Skýrslur háskólans um EES og ESB

118. löggjafarþing Mál nr. 87 24. nóvember 1994 Sjá á Alþingi.is ↗
1 ræður
1 þingmenn
423 orð
1 flokkar
Sjálfstæðisflokkur

Ríkisstjórn

Davíð Oddsson
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 423 orð

Stjórnarandstaða

Tímalína umræðunnar

24. nóvember 1994
Davíð Oddsson Sjálfstæðisflokkur ræða
423 orð
[13:51] Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) : Hæstv. forseti. Vegna ummæla hv. 1. þm. Austurl. vil ég taka fram að ég tel að undirbúningur undir aðlögun okkar með EES-samninginn sé alveg á fullnægjandi gangi og róli og ekki sérstakar ástæður til að hafa áhyggjur af því. Ég fyrir mitt leyti tel að þar verði ekki uppi neinn vandi. Á hinn bóginn er það svo að meðan Noregur er í þessum bægslagangi sem Noregur er í nú þá hreyfir Evrópusambandið sig ekki neitt til þess að skaða ekki málstað þeirra…

[13:51] Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) : Hæstv. forseti. Vegna ummæla hv. 1. þm. Austurl. vil ég taka fram að ég tel að undirbúningur undir aðlögun okkar með EES-samninginn sé alveg á fullnægjandi gangi og róli og ekki sérstakar ástæður til að hafa áhyggjur af því. Ég fyrir mitt leyti tel að þar verði ekki uppi neinn vandi. Á hinn bóginn er það svo að meðan Noregur er í þessum bægslagangi sem Noregur er í nú þá hreyfir Evrópusambandið sig ekki neitt til þess að skaða ekki málstað þeirra sem vilja koma Noregi inn í Evrópusambandið. Þannig að ég hef ekki áhyggjur af þeim þætti þegar þau mál kyrrast. Ég vil hins vegar segja að mér var misboðið með umræðu um þessa mál á fundi Alþfl. vegna þess að þar var því haldið fram að ég væri að reyna að koma í veg fyrir umræður um þessi mál og umræður um þessar skýrslur. Þar var kynnt skýrsla um Sjávarútvegsstofnun sem var send utanrrn. með bréfi 26. sept. og þar segir, með leyfi forseta: ,,Hér með fylgir bráðabirgðaskýrsla Sjávarútvegsstofnunar ,,ESB: þróunarsjóðir og samkeppnisstaða íslensks sjávarútvegs. Lögð er á það rík áhersla að hér er um að ræða bráðabirgðaskýrslu. Skýrslan er trúnaðarmál til umfjöllunar í ríkisstjórn. Opinberar tilvitnanir í skýrsluna eru óheimilar. Endanleg skýrsla verður afhent innan tveggja vikna. --- Þetta er 26. sept. Ég hef ekki séð þessa skýrslu enn þá, þessa endanlegu skýrslu sem var hins vegar rædd á þessum fundi Alþfl. og þar sem er fundið að því að forsrh. sé á móti umræðum af þessu tagi. Og hér er plaggið að skýrslunni, það stendur ,,Bráðabyrgðaskýrsla og meira að segja ,,y í bráðabirgða til að sýna hvað þetta er óvenjulegt frá háskólanum því það er ekki mikið notað af háskólans hálfu --- drög, trúnaðarmál, ekki til opinberrar birtingar eða umfjöllunar. --- Svo er því haldið fram að ég sé að liggja á skýrslum af þessu tagi. Það er ekki. Varðandi skýrslu Hagfræðistofnunar þá var það upplýst í utanrmn. að fulltrúi Hagfræðistofnunar, Ragnar Árnason, hefði haft samband við nefndina og skýrt frá því að þessi skýrsla væri ekki endanleg. Auðvitað fara menn ekkert í efnislegar umræður um þessa skýrslu fyrr en þær eru endanlegar. Ég vek athygli á því að af fimm skýrslum hafa aðeins tvær borist endanlegar. Það verður að vera einhver vitræn umfjöllun um þessi mál og það gerist ekki nema menn séu að fjalla um endanlegar skýrslur og ég sit ekkert undir því að ég sé að reyna að koma í veg fyrir það að um þessi mál fari fram vitrænar umræður.