Aðild Íslands að Vestur-Evrópusambandinu

116. löggjafarþing Mál nr. 109 19. nóvember 1992 Sjá á Alþingi.is ↗
6 ræður
6 þingmenn
876 orð
5 flokkar
Alþýðubandalag Alþýðuflokkur Framsóknarflokkur Samtök um kvennalista Sjálfstæðisflokkur

Ríkisstjórn

Geir H. Haarde
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða 118 orð
Jón Baldvin Hannibalsson
Alþýðuflokkur
1 ræða 88 orð

Stjórnarandstaða

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Samtök um kvennalista
1 ræða 298 orð
Hjörleifur Guttormsson
Alþýðubandalag
1 ræða 242 orð
Páll Pétursson
Framsóknarflokkur
1 ræða 75 orð
Jón Helgason
Framsóknarflokkur
1 ræða 55 orð

Tímalína umræðunnar

19. nóvember 1992
Jón Baldvin Hannibalsson Alþýðuflokkur málsh. um fundarstjórn
88 orð
Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson): Virðulegi forseti. Í framhaldi af skyndifundi utanrmn. sem boðað var til áðan að ósk nokkurra hv. þm. vil ég taka það fram að á ríkisstjórnarfundi í fyrramálið mun ég taka það upp sem fyrsta mál á dagskrá og beita mér fyrir því að þáltill. um aukaaðildina verði lögð fram á Alþingi við fyrsta tækifæri, enda verður undirritunin að sjálfsögðu með löghelguðu formi, þ.e. með fyrirvara um samþykki Alþingis Íslendinga. En aðildin eða undirskriftin að…

Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson): Virðulegi forseti. Í framhaldi af skyndifundi utanrmn. sem boðað var til áðan að ósk nokkurra hv. þm. vil ég taka það fram að á ríkisstjórnarfundi í fyrramálið mun ég taka það upp sem fyrsta mál á dagskrá og beita mér fyrir því að þáltill. um aukaaðildina verði lögð fram á Alþingi við fyrsta tækifæri, enda verður undirritunin að sjálfsögðu með löghelguðu formi, þ.e. með fyrirvara um samþykki Alþingis Íslendinga. En aðildin eða undirskriftin að aukaaðildarskjalinu verður staðfest fyrir mína hönd af umhvrh. í fyrramálið.

Páll Pétursson Framsóknarflokkur um fundarstjórn
75 orð
Páll Pétursson: Frú forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. þessa yfirlýsingu. Ég tel það rétt skref að hann beiti sér fyrir því að undirritunin fari fram með fyrirvara og að málið verði tekið til umræðu með þinglegum hætti svo fljótt sem verða má. Þessu fylgir að sjálfsögðu að málið verður rætt ítarlega í utanrmn. Það var enginn ágreiningur um það eða neinn óvilji hjá formanni nefndarinnar. Ég vil að það komi fram að þetta verði gert.
Hjörleifur Guttormsson Alþýðubandalag um fundarstjórn
242 orð
Hjörleifur Guttormsson: Virðulegur forseti. Utanrmn. hefur rætt þetta mál á fundi sínum og hér hefur komið fram yfirlýsing frá hæstv. utanrrh. Það hefur komið fram að ég tel eðlilegt að ríkisstjórnin og hæstv. utanrrh. frestaði undirritun undir samninginn um aukaaðild af hálfu Íslands á morgun og að málið yrði kynnt á Alþingi Íslendinga og leitað eftir afstöðu þingsins áður en svo ákvarðandi skref yrði stigið af hálfu stjórnvalda. Mál eru komin í aðra stöðu eftir að ríkisstjórn hefur tekið…

Hjörleifur Guttormsson: Virðulegur forseti. Utanrmn. hefur rætt þetta mál á fundi sínum og hér hefur komið fram yfirlýsing frá hæstv. utanrrh. Það hefur komið fram að ég tel eðlilegt að ríkisstjórnin og hæstv. utanrrh. frestaði undirritun undir samninginn um aukaaðild af hálfu Íslands á morgun og að málið yrði kynnt á Alþingi Íslendinga og leitað eftir afstöðu þingsins áður en svo ákvarðandi skref yrði stigið af hálfu stjórnvalda. Mál eru komin í aðra stöðu eftir að ríkisstjórn hefur tekið sína ákvörðun og þingið er ekki með sama hætti frjálst að ræða málið og tjá afstöðu sína eins og ef slíkt skef hefði ekki verið stigið. Ég tel hins vegar að það hafi verið komið í veg fyrir stjórnarfarslegt stórslys í kjölfar þeirrar umræðu sem fram fór í dag með því að hæstv. ráðherra hefur gefið til kynna að hann muni láta fyrirvara fylgja undirritun af sinni hálfu og leggja málið fyrir þingið, því ég tel að það hljóti að vera á valdi ráðherra sjálfs að gera það og að hann þurfi ekki að spyrja mjög marga um svo sjálfsagt atriði eins og að leggja stórmál af þessu tagi fyrir Alþingi.

