Stofnfé sparisjóða -- þjóðaratkvæðagreiðslur -- Icesave -- samgöngumál

137. löggjafarþing Mál nr. 295 30. júní 2009 Sjá á Alþingi.is ↗
19 ræður
12 þingmenn
270 orð
1 flokkar
Framsóknarflokkur

Ríkisstjórn

Stjórnarandstaða

Sigurður Ingi Jóhannsson
Framsóknarflokkur
1 ræða 270 orð

Tímalína umræðunnar

30. júní 2009
Ásta R. Jóhannesdóttir ræða
Eygló Harðardóttir ræða
Ásmundur Einar Daðason ræða
Höskuldur Þórhallsson ræða
Ásta R. Jóhannesdóttir ræða
Álfheiður Ingadóttir ræða
Unnur Brá Konráðsdóttir ræða
Guðbjartur Hannesson ræða
Sigurður Ingi Jóhannsson Framsóknarflokkur ræða
270 orð
Virðulegur forseti. Í ljósi umræðu hér í gær um samgöngumál langar mig að spyrja hv. 1. þm. Suðurk., Björgvin G. Sigurðsson, út í afstöðu hans til forgangsröðunar samgöngumannvirkja. Öll mannvirki eru mjög mikilvæg, hvort sem það eru göng í gegnum Vaðlaheiði, samgöngumiðstöð við Reykjavíkurflugvöll eða tvöföldun Vesturlandsvegar, Suðurlandsvegar eða önnur þau mannvirki sem nauðsynleg eru. En annars vegar í ljósi umræðu við hæstv. samgönguráðherra í gær og hins vegar vegna fundar sem hæstv.…

Virðulegur forseti. Í ljósi umræðu hér í gær um samgöngumál langar mig að spyrja hv. 1. þm. Suðurk., Björgvin G. Sigurðsson, út í afstöðu hans til forgangsröðunar samgöngumannvirkja. Öll mannvirki eru mjög mikilvæg, hvort sem það eru göng í gegnum Vaðlaheiði, samgöngumiðstöð við Reykjavíkurflugvöll eða tvöföldun Vesturlandsvegar, Suðurlandsvegar eða önnur þau mannvirki sem nauðsynleg eru. En annars vegar í ljósi umræðu við hæstv. samgönguráðherra í gær og hins vegar vegna fundar sem hæstv. samgönguráðherra og hv. þáverandi þingmaður Suðurkjördæmis, núverandi 1. þm. þess, Björgvin G. Sigurðsson, áttu og boðuðu til alla sveitarstjóra Árborgarsvæðisins, sveitarstjórnir, stjórn og samgöngunefnd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga þar sem kynnt var, fyrir kosningar, að ákveðinn hluti vegarins væri búinn í skipulagsmálum og tilbúinn til útboðs sem yrði nú í júní- eða júlímánuði langar mig að heyra álit hans á þeirri breytingu á forgangsröðun sem hæstv. samgönguráðherra kynnti hér í gær.

Mig langar að vitna aðeins í sjöttu skýrslu samgöngunefndar SASS sem búin er að vinna ötullega að þessu máli. Þar segir að umferðin um Suðurlandsveg frá Reykjavík til Selfoss sé á bilinu 6.700–10.000 bílar eftir því hvar talið er og hefur aukist um 35–40% á sjö árum. Fólk sem fór þennan veg um helgina var reyndar í stærri bílaflota því að á laugardeginum fóru þar um 14.500 og tæplega 16.000 á sunnudeginum. Sumir héldu að þeir væru að keyra að slysi, svo hægt gekk umferðin. Það er heldur ekki skrýtið, síðustu sex árin, 2002–2007, urðu þar 10 banaslys og allt að 764 óhöpp, meiri háttar, minni háttar

eða banaslys. Því langar mig að beina fyrirspurninni til hv. 1. þm. Suðurk. hvort hann sé sammála forgangsröðun hæstv. samgönguráðherra.

Björgvin G. Sigurðsson ræða
Guðlaugur Þór Þórðarson ræða
Höskuldur Þórhallsson ræða
Álfheiður Ingadóttir ræða
Ásta R. Jóhannesdóttir ræða
Ragnheiður Ríkharðsdóttir ræða
Eygló Harðardóttir ræða
Unnur Brá Konráðsdóttir ræða
Guðbjartur Hannesson ræða
Ragnheiður E. Árnadóttir ræða