Samningur ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Líbanons

131. löggjafarþing Mál nr. 722 26. apríl 2005 – 9. maí 2005 Sjá á Alþingi.is ↗
2 ræður
2 þingmenn
262 orð
1 flokkar
Sjálfstæðisflokkur

Ríkisstjórn

Davíð Oddsson
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 262 orð

Stjórnarandstaða

Tímalína umræðunnar

26. apríl 2005
Davíð Oddsson Sjálfstæðisflokkur flutningsræða
262 orð
Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um heimild til handa ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Líbanons sem undirritaður var í Montreux í Sviss þann 24. júní 2004. Samningurinn við Líbanon kveður á um tollfrjáls viðskipti með iðnaðarvörur, þar með talinn fisk og aðrar sjávarafurðir. Þegar samningurinn öðlast gildi munu EFTA-ríkin afnema alla tolla og aðrar hindranir að því er varðar þær vörur…

Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um heimild til handa ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Líbanons sem undirritaður var í Montreux í Sviss þann 24. júní 2004.

Samningurinn við Líbanon kveður á um tollfrjáls viðskipti með iðnaðarvörur, þar með talinn fisk og aðrar sjávarafurðir. Þegar samningurinn öðlast gildi munu EFTA-ríkin afnema alla tolla og aðrar hindranir að því er varðar þær vörur sem samningurinn tekur til en Líbanon mun afnema tolla á tilteknu aðlögunartímabili sem hefst árið 2008 og lýkur árið 2015. Tollar á sjávarafurðir munu þó falla niður að langmestu leyti árið 2008.

Ákvæði eru einnig í samningnum um vernd hugverkaréttinda, þjónustuviðskipti og úrlausn deilumála. Í samningnum er ekki fjallað heildstætt um fjárfestingar og var því samhliða gerður sérstakur tvíhliða samningur milli Íslands og Líbanons um vernd fjárfestinga.

Samhliða fríverslunarsamningi gerðu EFTA-ríkin hvert og eitt tvíhliða landbúnaðarsamning um tollalækkanir fyrir ýmsar óunnar landbúnaðarvörur eins og tíðkast hefur við gerð fríverslunarsamninga. Viðskipti milli Íslands og Líbanons eru ekki mikil í dag en tækifærin eru fyrir hendi. Reynslan sýnir að viðskipti aukast oft í kjölfar fríverslunarsamninga sem Ísland hefur gert í félagi við hin EFTA-ríkin þannig að þeir hafa virkað hvetjandi á viðskipti milli aðildarríkja samningsins.

Að samningnum við Líbanon meðtöldum hafa EFTA-ríkin nú gert fríverslunarsamninga við 13 ríki með samtals rúmlega 280 millj. íbúa en til viðbótar samning við Evrópusambandið. Enn fremur var undirritaður samningur við Túnis í desember 2004 og bíður hann fullgildingar samningsaðilanna.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði þessari tillögu vísað til hv. utanríkismálanefndar.

9. maí 2005
Sólveig Pétursdóttir flutningsræða