Því sem hér liggur fyrir verður ekki breytt af hálfu stjórnvalda. Menn hafa lagt orð sín inn í belg utanrmn. um þessi efni og ég þakka ráðherranum fyrir það að hann hefur stigið til móts við sjónarmið okkar stjórnarandstæðinga í þessu máli þó að við vildum hafa séð það með ákveðnari hætti.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Samtök um kvennalista um fundarstjórn
298 orð
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Virðulegi forseti. Ég upplýsi það hér en það kann að vera ókunnugleika mínum um að kenna að ég leit svo á að þegar aukaaðild Íslendinga að Vestur-Evrópusambandinu var kynnt í utanrmn. og var reyndar rædd hér áðan, taldi ég ótvírætt að málið kæmi til kasta Alþingis. Það hefur hins vegar verið upplýst að það var alls ekki svo ótvírætt heldur varð það í rauninni niðurstaða umræðu sem var núna í utanrmn. að ráðherra mundi beita sér fyrir því í ríkisstjórninni að málið…

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Virðulegi forseti. Ég upplýsi það hér en það kann að vera ókunnugleika mínum um að kenna að ég leit svo á að þegar aukaaðild Íslendinga að Vestur-Evrópusambandinu var kynnt í utanrmn. og var reyndar rædd hér áðan, taldi ég ótvírætt að málið kæmi til kasta Alþingis. Það hefur hins vegar verið upplýst að það var alls ekki svo ótvírætt heldur varð það í rauninni niðurstaða umræðu sem var núna í utanrmn. að ráðherra mundi beita sér fyrir því í ríkisstjórninni að málið kæmi til kasta Alþingis í formi þingsályktunar. Í því sambandi vek ég athygli á hversu málum er sérkennilega háttað á hinu háa Alþingi vegna þess að á borðum hjá okkur liggur m.a. frv. til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að leyfa Sveinbirni Runólfssyni sf. innflutning á gröfupramma. Þetta mál á að koma til kasta Alþingis og fá þinglega meðferð í þremur umræðum og í nefnd, en stórmál eins og aukaaðild að Vestur-Evrópusambandinu átti ekki að fara til umfjöllunar þingsins nema með einhverri sérstakri aðgerð af hálfu ríkisstjórnarinnar.

Hér er um pólitíska skuldbindingu að ræða. Hér er stórt mál á ferðinni og í slíkum málum teljum við kvennalistakonur almennt eðlilegt að sótt sé umboð til Alþingis og viljum minna á að þegar farið var til viðræðna um stofnun Evrópsks efnahagssvæðis ásamt EB og öðrum EFTA-ríkjum, var það skoðun Kvennalistans að það ætti að sækja umboð til Alþingis til þess að fara til þeirra viðræðna. Það var ekki gert. Við erum líka þeirrar skoðunar í þessu máli að sækja hefði átt umboð til Alþingis. Hins vegar er ljóst að það verður heldur ekki gert. Engu að síður tel ég að eftir atvikum sé niðurstaðan sem fékkst í þetta mál eftir fund utanrmn. viðunandi sérstaklega ef mál fara fram eins og ráðherra hefur lýst.

Geir H. Haarde Sjálfstæðisflokkur um fundarstjórn
118 orð
Geir H. Haarde: Virðulegi forseti. Ég vil láta þá skoðun mína koma fram að hér hafi náðst farsæl lausn í máli sem leit ekkert allt of vel út fyrr í dag. Hún hefur náðst vegna þess að allir hafa lagst á eitt um að tryggja að málið fái þann búning að þingið geti vel við unað. Hæstv. utanrrh. hefur lagt sig fram um að koma til móts við óskir stjórnarandstöðunnar í þessu efni og um þetta hefur náðst gott samkomulag. Það gerðist vegna þess að í hv. utanrmn. var haldinn fundur strax og um hann var…

Geir H. Haarde: Virðulegi forseti. Ég vil láta þá skoðun mína koma fram að hér hafi náðst farsæl lausn í máli sem leit ekkert allt of vel út fyrr í dag. Hún hefur náðst vegna þess að allir hafa lagst á eitt um að tryggja að málið fái þann búning að þingið geti vel við unað. Hæstv. utanrrh. hefur lagt sig fram um að koma til móts við óskir stjórnarandstöðunnar í þessu efni og um þetta hefur náðst gott samkomulag. Það gerðist vegna þess að í hv. utanrmn. var haldinn fundur strax og um hann var beðið.

Ég vil fyrir mitt leyti og fyrir hönd míns þingflokks þakka öllum þeim lagt hafa hönd á plóg í þessu efni.

Jón Helgason Framsóknarflokkur um fundarstjórn
55 orð
Jón Helgason: Hæstv. forseti. Ég þakka að sjálfsögðu fyrir þá ákvörðun sem tekin hefur verið svo langt sem hún nær. Meðferð málsins mun þannig verða með þinglegum hætti þó að ég hins vegar hljóti að láta í ljós vonbrigði mín yfir því að undirrita eigi aðild okkar, þó með fyrirvara sé, að hernaðarlegum hluta Evrópubandalagsins.