. Hann segir að það séu litlar líkur og tiltekur sérstaklega að miðað sé við núverandi stöðu á Íslandi…

Frú forseti. Ég veit ekki hvaða orðspor fer af hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni, en a.m.k. sýnist mér af lestri hans áðan að hann taki ekki vel eftir þeim texta sem fyrir hann er borinn. Ef hv. þingmaður læsi betur þá frétt sem hann vísar til sæi hann í fyrsta lagi að það er rangt hjá honum að þessi tiltekni sérfræðingur segi að það séu engar líkur á að Ísland gangi í Evrópusambandið. Hann segir að það séu litlar líkur og tiltekur sérstaklega að miðað sé við núverandi stöðu á Íslandi gagnvart Evrópusambandinu. Þá vil ég rifja upp fyrir hv. þingmanni að skömmu fyrir febrúarbyltinguna var 80% stuðningur við umsókn. Síðustu 10 árin hefur í 16 af 18 skoðanakönnunum Samtaka iðnaðarins verið meiri hluti fylgjandi umsókn. Þetta breyttist þegar við lentum í Icesave-deilunni þar sem sterkar Evrópuþjóðir beittu sér gegn afgreiðslu okkar mála innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Ég er þeirrar skoðunar að þegar við verðum búin að semja og komum heim með samning sem hrekur allt það sem þessi hv. þingmaður heldur hér fram muni þjóðin samþykkja aðild að Evrópusambandinu. Það er hugsanlegt að ég hafi rangt fyrir mér en ég held ekki.

Þegar hv. þingmaður talar um að þessi sérfræðingur leiði að því líkum að Evrópusambandið ásælist auðlindir er hann m.a. að tala um reynslu okkar af stjórnun endurnýjanlegra auðlinda. Það er alveg hárrétt að hann talar um að það sé eftirsóknarvert fyrir Evrópusambandið að Ísland gangi í það vegna þess að við liggjum algjörlega á norðurslóðum. Það skiptir máli fyrir Evrópusambandið, m.a. í umhverfislegu tilliti, að geta fylgst með hlýnun og bráðnun.

Hins vegar undirstrika ég að öndvert við það sem þessi ágæti sérfræðingur

segir hefur þýska þingið nýlega samþykkt ályktun þar sem það beinlínis leggur til að Ísland

njóti stuðnings Þjóðverja við að ganga inn vegna þess að

það telur að Ísland sé vel til þess fallið vegna núverandi regluverks.

Gunnar Bragi Sveinsson Framsóknarflokkur ræða
168 orð
Virðulegi forseti. Til að rifja upp með hæstv. ráðherra minnir mig að febrúarbyltingin hafi verið í janúar þannig að þetta er væntanlega janúarbylting, ekki satt? [Hlátur í þingsal.] Hins vegar langar mig að segja við hæstv. ráðherra að að sjálfsögðu er þýska þingið reiðubúið að liðka fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið þegar það kemur fram, m.a. í viðtalinu við þennan sérfræðing frá Þýskalandi, að Þjóðverjar horfa á náttúruauðlindirnar og á fiskinn, þeir horfa á það sem við…

Virðulegi forseti. Til að rifja upp með hæstv. ráðherra minnir mig að febrúarbyltingin hafi verið í janúar þannig að þetta er væntanlega janúarbylting, ekki satt? [Hlátur í þingsal.]

Hins vegar langar mig að segja við hæstv. ráðherra að að sjálfsögðu er þýska þingið reiðubúið að liðka fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið þegar það kemur fram, m.a. í viðtalinu við þennan sérfræðing frá Þýskalandi, að Þjóðverjar horfa á náttúruauðlindirnar og á fiskinn, þeir horfa á það sem við höfum fram að færa, líka legu landsins út af norðurskautinu. Af hverju í ósköpunum nýtum við ekki þessar auðlindir og þau tækifæri sjálf á okkar eigin forsendum? Hæstv. ráðherra vill væntanlega að við gefum þetta frá okkur — fyrir eitthvað. Hvað vill hann fá í staðinn? Hver eru rökin fyrir því að halda áfram þessu brölti með Evrópusambandið? Varla er það evran eins og staðan er í dag, það getur ekki verið. Varla eru allaballarnir orðnir svo gleymnir að þeir séu búnir að gleyma því út á hvað sjálfstæði Íslands gengur.

Össur Skarphéðinsson Samfylkingin ræða
190 orð
Frú forseti. Í fullum trúnaði í þennan hóp sagt hef ég litið svo á að ég sé m.a. í þessum leiðangri til að uppfylla ályktun miðstjórnar Framsóknarflokksins sem, eins og hv. þingmaður man eftir, ályktaði að flokkurinn styddi að sótt yrði um aðild að Evrópusambandinu á ákveðnum forsendum. Þær forsendur liggja fyrir. Fyrst hv. þingmaður er að tala um að við látum af hendi auðlindir, hvað telja sérfræðingar Evrópusambandsins sjálfs, hvað sögðu þeir í þessum sama miðli í…

Frú forseti. Í fullum trúnaði í þennan hóp sagt hef ég litið svo á að ég sé m.a. í þessum leiðangri til að uppfylla ályktun miðstjórnar Framsóknarflokksins sem, eins og hv. þingmaður man eftir, ályktaði að flokkurinn styddi að sótt yrði um aðild að Evrópusambandinu á ákveðnum forsendum.

Þær forsendur liggja fyrir.

Fyrst hv. þingmaður er að tala um að við látum af hendi auðlindir, hvað telja sérfræðingar Evrópusambandsins sjálfs, hvað sögðu þeir í þessum sama miðli í síðustu viku? Ekki á einum fundi, heldur tveimur opinberum fundum, sögðu þeir algjörlega skýrt að reglur Evrópusambandsins væru þannig að það væru engar líkur á því að Íslendingar þyrftu að láta af hendi eitt einasta kíló af fiski. Svo einfalt er það.

Eins og ég hef áður sagt, ef hv. þingmaður vill stöðva þennan leiðangur verður hann að fara gegn eða breyta vilja Alþingis. Það er ekkert flóknara en það. Ég er að uppfylla það sem Alþingi fól mér,

en ég trúi líka að aðild að Evrópusambandinu sé heillavænleg fyrir framtíð Íslands og barna okkar tveggja.

Eigið þið barn saman? [Hlátur í þingsal.]

Forseti biður um hljóð í salinn. [Kliður í þingsal.]