Kostnaður af samningum um Evrópska efnahagssvæðið
3
ræður
2
þingmenn
179
orð
2
flokkar
Samtök um kvennalista
Sjálfstæðisflokkur
Ríkisstjórn
Stjórnarandstaða
Kristín Ástgeirsdóttir
Samtök um kvennalista
2 ræður
129 orð
Davíð Oddsson
Sjálfstæðisflokkur
1 ræða
50 orð
Tímalína umræðunnar
22. október 1991
Kristín Ástgeirsdóttir
Samtök um kvennalista
ræða
Kristín Ástgeirsdóttir: Virðulegi forseti. Mig langar að beina spurningu til hæstv. forsrh. Í nótt lauk samningum um hið Evrópska efnahagssvæði sem staðið hafa mánuðum saman og menn hljóta að gera sér grein fyrir að svo viðamiklum samningum fylgir verulegur kostnaður. Því vil ég spyrja forsrh. Íslands: Hvað er áætlað að fjórfrelsið muni kosta íslenska ríkið í ráðgjöf, eftirliti, kynningu, þýðingum, sérfræðiþjónustu og öðru því sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið mun kalla á?
Davíð Oddsson
Sjálfstæðisflokkur
ræða
Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) : Virðulegi forseti. Ég taldi að þennan tíma ætti að nota til þess að spyrja um viðhorf og efnisatriði sem ráðherrar gætu svarað úr. Það gefur auga leið að spurningu eins og þessari er ekki hægt að svara á augabragði. Svarið er því: Ég veit það ekki.
Kristín Ástgeirsdóttir
Samtök um kvennalista
ræða
Kristín Ástgeirsdóttir: Virðulegi forseti. Ég verð að lýsa vonbrigðum mínum með þetta svar. Eins og ég nefndi þá hafa þessir samningar staðið mánuðum saman og mér þykir það vægast sagt undarlegt ef menn hafa ekki reynt fyrir fram að gera sér einhverja grein fyrir því hvað af þessum samningi leiðir og hvað hann muni kosta íslenska ríkið.